|
Mistök Landsbankans við sölu á Borgunlaugardagur, 23. janúar 2016
|
Í lok ársins 2014 seldi Landsbankinn þriðjungshlut sinn í Borgun,Visakortfyrirtæki.Það,sem var sérkennilegtvið þessa sölu, var það,að ekkert útboð fór fram,heldur voru kaupendur handvaldir.M.ö.o: :Það var aðeins fyrir vissa útvalda að fá að bjóða í hlutinn. Salan fór fram.Meðal kaupenda var föðurbróðir Bjarna Benediktssonar ,fjármálaráðherra.Nokkru eftir að hinir nýju eigendur höfðu eignast Borgun samþykkti félagið að greiða nýjum eigendum umtalsverðan arð.
Gárungarnir sögðu þá,að nýju eigendurnir hefðu greitt fyrir Landsbankahlutinn með arðinum!
Þegar alþingi kom saman á ný í vikunni stóð upp Árni Páll Árnason formaður Samfylkingarinnar og gagnrýndi sölu Landsbankans á Borgun harðlega.Fór hann fram á,að alþingi rannsakaði söluna.
Árni Páll sagði,að Borgun væri að fá á annan tug milljarða í arð af sölu Visa Europe til Visa Inc en sú sala hefði verið fyrirsjáanleg þegar Landsbankinn hafi selt Borgun. Við sambærilega sölu á hlut í Valitor hefði Landsbankinn sett ákvæði í sölusamninginn um að bankinn fengi hlut af arði vegna sölu Visa Europe til Visa Inc.Sambærileg ákvæði hefðu átt að vera í sölusamningi vegna sölu Landsbankans á Borgun. Árni Páll taldi,að Landsbankanum hefðu orðið á mistök við söluna á Borgun.Þetta væri eitt stórt klúður.Þessi mistök lofa ekki góðu um væntanlega sölu á hlut ríkisins í Landsbankanum.-Bankastjóri Landsbankans hefur nú lýst því yfir,að við sambærilega sölu í framtíðinni verði söluferlið opið. Með þeirri yfirlýsingu hefur bankastjórinm viðurkennt,að ranglega hafi verið staðið að sölunni á Borgun.
Eftirlits-og stjórnskipunarnefnd alþingis ætlar að rannsaka sölu Landsbankans á Borgun. Ekki er vanþörf á. Fyrir handvömm tapar Landsbankinn meira en tug milljarða. Þetta er banki í eigu okkar. Það hefði mátt nota þessa peninga í Landsspítalann og fyrir aldraða og öryrkja.Sama má segja um 2 milljarða,sem rïkisstjórnin setur í einhvern fjárfestingarbanka í Asíu.Ísland á ekkert erindi í þann banka. þessir 2 milljarðar hefðu átt að fara til aldraðra og öryrkja
Björgvin Guðmundsson
.
.
| Deila � Facebook |
N�justu pistlarnir: Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018 Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018 Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018 Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017 Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017 Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017 Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017 Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017 Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017 Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017 Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016 Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016 Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016 Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016 Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016 Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016 Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016 Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016 Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016 Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016 Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016 Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016 Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016 Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016 Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016 76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016 Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016 Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016 Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016 Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016
|
|