|
Geir Haarde vill Framsókn áfram í stjórnmánudagur, 26. mars 2007
| Morgunblaðið birti stórt viðtal við Geir Haarde,forsætisráðherra, á sunnudag.Þar er Geir m.a. spurður um hvaða samstarfsaðila í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokkurinn vilji helst.Geir svarar: Framsókn. Svar Geirs kemur ekki á óvart, þar eð Framsókn hefur verið þæg í taumi allan þann tíma,sem hún hefur verið í stjórn með íhaldinu.Framsóknarflokkurinn hefur verið sannkölluð hækja í stjórnarsamstarfinu. Og nú er svo komið, að Framsókn er að þurrkast út hvað fylgi varðar.Kjósendur eru að refsa Framsókn fyrir langa íhaldsþjónkun.
Aldraðir og öryrkjar “gleymdust”
Geir Haarde segir í viðtalinu við Mbl., að hann vilji halda áfram að bæta lífskjör Íslendinga. En hvernig hefur það starf til tekist fram til þessa? Það hefur tekist þannig, að kjör og aðstaða atvinnurekenda og fjármagnseigenda hefur verið stórbætt. Tekjuskattur fyrirtækja hefur verið lækkaður í 18% á sama tíma og skattur launþega er 35%. Fjármagnseigendur greiða aðeins 10% skatt og greiða ekkert meira til samfélagsins. Stjórnarflokkarnir hafa “ gleymt” öldruðum og öryrkjum,þegar þeir hafa verið að bæta kjör annarra í þjóðfélaginu. Aldraðir og öryrkjar hafa setið eftir. Loforð,sem gefið var 1995 um að þessir hópar fengju sömu hækkun á lífeyri sinn og launafólk,var svikið. Öryrkjar þurftu að leita til Hæstaréttar til þess að fá lögbundnar lífeyrisgreiðslur.Það er sama hvar borið er niður: Stjórnarflokkarnir hafa níðst á láglaunahópum þjóðfélagsins og þeim,sem minna mega sín.Þessir flokkar þurfa að fá frí í kosningunum 12.mai.
Björgvin Guðmundsson | Deila � Facebook |
N�justu pistlarnir: Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018 Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018 Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018 Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017 Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017 Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017 Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017 Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017 Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017 Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017 Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016 Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016 Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016 Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016 Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016 Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016 Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016 Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016 Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016 Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016 Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016 Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016 Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016 Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016 Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016 76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016 Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016 Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016 Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016 Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016
|
|