|
Á að fresta kjarabótum aldraðra fram á næsta ár?fimmtudagur, 15. nóvember 2007
| Lagt hefur verið fram frumvarp á alþingi um að flytja hluta almannatrygginga og yfirstjórn þeirra til félagsmálaráðuneytis. Sjúkratryggingar og slysatryggiungar verða áfram hjá heilbrigðisráðuneytinu.Í athugasemdum við frumvarpið segir svo:
Hvað varðar almannatryggingar er í stefnu ríkisstjórnarinnar lögð áhersla á að styrkja stöðu aldraðra og öryrkja, m.a. með einföldun almannatryggingakerfisins og að því er nú unnið. Samspil skatta, tryggingabóta, greiðslna úr lífeyrissjóðum og atvinnutekna einstaklinga verði skoðað sérstaklega til að tryggja meiri sanngirni og hvetja til tekjuöflunar og sparnaðar. Vinna við þetta hefur þegar hafist í félagsmálaráðuneytinu og mun strax á næsta ári verða hafist handa við að hrinda breytingum í framkvæmd.
Er það stefna ríkisstjórnarinnar að fresta sem mest kjarabótum aldraðra?
Samkvæmt þessu orðalagi á að fresta kjarabótum til aldraðra fram á næsta ár. Engu er líkara en að það sé keppikefli hjá ríkisstjórninni að fresta kjarabótum aldraðra eins lengi og unnt er.Stjórnmálamennirnir eru nú búnir að gleyma loforðunum,sem þeir gáfu öldruðum um að stórbæta kjör þeirra. Þegar alþingi hækkaði eftirlaun ráðherra og þingmanna tók ekki nema nokkra daga að afgreiða það á alþingi en það á að taka upp undir heilt ár að afgreiða kjarabætur til aldraðra. Ég fer að hallast að því að málefni aldraðra hefðu verið í jafn góðum höndum hjá Framsókn áfram eins og hjá nýju ríkisstjórninni.A.m.k. eru einu kjarabæturnar til aldraðra sem er að finna í fjárlagafrumvarpinu þær sem ákveðnar voru af fyrri ríkisstjórn,þ.e. í samkomulagi stjórnar og LEB en þá var Sif heilbrigðisráðherra. Nýja rikisstjórnin hefur enn ekki sett eina krónu inn í fjárlagafrumvarpið til kjarabóta aldraðra! Vonandi stendur það til bóta.
Björgvin Guðmundsson | Deila � Facebook |
N�justu pistlarnir: Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018 Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018 Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018 Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017 Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017 Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017 Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017 Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017 Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017 Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017 Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016 Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016 Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016 Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016 Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016 Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016 Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016 Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016 Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016 Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016 Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016 Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016 Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016 Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016 Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016 76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016 Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016 Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016 Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016 Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016
|
|