|
Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!fimmtudagur, 25. febrúar 2016
| Grein í Fréttblaðinu í dag:
Þegar eldri borgari fer á hjúkrunarheimili tekur Tryggingastofnun ríkisins lífeyri hans til greiðslu kostnaðar við dvölina á hjúkrunarheimilinu.Þetta er líkast eignaupptöku.Allur lífeyrir frá TR er tekinn.Þeir,sem hafa meira en rúmar 74 þúsund í tekjur, mega sæta því,að það sem umfram er sé af þeim tekið fyrir dvalarkostnaði þar til náð er markinu tæpar 355 þúsund krónur.Þar stöðvast "eignaupptakan".Síðan er eldri borgurunum skammtaðir vasapeningar, 53 þúsund krónur, að hámarki en þessi greiðsla er tekjutengd.Vasapeningarnr eru skertir, ef viðkomandi eldri borgari hefur t.d. örlitlar vaxtatekjur. Aldraðir fá ekki einu sinni að hafa vaxapeningana í friði!
Greiðslur felldar niður strax í næsta mánuði!
Eldri borgararnir,sem fara á hjúkrunarheimili, eru ekki spurðir að því, hvort þeir samþykki, að lífeyrir þeirra sé tekinn af þeim í framangreindum tilgangi. Nei,þeim er einfaldlega tilkynnt þetta.Allar greiðslur til þeirra frá TR eru felldar niður strax í næsta mánuði eftir innlögn!Á hinum Norðurlöndunum er annar háttur hafður á. Þar fá eldri borgararnir lífeyrinn í sínar hendur en síðan greiða þeir sjálfir eða aðstandendur kostnaðinn við dvölina á hjúkrunarheimilinu.
Brotin mannréttindi á eldri borgurum
Það er mat lögfræðinga, að það sé mannréttindabrot að rífa lífeyrinn af eldri borgurum á þennan hátt.Kjaranefnd Félags eldri borgara í Reykjavík hefur rætt þetta fyrirkomulag við lögfræðinga og þeir telja, að það standist hvorki lög né stjórnarskrá að rífa lífeyrinn af eldri borgurum á þann hátt sem gert er.Stjórnvöld hafa íhugað að breyta þessu en ráðamenn hjúkrunarheimilanna hafa lagst gegn breytingu.Að sjálfsögðu eiga þeir ekki að ráða þessu.
Við ættum að hafa sama hátt á þessu og á hinum Norðurlöndunum.Við þurfum að breyta þessu strax.Það er niðurlægjandi fyrir eldri borgara að þurfa að sæta því fyrirkomulagi,sem nú er viðhaft.
Björgvin Guðmundsson
| Deila � Facebook |
N�justu pistlarnir: Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018 Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018 Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018 Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017 Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017 Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017 Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017 Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017 Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017 Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017 Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016 Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016 Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016 Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016 Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016 Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016 Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016 Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016 Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016 Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016 Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016 Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016 Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016 Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016 Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016 76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016 Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016 Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016 Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016 Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016
|
|