Samkvæmt nýrri Gallupkönnun, sem gerð var fyrir Eflingu og Starfsgreinasambandið, hefur verkafólk áhyggjur af löngum vinnutíma.Vinnutíminn er nú til jafnaðar 51 stund á viku hjá verkafólki og hefur lengst um 1 stund frá 1998. Þetta er vissulega mikið áhyggjuefni. Vinnutíminn ætti að styttast en ekki öfugt. Árið 1990 flutti ég tillögu til þingsályktunar á alþingi um styttingu vinnutíma en ég sat þá um skeið á þingi fyrir Alþýðuflokkinn. Tillaga mín hljóðaði svo:” Alþingi ályktar að fela félagsmálaráðherra að semja áætlun um almenna styttingu vinnutíma án skerðingar tekna. Skal ráðherra hafa samráð við aðila vinnumarkaðarins um málið.” Í greinargerð með tillögunni kom fram, að vinnutími hjá ófaglærðu verkafólki væri til jafnaðar 52,7 stundir á viku. Samkvæmt því hefur vinnutíminn sáralítið stytst á þeim 16 árum,sem liðinn eru síðan tillagan var flutt.Í greinargerð með tillögunni lagði ég til, að stytting vinnutímans yrði gerð í áföngum, t.d. á 2-3 árum. En því miður náði tillagan ekki fram að ganga.
Þjóðarsátt um styttingu vinnutíma
Það er mikið hagsmunamál fyrir verkafólk að stytta vinnutímann og tryggja það, að verkafólk geti lifað sómasamlegu lífi af dagvinnu. Vinnutími í raun ætti að mínu mati að vera að hámarki 40 stundir á viku en styttri ef við færum að fordæmi Norðurlanda. Það er sannað mál, að með styttri vinnutíma aukast afköst vinnandi fólks. Langur vinnutími dregur úr afköstum og eykur slysahætta. Stuttur vinnutími er brýnt heilsufarsmál. Ef til vill væri unnt að ná nýrri þjóðarsátt um styttingu vinnutíma án tekjuskerðingar. Það er stórmál.
Stjórnvöld hafa nokkrum sinnum á undanförnum áratugum fjallað um vinnutíma og leiðir til þess að stytta hann.Árið 1987 skipaði þáverandi forsætisráðherra , Þorsteinn Pálsson, nefnd til þess að annast samanburðarkönnun á launum karla og kvenna.Verksvið þeirrar nefndar var síðar víkkað út þannig, að nefndin skyldi gera fjölþætta lífskjarakönnun.Í niðurstöðum nefndarinnar kom fram,að vinnutími hér væri mjög langur og grunnkaup frekar lágt. Sem fyrr segir hefur vinnutíminn lítið styttst síðan.Kaup hefur mjakast upp á við en þó eru kjör lægst launuðu verkamanna enn allt of lág og erfitt að lifa sómasamlegu lífi af því.
Hinn langi vinnutími hér á landi er mikið vandamál og kemur niður á fjölskyldulífi í landinu. Stytting vinnutímans mundi stórbæta fjölskyldulífið og gera foreldrum kleift að eyða meiri tíma með börnum sínum. Öllum er ljóst,að mikil þörf er á því í dag að bæta fjölskyldulífið í landinu.
Mikið styttri vinnutími hjá ESB
Vinnutíminn er mikið styttri á hinum Noðurlöndunum en hér og í löndum Evrópusambandsins er vinnutíminn mikið styttri. Meðalvinnutími í löndum ESB er nú 38,6 stundir á viku.Í Noregi er vinnutíminn mikið styttri en hér en þó getur verkafólk lifað sómasamlega af dagvinnulaununum. Yfirvinna þekkist varla enda mjög erfitt að fá leyfi fyrir yfirvinnu. Í járniðnaðinum í Noregi er vinnutíminn aðeins 33 stundir á viku.Takmarkið hér á að vera að ná vinnutímanum niður eins og á hinum Norðurlöndunum og að hækka laun verkafólks til samræmis við það sem þar tíðkast.
Björgvin Guðmundsson
.
Birt í Fréttablaðinu 16.nóvember 2006
|