Það er mjög ranglátt,að ellilífeyrir skuli vera skattlagður. Ellilífeyrir ætti að vera skattfrjáls,bæði lífeyrir frá almannatryggingum og frá lífeyrissjóðum. Segja má,að hér sé um tvísköttun að ræða.Á meðan menn eru í fullri vinnu greiða þeir skatta af atvinnutekjum sínum til ríkis og sveitarfélaga og byggja upp sjóð í almannatryggingakerfinu til efri ára og vegna slysa og áfalla,sem geta borið við á lífsleiðinni.Það er því algerlega út í hött,að menn séu einnig látnir greiða skatta af ellilífeyrinum síðustu ár ævi sinnar.Hið sama gildir um lífeyri úr lífeyrissjóðum.Sá lífeyrir ætti einnig að vera skattfrjáls eða a.m.k. ekki með hærri skatti en 10%,þ.e. eins og fjármagnstekjur.
Reynt að fá skattlagningunni hnekkt
Einn félagsmanna Félags eldri borgara í Reykjavík fór í prófmál til þess að fá skattlagningu lífeyris úr lífeyrirsjóði hnekkt.Málinu var vísað frá í undirrétti. Lífeyrir úr lífeyrissjóði hefur verið skattlagður með 38,5 % skatti eins og hverjar aðrar atvinnutekjur.Það er alveg fráleitt.Í tengslum við framangreint prófmál reiknaði tryggingastærðfræðingur út hve mikill hluti af útborguðum lífeyri stefnanda væri uppsafnaðir vextir og verðbætur.Útreikningurinn leiddi í ljós,að uppsafnaðir vextir og verðbætur reyndust 81% af lífeyrinum.Að sjálfsögðu ætti sá hluti lífeyrisins ekki að bera hærri skatt en 10% eins og aðrar fjármagnstekjur.Lögfróðir menn telja,að ef í framangreindu prófmáli hefði verið farið fram á 10% skattlagningu á 81% lífeyris þá hefði málið unnist. En farið var fram á ,að allri skattlagningu lífeyrisins yrði hnekkt. Ég tel hins vegar,að allur lífeyrir úr lífeyrissjóðum ætti að vera skattfrjáls, bæði með hliðsjón af því að 4/5 hlutar lífeyrisgreiðslna eru uppsafnaðir vextir og verðbætur og með hliðsjón af því,að lengst af hefur sú regla gilt,að lífeyrisgreiðslur væru skattlagðar að fullu eins og atvinnutekjur.Á meðan sú regla gilti var um tvísköttun að ræða og svo er enn að verulegu leyti.Mín varatillaga er sú,að allur lífeyrir úr lífeyrissjóðum beri 10% vexti.
Lífeyrir aldraðra er lágur
Mikill hluti aldraðra hefur mjög lágar greiðslur úr almannatryggingum og nýtur lítils lífeyris úr lífeyrissjóði. Þetta á við verkamenn,bændur,iðnaðarmenn,einyrkja o.fl.Skattlagning íþyngir mjög þessum bótaþegum. Það er því brýn nauðsyn,að skattlagning ellilífeyris verði afnumin.
Björgvin Guðmundsson
Birt í Morgunblaðinu 23.des. 2005 |