|
Ríkisstjórnin hefur brugðist eldri borgurum föstudagur, 6. júní 2008
|
|
Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar hefur brugðist eldri borgurum í kjaramálum þeirra. Stjórnarflokkarnir lofuðu því fyrir síðustu kosningar að bæta kjör aldraðra verulega.Samfylkingin gagnrýndi,að kjör eldri borgara hefðu dregist aftur úr í samanburði við launþega á almennum vinnumarkaði.Samfylkingin sagði: "Lífeyrir eldri borgara hefur ekki fylgt launavísitölu.Þess vegna hafa þeir ekki fengið sömu kjarabætur og aðrir hópar.Samfylkingin ætlar að leiðrétta þetta misrétti og vinna að því að lífeyrir dugi fyrir framfærslukostnaði eins og hann er metinn í neyslukönnun Hagstofu Íslands. Þetta verður gert í áföngum"
Lífeyrir nú aðeins 93,74% af lágmarkslaunum
Þetta hefur ekki verið efnt á fyrsta ári ríkisstjórnarinnar. Það hefur ekki einu sinni verið stigið lítið skref fram á við í þessu efni enn. Það hefur verið stigið til baka, þar eð eldri borgarar fengu ekki sömu hækkun og launþegar á almennum vinnumarkaði við gerð nýrra kjarasamninga í febrúar sl. : Þar vantaði 9100 kr. á mánuði upp á. Laun verkafólks voru hækkuð í 145 þús. á mánuði ( lágmarkstekjutrygging í dagvinnu) eða um 16% en lífeyrir lífeyrisþega var aðeins hækkaður um 7,4% eða í 135.928 kr. Það hefur því orðið gliðnun á ný milli lífeyris og lágmarkslauna. Á sl. ári var lífeyrir almannatrygginga (TR) rúm 100% af lágmarkslaunum en nú er lífeyrir aðeins 93,74% af lágmarkslaunum (lágmarkstekjutryggingu).Þetta er slæm útkoma eftir eins árs stjórnarsetu núverandi ríkisstjórnar.
Hvað hefur ríkisstjórnin nú þegar gert í málefnum aldraðra, sem þegar hefur tekið gildi? Það helsta er þetta: Mest munar um afnám skerðingar tryggingabóta vegna tekna maka en það tók gildi 1.apríl sl. Með dómi Hæstaréttar fyrir 5 árum var ákveðið að óheimilt væri að skerða tryggingabætur öryrkja vegna tekna maka.Strax var talið að hið sama gilti um aldraða.Þrátt fyrir þennan dóm héldu stjórnvöld skerðingu áfram að hluta til. Það var þó alltaf vitað,að það væri aðeins tímaspurnmál hvenær stjórnvöld yrðu að hlíta dómi Hæstaréttar.Samfylkingin var með þetta ákvæði í stefnuskrá sinni um síðustu kosningar.Jóhanna Sigurðardóttir ráðherra hefur örugglega fylgt þessu máli vel eftir. Kostnaður við framkvæmd á þesu máli er áætlaður 1350 millj. á árinu 2008.Vasapeningar vistmanna á hjúkrunarheimilum voru hækkaðir 1.apríl sl. og nemur kostnaður við þá ráðstöfun á þessu ári 35 millj. kr. Áætlað er að kostnaður við ráðstafanir til þess að draga úr ofgreiðslum til lífeyrisþega og vangreiðslum til þeirra nemi 325 mill kr.,í ár.Alls kostnaður við framangreinda þrjá liði 1,7 milljarðar kr. Kostnaður er því fjarri því,sem haldið hefur verið fram.Jafnvel þó kostnaður í ár við 100 þús. frítekjumark á mánuði vegna atvinnutekna lífeyrisþega verði talinn með fer kostnaður aðeins í 2,7 milljarða.Sú ákvörðun að setja 100 þús. kr. frítekjumark vegna atvinnutekna er mjög mikilvæg og í samræmi við stefnumál Samfylkingarinnar en Samfylkingin vildi raunar ,að 100 þús. kr. frítekjumark gilti bæði fyrir lífeyrissjóðstekjur og atvinnutekjur.Í þessu samhengi er rétt að geta um ákvörðun 2007 um að afnema bótaskerðinga 70 ára og eldri vegna atvinnutekna. Það kostar ríkissjóð ekki neitt að draga úr skerðingu tryggingabóta vegna atvinnutekna. Ríkið fær kostnaðinn allan til baka í auknum sköttum af atvinnutekjum.
Það er vissulega mikilvægt að draga ur tekjutenginum bótaþega og það þarf að ganga lengra á þeirri braut. T.d. er enn alveg eftir að setja frítekjumark fyrir lífeyrissjóðstekjur. Það er enn mikilvægara en að setja frítekjumark fyrir atvinnutekjur. Það eru mun fleiri,sem hafa lífeyrissjóðstekjur en þeir sem hafa atvinnutekjur. Frítekjumark vegna lífeyrissjóðstekna mundi því koma mun fleiri lífeyrisþegum að gagni.Ég tel ,að það hafi í lífeyrismálum aldraðra verið byrjað á öfugum enda. Það átti að byrja á því að hækka lífeyri almannatrygginga almennt og að sjálfsögðu mest hjá þeim sem einungis hafa lífeyri frá almannatryggingum.Og samhliða átti að setja frítekjumark vegna lífeyrissjóðstekna.En hvers vegna var ekki byrjað á því að hækka lífeyri. Það er vegna þess að það er mun ódýrara fyrir ríkið að draga úr tekjutengingum. Ljóst er,að Sjálfstæðisflokkurinn hefur ráðið ferðinni í þessu efni. Og aðferðafræðin er öll frá Sjálfstæðisflokknum eða fjármálaráðherra enda þótt málaflokkurinn heyri undir Samfylkinguna. Þess vegna er lífeyrir adraðra ekkert hækkaður almennt og bótaþegar hlunnfarnir í kjölfar kjarsamninga. Þetta er allt komið frá Sjálfstæðisflokknum en Jóhanna lætur þetta yfir sig ganga.Kjósendur Samfylkingarinnar munu ekki sætta sig við það að Sjálfstæðisflokkurin valti þannig yfir Samfylkingunsa í málaflokki,sem heyrir undir Samfylkinguna. Ef lífeyrir aldraðra og öryrkja verður ekki leiðréttur myndarlega fljótlega hefur Samfylkingin ekkert í þessari ríkisstjórn að gera.
Björgvin Guðmundsson
www.gudmundsson.blog.is
-------------------------------------------------------------------------------- |
| Deila � Facebook |
N�justu pistlarnir: Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018 Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018 Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018 Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017 Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017 Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017 Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017 Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017 Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017 Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017 Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016 Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016 Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016 Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016 Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016 Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016 Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016 Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016 Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016 Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016 Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016 Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016 Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016 Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016 Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016 76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016 Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016 Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016 Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016 Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016
|
|