|
Lífeyrir aldraðra skammarlega lágurlaugardagur, 1. ágúst 2015
|
Stjórnvöld fara skammarlega með lífeyrisþega.Lífeyrir almannatrygginga til aldraðra og öryrkja er svo lágur,að engin leið er að lifa mannsæmandi lífi af honum.Einhleypur ellilîfeyrisþegi,sem einungis hefur tekjur frá almannatryggingum, fær 187 þús.kr á mánuði eftir skatt.Megnið af þeirri fjárhæð fer í húsaleigu, ef viðkomandi þarf að búa í leiguhúsnæði.Það er þá lítið eftir fyrir mat,fatnaði,rafmagni og hita,síma, tölvukostnaði og öllum öðrum útgjöldum. Ástandið er miklu betra hjá þeim,sem búa í eigin húsnæði.En þó er afkoman erfið.Þessar smánarbætur aldraðra frá TR duga rétt fyrir allra brýnustu nauðsynjum en ekkert er til fyrir skemmtunum,gjöfum eða öðru til þess að lífga upp á tilveruna.Ekki er inni í myndinni að reka bíl af þessum lágu bótum.
Eldri borgarar hafa byggt upp það þjóðfélag,sem við búum við í dag.Eldri borgarar eiga það því inni að fá að búa með reisn síðustu ár ævi sinnar.
Vantar 134 þús. Kr.á mánuði
Samkvæmt neyslukönnun Hagstofunnar eyðir hver einstaklingur til jafnaðar 321 þús.kr.á mánuði í neyslu.Engir skattar eru innifaldir í þeirri tölu.Ellilífeyrir Tryggingastofnunar er hins vegar aðeins 187 þús.kr á mánuði eftir skatta hjá einhleypingi. Það vantar því 134 þús.kr.á mánuði til þess að lífeyrir TR dugi fyrir meðaltals neysluútgjöldum.Með því að engir skattar eru inni í neyslukönnun Hagstofunnar er um sambærilegar tölur að ræða.Þegar litið er á þessar tölur verður ljóst hvað stjórnvöld búa illa að eldri borgurum.Hér hefur verið fjallað um þá eldri borgara,sem einungis hafa tekjur frá almannatryggingum.En ástandið er lítið betra hjá þeim,sem hafa lífeyri úr lífeyrissjóði vegna mikilla skerðinga á tryggingabótum hjá Tryggingastofnun ríkisins.Þorri lífeyrisþega hefur fremur lélegan lífeyrissjóð,70-100 þús.kr.á mánuði.Þeir,sem hafa 70 þús.kr. á mánuði úr lífeyrissjóði eru engu betur settir en þeir,sem aldrei hafa greitt i lífeyrissjóð.Tryggingastofnun skerðir lífeyri þeirra um hátt í 70 þús.kr á mánuði.
Hækka verður lífeyri um 20%strax
Augljóst er,að hækka verður ríflega lífeyri eldri borgara, eigi þeir að geta lifað mannsæmandi lïfi af honum.Það er lágmark að hækka lífeyrinn um 40-50 þús.kr.á mánuði enda þótt stefna eigi að 134 þús króna hækkun til þess að ná neysluvviðmiði Hagstofunnar.Það vill svo til ,að ríkisstjórnin skuldar öldruðum og öryrkjum einmitt 44 þúsund króna hækkun á mánuði (20%) ætli hún að standa við loforðið um að leiðrétta lífeyrinn vegna kjaragliðnunar á krepputímanum.En það þarf einmitt að hækka lífeyri um 20 % til þess að framkvæma þá leiðréttingu.Þessari leiðréttingu var lofað í kosningabaráttunni 2013.Við hana verður að standa strax.
Björgvin Guðmundsson
Birt í Fréttablaðinu 8.jan. 2015
| Deila � Facebook |
N�justu pistlarnir: Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018 Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018 Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018 Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017 Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017 Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017 Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017 Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017 Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017 Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017 Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016 Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016 Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016 Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016 Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016 Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016 Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016 Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016 Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016 Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016 Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016 Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016 Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016 Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016 Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016 76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016 Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016 Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016 Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016 Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016
|
|