|
Blekktu ráðamenn Íslands þjóðina?miðvikudagur, 3. desember 2003
|
Miklar umræður hafa átt sér stað að undanförnu í Bandaríkjunum og í Bretlandi um innrás þessara ríkja í Írak.Stjórnvöld í ríkjum þessum hafa sætt harðri gagnrýni fyrir að hafa gert árás á Írak á fölskum foresendum. Sagt var,að Saddam Hussein hefði yfir gereyðingavopnum að ráða og þess vegna yrði að gera árás á Írak og afvopna Hussein. En engin gereyðingarvopn hafa fundist í landinu. Svo virðist,sem þau hafi ekki verið til. Bandaríkjamenn og Bretar héldu því fram, að Írak væri að falast eftir úran í Afríku til þess að þróa kjarnorkuvopn. En nú hefur verið upplýst,að skýrslur um þetta efni voru falsaðar! Þannig stendur ekki steinn yfir steini í málflutningi Bandaríkjamanna og Breta um nauðsyn árásar á Írak. Meira að segja Rumsfeld varnarmálaráðherra Bandaríkjanna viðurkennir nú,að það hafi ekki verið vegna gereyðingarvopna í Írak,að Bandaríkjamenn gerður innrás í landið. Það hafi verið vegna þess ,að atburðirnir 11.september 2001 hafi veitt Bandaríkjunum nýja sýn á hættuna,sem stafaði frá Írak og ýmsum öðrum þjóðum! Með öðrum orðum: Rumsfeld viðurkennir,að Bush og aðrir ráðmenn Bandaríkjanna hafi farið með ósannindi ,þegar þeir "réttlættu" árás á Írak og sögðu,að Írak hefði yfir gereyðingarvopnum að ráða. Breska þingið samþykkti hinn 3. júní sl. ,að fela utanríkismálanefnd þingsins að láta fara fram rannsókn á því hvort breska þjóðin og breska þingið hafi verið beitt blekkingum, þegar ráðmenn Bretlands "réttlættu" stríð gegn Írak. Rannsókn þessari er að mestu lokið.Hún hefur þegar leitt í ljós,að margt af því sem notað var í röksemdafærslu fyrir stríði gegn Írak var byggt á röngum upplýsingum. T.d. hefur verið upplýst,að fullyrðing bresku leyniþjónustunnar um að Saddam Hussein gæti beitt gereyðingarvopnum með 45 mínútna fyrirvara stendst ekki. Fullyrðingin reyndist röng. Sterkar líkur benda til þess að ráðmenn bæði í Bandaríkjunum og í Bretlandi hafi beitt almenning og þjóðþingin í löndum þessum blekkingum,þegar ákveðið var að hefja stríð gegn Írak. En hvernig var þessu farið á Íslandi? Blekktu ráðamenn Íslands þjóðina,þegar þeir sögðu nauðsynlegt að styðja árás á Íraka vegna þess að þeir hefðu yfir gereyðingarvopnum að ráða? Allar líkur benda til þess að svo hafi verið. Íslenzkir ráðamenn tóku upp rök Bandaríkjamanna og Breta í þessu máli og gerðu að sínum. Þeir eru því undir sömu sök seldir og ráðamenn í Bandaríkjunum og í Bretlandi. Íslenskir ráðamenn bera ábyrgð á sínum gerðum í þessum efnum. Þeir geta ekki skotið sér á bak við aðrar þjóðir. Í júní sl. ritaði ég grein í Mbl. og lagði til að Alþingi skipaði rannsóknarnefnd til þess að rannsaka hvort íslenskir ráðamenn hefðu staðið rétt að þeirri ákvörðun að láta Íslendinga lýsa yfir stuðningi við árás Bandaríkjanna og Bretlands á Írak. Hér með ítreka ég þessa tillögu mína. Umrædd ákvörðun var hvorki lögð fyrir utanríkismálanefnd Alþingis né Alþingi sjálft. Skylt er að leggja öll mikilvæg utanríkismál fyrir utanríkismálanefnd. Ákvæði þar um var brotið. Ég tel einnig,að leggja hefði átt málið fyrir Alþingi. En það var ekki gert Það er alvarlegt mál að gera vopnaða árás á aðra þjóð.Það er í raun glæpur. Það er einnig alvarlegt mál, að lýsa yfir stuðningi við slíka árás.Ráðamenn Íslands höfðu ekkert leyfi til þess að láta Ísland styðja árásina á Írak. Allt bendir til þess að þeir hafi ekki tekið ákvörðun þar um á löglegan hátt. Rannsaka þarf hvort svo var eða ekki.
Björgvin Guðmundsson viðskiptafræðingur.
Birt í Morgunblaðinu 2003
| Deila � Facebook |
N�justu pistlarnir: Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018 Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018 Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018 Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017 Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017 Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017 Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017 Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017 Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017 Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017 Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016 Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016 Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016 Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016 Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016 Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016 Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016 Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016 Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016 Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016 Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016 Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016 Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016 Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016 Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016 76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016 Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016 Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016 Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016 Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016
|
|