Fyrir alþingiskosningarnar 2003 lofaði Sjálfstæðisflokkurinn mikilli tekjuskattslækkun einstaklinga eða 20 milljarða kr. lækkun,ef flokkurinn héldi völdum.Framsókn var ekkert mjög hrifin af þessu kosningaloforði Sjálfstæðisflokksins en drattaðist með og lofaði einnig miklum skattalækkunum. Forsætisráðherra gaf þá yfirlýsingu í kosningabaráttunni,að mál þetta yrði lagt fyrir alþingi strax haustið 2003. Það var svikið.
Skattar hækkaðir í staðinn!
Á haustþinginu voru ýmsir sérskattar hækkaðir.Námu skattahækkanir hundruðum milljóna króna.Sem sagt í staðinn fyrir 20 milljarða lækkun tekjuskatts einstaklinga,sem lofað var fyrir alþingiskosningarnar, voru skattar í staðinn hækkaðir um mörg hundruð milljóna króna.Það voru efndirnar á kosningaloforðunum. Og ríkisstjórnin virðist telja það í góðu lagi að svíkja stærsta kosningaloforðið og í raun gera þveröfugt við það sem lofað var.
Ekki lagt fyrir vorþingið heldur
Skattalækkun einstaklinga var tekin upp í stjórnarsáttmálann við myndun ríkisstjórnar eftir kosningar sl. ár.Framsókn varð að fallast á þetta mál Sjálfstæðisflokksins enda þótt Framsóknarflokknum væri það óljúft.Ríkisstjórnin sagði,að fyrst vildi hún sjá hvernig kjarasamningar færu en strax í kjölfar þeirra yrði skattalækkunin lögð fyrir alþingi.Kjarasamningar voru afgreiddir í lok vetrar en ekkert bólaði á skattalækkunarfrumvarpi ríkisstjórnarinnar.Ekki var staðið við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um að leggja skattmálin fram strax í kjölfar kjarasamninga.
Ágreiningur í ríkisstjórninni
Á vorþinginu varð þess vart,að ágreiningur var milli stjórnarflokkanna um skattamálin. Framsóknarflokkurinn lagðist gegn því,að skattalækkunarfrumvarpið yrði lagt fram.Geir Haarde, fjármálaráðherra, sagði,að frumvarp um skattalækkanir yrði lagt fram á vorþingi en sú yfirlýsing stóðst ekki. Ekkert frumvarp kom.Sagt var,að a.m.k yfirlýsing yrði flutt á vorþingi um skattalækkanir en hún kom ekki heldur.Hvað var að gerast? Átti að svíkja þetta stærsta loforð stjórnarflokkanna í kosningabaráttunni 2003?Vitað er,að Framsókn er andvíg svo miklum skattalækkunum sem Sjálfstæðisflokkurinn vill framkvæma.Hún óttast mikinn niðurskurð ríkisútgjalda,ef 20 milljarða skattalækkun nær fram að ganga. Hagfræðingar hafa einnig varað við þessum miklu skattalækkunum og bent á,að hún gæti valdið þenslu og verðbólgu.Benda sumir þeirra á,að ef lækka eigi tekjuskatta einstaklinga um 20 milljarða verði að lækka ríkisútgjöld um sömu fjárhæð.
Meiningarlaust kosningaloforð?
Allt bendir til þess,að þetta stóra kosningaloforð hafi verið gefið í þeim tilgangi einum að blekkja kjósendur og tryggja áframhaldandi völd ríkisstjórnarinnar.Ekkert var búið að hugsa um það hvort unnt væri að framkvæma það.Allt bendir nú til,að framkvæmd þess verði tafin og að hluti þess komi til framkvæmda í lok kjörtímabilsins en aðeins hluti.Hætt er við,að loforðið verði að verulegu leyti svikið.
Björgvin Guðmundsson
Birt í Morgunblaðinu 16.júlí 2004 |