Ríkisstjórn Samfylkingar og VG hefur nú verið við völd í rúmt 1 1/2 ár.En áður var hér minnihlutastjórn sömu flokka í 1 ár.Aðalverkefni ríkisstjórnarinnar hefur verið endurreisn íslensks efnahagslífs eftir hrun banka og fyrirtækja,sem varð hér haustið 2008.Mér finnst ríkisstjórninni hafa tekist nokkuð vel að endurreisa efnahagslífið og þar með bankana.Vextir hafa lækkað mikið, verðbólgan er á hraðri niðurleið, atvinnuleysið er farið að minnka, góður afgangur er á vöruskiptajöfnuðinum í stað mikils halla áður og endurreisn bankanna hefur tekist vel.Hins vegar er ég mjög óánægður með það hvernig ríkisstjórnin hefur haldið á velferðarmálunum.Félagshyggjumenn bundu vonir við, að ríkisstjórn jafnaðarmanna mundi standa vörð um almannatryggingarnar og heilbrigðiskerfið.En þær vonir hafa brugðist.Í velferðarmálum hefur ríkisstjórnin hagað sér eins og hrein íhaldsstjórn.Ríkisstjórnin lýsti því yfir við valdatöku sína, að hún ætlaði að koma hér á velferðarsamfélagi að norrænni fyrirmynd en það hafa reynst örgustu öfugmæli.
Sársaukafullar aðgerðir í ríkisfjármálum
Verkefni ríkisstjórnarinnar er erfitt. Hún þarf að rétta af fjárhag ríkisins á 3-4 árum..Sjálfstæðisflokkurinn og Framsókn bera höfuðábyrgð á bankahruninu með klaufalegri einkavæðingu bankanna og lélegri efnahagsstjórn.Tekjur ríkisins hríðféllu við efnahagshrunið 2008. Það kom í hlut núverandi stjórnarflokka að gera sársaukafullar aðgerðir í ríkisfjármálum. Það hefur verið gert bæði með skattahækkunum og niðurskurði ríkisútgjalda.Ég tel að haldið hafi verið nokkuð vel á skattahækkunum. Þeim lægst launuðu hefur verið hlíft..Hins vegar hefur ekki tekist eins vel með niðurskurð ríkisútgjalda.Ríkisstjórnin lofaði að standa vörð um velferðarkerfið en hún hefur ekki staðið við það. Strax 1.júlí 2009 var ráðist á almannatryggingarnar og m.a. skornar niður bætur aldraðra og öryrkja.Gerði þáverandi félagsmálaráðherra þetta með mjög skömmum fyrirvara.Kom það mjög illa við lífeyrisþega ,ekki hvað síst öryrkja.Ég fullyrði,að það hefði mátt sleppa niðurskurði í almannatryggingum.Þetta voru 4-5 milljarðar á ársgrundvelli eða svipuð upphæð og nam auknum og óvæntum tekjum ríkissjóðs vegna aukinna skerðinga tryggingabóta af völdum meiri fjármagnstekna lífeyrisþega en reiknað hafði verið með.Árásin á kjör aldraðra og öryrkja var því óþörf..
Laun hækka-lífeyrir lækkar
Láglaunafólk á almennum vinnumarkaði hefur fengið 16% kauphækkun frá ársbyrjun 2009..Á sama tíma hefur lífeyrir aldraðra og öryrkja ekki hækkað um eina krónu.Raungildi lífeyris hefur því lækkað vegna verðbólgunnar.En láglaunafólk hefur getað varist verðbólgunni vegna þeirra launahækkana sem það hefur fengið.Hér gætir mikils misréttis.Og sennilega er hér um brot á jafnréttisákvæðum laga að ræða.Það var áður lögbundið að lífeyrir ætti að hækka í samræmi við hækkun launa láglaunafólks.Það er liðin tíð.. Laun eru hækkuð en lífeyrir rýrnar og ráðist er á kjör lífeyrisþega.Þetta gerist á valdatíma félagshyggjustjórnar.Lífeyrisþegar hafa ekki verkfallsvopn..Þeir verða að treysta á að verkalýðshreyfingin gæti hagsmuna þeirra. Við gerð stöðugleikasáttmálans gleymdust aldraðir og öryrkjar. En nú vill verkalýðshreyfingin bæta úr því. Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ lýsti því yfir fyrir skömmu,að við launahækkanir ætti lífeyrir lífeyrisþega að hækka jafnmikið.
Hjúkrunarrúmum aldraðra fækkað!
Ekki hefur tekist betur til í heilbrigðismálum en á sviði almannatrygginga við niðurskurð útgjalda..Niðurskurður þar hefur verið mjög harkalegur og klaufalegur.Fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2011 var lagt fram með gífurlegum niðurskurði heilbrigðisstofnana. Var skorið svo heiftarlega niður að erfitt er að reka heilbrigðisstofnanir víða úti á landi eftir slíkan niðurskurð.M.a. var fækkað rúmum á hjúkrunarheimilum og hjúkrunardeildum, einkum á Akureyri en það hefur verið stefnumál Samfylkingarinnar að fjölga slíkum rúmum.Hér var mjög klaufalega staðið að málum, þar eð ljóst var,að ríkisstjórnin kæmist aldrei upp með svo harkalegan niðurskurð í heilbrigðisstofnunum úti á landi enda ekki skynsamlegt að ráðast í hann..Heilbrigðisþjónustan flokkast undir velferðarkerfið og því má segja,að ríkisstjórnin hafi ekki aðeins lofað að standa vörð um almannatryggingarnar heldur einnig um heilbrigðiskerfið.Hún verður að standa við hvort tveggja,ef hún ætlar að sitja áfram.
Ekki verður skilist við umfjöllun um ríkisstjórnina án þess að minnast á kvótakerfið og fyrningarleiðina. Allt bendir nú til þess að þetta stóra kosningamál verði svikið.Jafnvel er nú rætt um að úthluta kvótahöfum ( kvótakóngunum) veiðiheimildum til lengri tíma en áður,jafnvel 15-25 ára. Þetta er alger svívirða og mestu kosningasvik í sögu lýðveldisins, ef af verður.Ég veit ekki hver afstaða mín verður til Samfylkingarinnar, ef þessi svik verða framkvæmd. Ég trúi því ekki að svo verði og vona að stuðningsmenn fyrningarleiðarinnar í þingflokki Samfylkingarinnar taki í taumana og afstýri stórslysi
Björgvin Guðmundsson
Birt í Morgunblaðinu 1.desember 2010