|
Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjumsunnudagur, 3. apríl 2016
|
Ísland er aðili að mörgum alþjóðlegum mannréttindasáttmálum. Mikilvægastur þeirra er Mannréttindayfirýsing Sameinuðu þjóðanna.Samkvæmt henni eiga allir rétt á félagslegu öryggi. Og allir eiga rétt á lífskjörum, sem nauðsynleg eru til verndar heilsu og vellíðan þeirra og fjölskyldna þeirra svo og rétt á félagslegri þjónustu, rétt til öryggis vegna veikinda, elli eða annars, sem skorti veldur. Það er ekki verið að framfylgja þessum ákvæðum hér á sama tíma og hópur aldraðra og öryrkja hefur ekki fyrir mat í lok hvers mánaðar.
Í stjórnarskrá Íslands eru einnig ákvæði, sem vernda aldraða og öryrkja. Í 76.greininni segir, að veita eigi aðstoð vegna elli og sjúkleika, ef þörf krefur. Þetta ákvæði hefur verið túlkað svo, að ríkið eigi að veita öldruðum og öryrkjum kjör, sem tryggi að þessir aðilar geti lifað eðlilegu lífi í samfélaginu. Þeir geta það ekki á meðan ríkið skammtar lífeyrinn frá TR svo naumt, að hann nægir ekki fyrir brýnustu nauðsynjum. Lífeyrisþegar, sem einungis hafa greiðslur frá almannatryggingum, verða að neita sér um læknishjálp eða lyf og hafa iðulega ekki nóg fyrir mat.Í alþjóðlegum mannréttindasáttmálum segir, að ekki megi færa kjör aldraðra og öryrkja til baka nema áður hafi verið kannað hvort önnur úrræði séu fyrir hendi. Eftir þessu ákvæði hefur ekki verið farið hér á landi.
Mismunun er bönnuð samkvæmt alþjóðlegum mannréttindasáttmálum. Þau ákvæði eru þverbrotin hér á landi. Eldri borgarar eru látnir sitja á hakanum á
sjúkrahúsunum. Þeir yngri hafa forgang þar. Eldri borgarar eru einni
g látnir mæta afgangi á vinnumarkaðnum. Þeir yngri sitja fyrir um v
innu. Sama gildi um kjaramálin. Þó launþegar fái miklar og almennar launahækkanir eru aldraðir skildir eftir, sbr sl. ár, þegar eldri borgarar voru látn
ir bíða í 8 mánuði eftir kjarabótum, í kjölfar launahækkana, sem launþegar fengu.
Björgvin Guðmundsson
viðskiptafræðingur
| Deila � Facebook |
N�justu pistlarnir: Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018 Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018 Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018 Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017 Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017 Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017 Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017 Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017 Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017 Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017 Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016 Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016 Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016 Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016 Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016 Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016 Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016 Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016 Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016 Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016 Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016 Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016 Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016 Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016 Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016 76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016 Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016 Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016 Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016 Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016
|
|