|
Sameina á bótaflokka almannatrygginga án kjarabóta!mánudagur, 23. júlí 2012
| Það var skýrt frá því með miklum lúðrablæstri í fjölmiðlum fyrir nokkru, að náðst hefði einróma samkomulag í starfshóp um endurskoðun almannatrygginga. Efni samkomulagsins var rakið. Sameina átti bótaflokka án kjarabóta! Þetta var básúnað út enda þótt sagt væri, að tillögur starfshópsins væru trúnaðarmál! Formaður starfshópsins taldi það »heilmikinn árangur«, að samkomulag hefði náðst í starfshópnum um ellilífeyri. Öryrkjabandalag Íslands er þó ekki aðili að þessu samkomulagi. Bandalagið setti fram kröfur um, að byrjað yrði á því að bæta kjör lífeyrisþega áður en gengið yrði frá tillögum um sameiningu bótaflokka. Kjaramálanefnd Landssambands eldri borgara ályktaði í sömu veru í nóvember 2011. Þar sagði, að markmið endurskoðunar laga um almannatryggingar ætti að vera að bæta kjör aldraðra og öryrkja en ekki eingöngu að sameina bótaflokka og gera tilfærslur innan kerfisins. Kjaranefnd Félags eldri borgara í Reykjavík ályktaði á sama hátt.
Lítið dregið úr skerðingum
En um hvað náðist nákvæmlega samkomulag í starfshópnum um endurskoðun almannatrygginga? Jú, það náðist samkomulag um að sameina grunnlífeyri, heimilisuppbót og tekjutryggingu (nýi bótaflokkurinn verður 155 þús. á mánuði). Þar með verður grunnlífeyrir sem slíkur afnuminn, nái þessar tillögur fram að ganga! Einnig var samþykkt að afnema sérsök frítekjumörk. Og afnema á sérstaka framfærsluuppbót (lágmarksframfærslutryggingu), þ. e. fella á hana inn í hinn nýja sameinaða bótaflokk á 5 árum. Ákveðið var einnig að draga örlítið úr tekjutengingum, þ. e. minnka skerðingar. En hversu mikið vigta minni skerðingar, sem boðaðar eru? Þær vigta sáralítið. Lífeyrisþegar eru mikið betur settir með að fá sömu reglu og gilti fyrir 1. júlí 2009 um útreikning grunnlífeyris svo og að fá 110 þús. kr. frítekjumark á mánuði fyrir atvinnutekjur eins og þeir höfðu fyrir þann tíma. Þorri þeirra ellilífeyrisþega, sem fengu greitt úr lífeyrissjóði, fékk greiddan grunnlífeyri frá almannatryggingum fyrir 1. júlí 2009, þar eð lífeyrir frá lífeyrissjóði skerti ekki grunnlífeyri þess hóps. Þessa reglu um greiðslur vilja lífeyrisþegar fá í gildi á ný. Formaður LEB, Jóna Valgerður Kristjánsdóttir, flutti breytingatillögu í starfshópnum um TR, þess efnis að halda ætti grunnlífeyri. En síðan dró hún tillöguna til baka og flutti bókun í staðinn. En það er stefnumál LEB, að allir eigi að hafa grunnlífeyri.
Talsmenn starfshópsins gera mikið úr því að draga eigi úr tekjuskerðingum á 5 ára tímabili. En athugun leiðir í ljós, að hér er um mjög litlar upphæðir að ræða. Ellilífeyrisþegar, sem fá lífeyri frá lífeyrissjóðum, mundu »hagnast« að hámarki um 14 þús. kr. á næsta ári vegna minni skerðinga tryggingabóta. Það eru öll ósköpin.
Átti að byrja á því
að leiðrétta kjörin
Ég er eindregið þeirrar skoðunar, að byrja eigi á því að leiðrétta kjör aldraðra og öryrkja vegna krepputímans áður en farið verði í sameiningu bótaflokka og hagræðingu. Lífeyrisþegar drógust aftur úr í launaþróuninni á krepputímanum. Þeir fengu ekki hliðstæðar kjarabætur og láglaunafólk fékk. Til þess að jafna metin þarf að hækka lífeyri um a. m. k. 20% . ÖBI telur að hækka þurfi um 30%. Þegar útreikningar starfshóps TR fyrir árið 2013 eru skoðaðir, kemur í ljós, að ekki er gert ráð fyrir neinum kjarabótum til handa öldruðum og öryrkjum á því ári umfram það, sem samið var um í kjarasamningunum 2011. Það eru engar leiðréttingar sjáanlegar vegna kjaraskerðingar krepputímans.
Hvar eru kjarabæturnar?
Ég óttast það, að meining velferðarráðuneytisins sé að sameina nokkra bótaflokka almannatrygginga og draga örlítið úr tekjutengingum en ýta um leið öllum kröfum um kjarabætur lífeyrisþega út af borðinu. Ef þetta er rétt, verður kjaraskerðingin frá 1. júlí 2009 ekki afturkölluð en því var lofað, þegar hún var lögleidd, að um tímabundna kjaraskerðingu væri að ræða, sem mundi gilda í takmarkaðan tíma og voru 3 ár nefnd í því sambandi. Hætt er við, að velferðarráðuneytið ætli að svíkja þetta fyrirheit.
Svara fyrir sig í kjörklefanum
Alþingiskosningar eru í nánd. Eldri borgarar láta ekki bjóða sér það, að fyrirheit,sem gefin voru í upphafi kreppunnar, verði svikin. Þeir krefjast þess, að kjaraskerðingin frá 1. júlí 2009 verði afturkölluð og þeir krefjast þess, að kjör eldri borgara verði leiðrétt vegna þeirrar kjaraskerðingar, sem þeir sættu í kreppunni. Ef kröfur eldri borgara verða hundsaðar geta þeir svarað fyrir sig í kjörklefanum í alþingiskosningunum næsta vor.
Björgvin Guðmundsson
Birt í Mbl. 23.júlí 2012
| Deila � Facebook |
N�justu pistlarnir: Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018 Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018 Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018 Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017 Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017 Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017 Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017 Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017 Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017 Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017 Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016 Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016 Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016 Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016 Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016 Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016 Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016 Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016 Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016 Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016 Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016 Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016 Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016 Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016 Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016 76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016 Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016 Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016 Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016 Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016
|
|