Talsmenn ríkisstjórnarinnar hafa talað mikið um það undanfarið,að þeir séu að veita öryrkjum gífurlega miklar hækkanir á lífeyri. Einkum hefur Pétri Blöndal,alþingismanni, orðið tíðrætt um það. Er ljóst,að honum finnst ,að öryrkjar séu að fá fullmikið og að þetta verði erfitt fyrir skattgreiðendur!Það er því fróðlegt að líta á hvað öryrkjar eru í rauninni að fá.
6 þús. á mán. hafðar af 35 ára öryrkjum
Samkvæmt frumvarpi Jóns Kristjánssonar,heilbrigðisráðherra, fá yngstu öryrkjarnir,þeir sem verða öryrkjar 18 ára, mesta hækkun á grunnlífeyri eða tvöföldun,þ.e. hækkun um 20.613 kr. á mánuði en þeir greiða síðan skatt.Hækkunin fer síðan minnkandi og verður engin hjá elstu öryrkjum, þeim sem verða öryrkjar 67 ára.
Sem dæmi má nefna að þeir sem verða öryrkjar 49 ára fá aðeins 516 kr. hækkun á grunnlífeyrinum. En samkvæmt samkomulaginu við Öryrkjabandalagið frá 25.mars sl. áttu þeir að fá tæplega 8 þús. kr. hækkun.Þeir sem verða öryrkjar 35 ára fá 8 þús kr. hækkun á grunnlífeyri en samkvæmt samkomulaginu áttu þeir að fá 14 þús kr. hækkun. Og þannig mætti áfram telja.Síðan segir ríkisstjórnin, að hún sé að standa við samkomulagið við öryrkja!
Valtað yfir Jón Kristjánsson
Óskiljanlegt er,að Jón Kristjánsson,heilbrigðisráðherra,skuli hafa svikið samkomulagið við öryrkja. Hann var áður talinn heiðarlegur stjórnmálamaður en eftir að ljóst var,að hann ætlaði ekki að standa við samkomulagið við öryrkja hefur álit almennings á honum minnkað. Hann er nú kominn í hóp þeirra stjórnmálamanna,sem rangtúlka og hártoga málin til þess að fá niðurstöðu sér í hag.Jón var búinn að viðurkenna,að það vantaði 500 mill.kr. til þess að standa við samkomulagið við öryrkja.Hann sagði þá,að samkomulagið yrði efnt að 2/3 nú en 1/3 eftir ár.En samkomulagið átti að koma að fullu til framkvæmda 1.janúar n.k. En síðan venti hann sínu kvæði í kross og fór að halda því fram,að það væri verið að efna samkomulagið að fullu.Jón var beygður af Sjálfstæðisflokknum og öðrum ráðherrum Framsóknar.Það var valtað yfir hann.
Verður nýtt dómsmál?
Öryrkjabandalagið útilokar ekki að fara með svikin á samkomulaginu fyrir dómstólana. Ljóst,að um gjörunnið mál er að ræða. Það er alveg ljóst í samkomulaginu hvað átti að hækka grunnlífeyri öryrkja mikið. Það liggur alveg fyrir hvað hver aldurshópur átti að fá. Það eina sem ekki lá alveg fyrir var hvað framkvæmdin mundi kosta. En það er eins og með aðra kjarasamninga. Það er ekki alltaf alveg ljóst hvað framkvæmd þeirra kostar. Þeir eru ekki skornir niður þó kostnaður fari eitthvað fram úr áætlun.Ríkisvaldið meðhöndlar öryrkja öðru vísi en aðra þegna þessa lands. Kjarasamningar við opinbera starfsmenn og aðra launþega eru hafðir í heiðri. En kjarasamningur við öryrkja er svikinn.
Björgvin Guðmundsson
Viðskiptafræðingur
Birt í Morgunblaðinu 10.desember 2003
|