|
Bolabrögð Framsóknarforustufimmtudagur, 11. nóvember 2004
|
Fréttablaðið skýrir frá því 11.nóvember,að samkomulag hafi verið orðið milli borgarfulltrúa R-listans um,að Dagur B.Eggertsson yrði nýr borgarstjóri í stað Þórólfs Árnasonar.En þá hafi forusta Framsóknarflokksins lagst gegn því á þeim forsendum,að R-listinn ætti ekki að ala upp nýjan leiðtoga fyrir Samfylkinguna.Er þetta ekki í fyrsta sinn,sem forusta Framsóknar beitir bolabrögðum gegn R-listanum. Hún gerði það einnig þegar Ingibjörg Sólrún Gísladóttir tilkynnti,að hún ætlaði að bjóða sig fram til varasætis á þinglista Samfylkingarinnar í Reykjavík. Þá krafðist forusta Framsóknar þess, að Ingibjörg Sólrún léti af borgarstjóraembættinu.Linnti forusta Framsóknar ekki látum fyrr en Ingibjörgu Sólrúnu hafði verið bolað úr embætti borgarstjóra en hún var reiðubúinn til þess að gegna borgarstjóraembættinu út kjörtímabilið með varaþingmennsku.Forusta Framsóknar átti síðan stóran þátt í því að fá Þórólf Árnason til starfa í stað Ingibjargar.
Lét Alfreð beygja sig?
Alfreð Þorsteinsson hefur fengið orð fyrir það,að vera sjálfstæður og að láta flokksforustuna ekki beygja sig. T.d. stóð hann sig mjög vel í fjölmiðlamálinu og átti þátt í því að stöðva hið illræmda fjölmiðlafrumvarp. Kunni formaður Framsóknarflokksins honum litlar þakkir fyrir. Því veldur það undrun, ef hann hefur nú látið forustu Framsóknar beygja sig við val á nýjum borgarstjóra. Dagur B.Eggertsson skýrir frá því í viðtali við Fréttablaðið,að Alfreð Þorsteinsson hafi komið að máli við sig og spurt hann hvort hann vildi taka við embætti borgarstjóra.Kvaðst Dagur hafa verið upp með sér vegna þessa.Allir borgarfulltrúar voru reiðubúnir að samþykkja Dag en þá kippti flokksforusta Framsóknar í taumana. Anna Kristinsdóttir gugnaði strax. Því verður ekki trúað,að Alfreð hafi einnig gugnað eða hvað?
Björgvin Guðmundsson | Deila � Facebook |
N�justu pistlarnir: Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018 Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018 Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018 Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017 Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017 Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017 Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017 Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017 Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017 Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017 Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016 Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016 Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016 Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016 Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016 Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016 Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016 Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016 Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016 Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016 Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016 Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016 Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016 Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016 Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016 76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016 Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016 Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016 Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016 Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016
|
|