Nýr fundarstjóri er nú í ríkisstjórninni.Formaður Framsóknarflokksins tók við fundarstjórn 15.september eins og samið hafði verið um strax eftir þingkosningar 2003. Í rauninni skiptir engu máli hvor stýrir fundum ríkisstjórnar,formaður Framsóknar eða formaður Sjálfstæðisfloksins. Eftir sem áður ræður Sjálfstæðisflokkurinn öllu,sem hann vill ráða. Það má líkja ríkisstjórninni við bíl. Halldór situr nú við stýrið en Davíð situr aftur í og segir hvert og hvernig á að keyra. Það er stundum talað um bílstjóra aftur í. Davíð er nú slíkur bílstjóri.
Formaður Sjálfstæðisflokksins er nú orðinn utanríkisráðherra. Völd hans hafa því aukist og völd Halldórs minnkað,þar eð það fylgja engin völd embætti forsætisráðherra en embætti utanríkisráðherra er valdamikið.Formaður Sjálfstæðisflokksins tók varnarmálin í sínar hendur á meðan hann var forsætisráðherra og kvað þau mál svo mikilvæg, að slíkt væri nauðsynlegt. Nú tekur hann varnarmálin með sér yfir í utanríkisráðuneytið og segir,að þau eigi heima hjá utanríkisráðherra! Þannig valtar hann yfir formann Framsóknar að vild og sá síðarnefndi lætur bjóða sér það. Allt er tilvinnandi til þess að halda stól fundarstjóra í ríkisstjórninni.
Það er stundum sagt,að stjórnmál og leiklist eigi margt sameiginlegt. Og víst er, að það spillir ekki í stjórnmálum að hafa vissa leikhæfileika. Þetta atriði kom í hug við stólaskiptin 15.september sl. Það var engu líkara en verið væri að flytja vel æft leikrit. Davíð sagði,þegar hann gekk út úr gamla stjórnarráðshúsinu,að það væri mjög gaman að hætta sem forsætisráðherra! Það væri svo góð sátt í stjórninni!Það var engu líkara en hann hefði beðið þess með óþreyju,að fá að hætta. Svo bætti hann því við,að Halldór mætti sín vegna vera 13 ár forsætisráðherra eins og hann hefði verið! Sjálfstæðismenn eru sjálfsagt sammála því!Halldór sagði,að það væri misskilningur,að hann hefði stefnt að því að verða forsætisráðherra! Það hefði bara gerst. Fyrir síðustu þingkosningar lét formaður Framsóknarflokksins samþykkja í flokknum,að flokkurinn gerði kröfu til þess að fá forsætisráðherra eftir þingkosningarnar. Úr því að Halldór stefndi ekki að því að verða forsætisráðherra hefur það átt að vera einhver annar forustumaður Framsóknar,kannski Guðni Ágústsson! Stundum er eins og stjórnmálamenn þjóðarinnar telji,að almenningur viti ekkert og fylgist ekkert með.
Við stólaskiptin hældi formaður Framsóknar formanni Sjálfstæðisflokksins á hvert reipi og sagði ,að honum hefði tekist mjög vel forusta landsstjórnarinnar í langan tíma. Var helst á formanni Framsóknar að heyra,að allt sem vel hefði gengið í landinu undanfarin ár væri formanni Sjálfstæðisflokksins að þakka. Svo langt gekk formaður Framsóknar í að hæla formanni Sjálfstæðisflokksins,að hann hældi honum einnig fyrir stjórn Reykjavíkurborgar! Í hug kom tillaga Hannesar Hólmsteins Gissurarsonar þess efnis,að rétt væri að sameina Sjálfstæðisflokkinn og Framsóknarflokkinn!
Björgvin Guðmundsson
Birt í Fréttablaðinu 20.september 2004 |