Enda þótt enn sé langt til næstu borgarstjórnarkosninga er þegar farið að ræða framtíð Reykjavíkurlistans og raddir heyrast um að tími sé kominn til þess að leggja hann niður. Þessar raddir heyrast einkum úr Framsóknarflokknum en þar hafa alltaf verið einhverjir efasemdarmenn um R-listann. T.d. hefur formaður Framsóknarflokksins,Halldór Ásgrímsson,aldrei verið neitt hrifinn af R-listanum.
Ég tel,að Reykjavíkurlistinn eigi að halda áfram. R-listinn hefur í stórum dráttum staðið sig vel og Reykvíkingar hafa verið ánægðir með listann eins og sést best á því,að listinn hefur sigrað í þrennum borgarstjórnarkosningum.Nýr borgarstjóri hefur nýlega tekið við embætti,Steinunn Valdís Óskarsdóttir, frá Samfylkingunni. Hún hefur farið vel af stað og ef hún stendur sig vel áfram í embætti mun það styrkja R-listann í sessi og auka líkurnar á því,að R-listinn bjóði fram áfram í næstu kosningum.
Gestur Gestsson formaður Framsóknarfélags Reykjavíkur norður lét þau orð falla fyrir skömmu,að leysa ætti upp R-listann og að Framsóknarflokkurinn ætti að bjóða fram sjálfstætt í næstu kosningum. Sagði hann jafnframt að skipta ætti út öllum frambjóðendum til borgarstjórnar og hleypa nýju fólki að. Hér mun hann fyrst og fremst hafa átt við borgarfulltrúa Framsóknar,Alfreð Þorsteinsson og Önnu Kristinsdóttur. Hér er um innanflokksátök að ræða hjá Framsókn í Reykjavík. Framsóknarmönnum gremst hve fylgi Framsóknarflokksins í Reykjavík er lítið en samkvæmt skoðanakönnunum er það aðeins um 5%.Gestur og fleiri Framsóknarmenn vilja kenna Alfreð Þorsteinssyni og öðrum forustumönnum Framsóknar í borgarstjórn um. En Kristinn Snæland,sem var dyggur stuðningsmaður Framsóknar til skamms tíma, segir að sökin liggi hjá formanni Framsóknarflokksins,Halldóri Ásgrímssyni. Hann skrifar grein um mál þetta í Fréttablaðið og gagnrýnir formann Framsóknar fyrir stefnuna í málefnum aldraðra og öryrkja og fyrir stefnuna í Íraksmálinu. Hann telur að stefna formannsins og samstarfið við Sjálfstæðisflokkinn í ríkisstjórn hafi svipt Framsókn fylgi og eina leiðin út úr ógöngunum sé að skipta um “kallinn í brúnni”.Kristinn saknar gömlu Framsóknar,sem aðhylltist samhjálp og félagshyggju.
Ég tel,að sökin á fylgisleysi Framsóknar í Reykjavík liggi ekki hjá borgarfulltrúunum Alfreð og Önnu.Þeir hafa staðið sig ágætlega.Alfreð hefur staðið sig nokkuð vel.Hann hefur fylgt þeirri stefnu,.að Reykjavík eigi að stuðla að aukinni atvinnu og framkvæmdum í Reykjavík og nágrenni og hefur hann beitt sér fyrir því innan Orkuveitu Reykjavíkur að Orkuveitan réðist í umfangsmikla atvinnuuppbyggingu með orkuframkvæmdum til stóriðju.Hann hefur lagst gegn einkavæðingu Orkuveitunnar. Þessi stefna er í anda jafnaðarmanna.Ég tel að vísu að óþarfi hafi verið að byggja svo stórt hús fyrir Orkuveituna og gert var en allur R-listinn ber ábyrgð á því.
Auðvitað kemur að því einhvern tímann, að R-listinn leysist upp og flokkarnir,sem að honum standa bjóði fram sjálfstætt hver fyrir sig. En sá tími er ekki kominn. Rétt er einnig að hafa í huga að þegar það gerist er mikil hætta á því að Sjálfstæðisflokkurinn endurheimti meirihlutann í borgarstjórn. Þegar stuðningsmenn R-listans taka afstöðu til þess hvort R-listinn eigi að halda áfram eða ekki þurfa þeir að hafa þetta atriði í huga. Vilja þeir færa Sjálfstæðisflokknum völdin á ný í Reykjavík. Ef þeir vilja það ekki, eiga þeir að standa með Reykjavíkurlistanum áfram í næstu kosningum.
Björgvin Guðmundsson
Birt í Fréttablaðinu 15.jan. 2005 |