Lög um skaðlegar samkeppnishömlur voru fyrst sett hér á landi 1978 fyrir frumkvæði Ólafs Jóhannessonar þáverandi viðskiptaráðherra. Voru lögin samin af nefnd sem skipuð var af viðskiptaráðherra en í nefndinni voru Björgvin Guðmundsson,skrifstofustjóri í viðskiptaráðuneytinu,Georg Ólafsson,verðlagsstjóri og Gylfi Knudsen lögfræðingur. Lögin voru samin að norrænni fyrirmynd.
Harðari ákvæði um bann gegn skaðlegum samkeppnishömlum voru sett með nýjum lögum um þessi efni 1993. Þegar olíufélögin voru sökuð um að hafa haft með sér ólögmætt verðsamráð afsökuðu þau sig með því að lögin frá 1993 hefðu verið svo ný,að þau hefðu ekki verið búin að aðlaga sig að nýju lagaumhverfi.En þetta var kattarþvottur, þar eð fyrstu lögin um þessi efni tóku gildi þegar 1978. Olíufélögin höfðu því enga afsökun.
GAMALT TÍSKUORÐ
Nú ræðir forsætisráðherra um að setja þurfi lög um hringamyndanir. Hringamyndun er gamalt tískuorð á þessu sviði og í rauninni er hér um sama hlutinn að ræða,skaðlegar samkepnishömlur og skaðlegar hringamyndanir. Þetta er sami hluturinn. Þetta snýst um það hvort samkeppnishömlur eru skaðlegar neytendum eða ekki og hvort vera þurfi lagaheimildir til þess að ógilda samtök og samráð,sem valda skaðlegum samkeppnishömlum. Þetta snýst einnig um það hvort heimildir eigi að vera í lögum til þess að leysa upp samsteypur,sem verða markaðsráðandi og geta valdið skaðlegum samkeppnishömlum.
Það kann vel að vera að það sé rétt hjá forsætisráðherra að setja þurfi lög um hringamyndanir. En það getur einnig verið að herða megi núgildandi samkeppnislög og setja ný harðari ákvæði inn í þau.
HÉR HAFA VERIÐ MARKAÐSRÁÐANDI FYRIRTÆKI
Hér á landi hafa um langt skeið verið markaðsráðandi fyrirtæki starfandi eða fyrirtæki með sterka stöðu á markaðnum eins og Eimskipafélag Ísland,Flugleiðir,olíufélögin,tryggingafélögin jafnvel Morgunblaðið o.fl. og áður SÍS. Sjálfstæðismenn ræddu aldrei um það,að gera þyrfti harðar ráðstafanir gegn þessum fyrirtækjum nema þá helst gegn SÍS.En nú vakna Sjálfstæðismenn allt í einu og telja að setja þurfi markaðnum og markaðsfrelsinu skorður. Það læðist að manni sá grunur,að þetta sé vegna þess,að nú eru komin til sögunnar ný fyrirtæki,sem ekki eru Sjálfstæðismönnum eins þóknanleg eins og þau eldri,t.d. Baugur og blöð þau sem Baugur á.
Björgvin Guðmundsson |