|
Treysti á,að Jóhanna leysi lífeyrismál aldraðramánudagur, 18. júní 2007
|
|
Velferðarmálin og þar á meðal málefni aldraðra koma í hlut Samfylkingarinnar í hinni nýju ríkisstjórn.Þessi mál eru nú færð undir félagsmálaráðuneytið. Hér á árum áður heyrðu almannatryggingarnar undir félagsmálaráðuneytið og þá lagði Alþýðuflokkurinn alltaf áherslu á að fá það ráðuneyti.Hér hefur málum því verið skipað á sama hátt og þá gerðist. Það er vel. Jóhanna Sigurðardóttir er félagsmálaráðherra í nýju stjórninni.Ég treysti henni vel fyrir þessum málum.
Staða aldraðra og öryrkja verði styrkt
Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar segir: Ríkisstjórnin leggur áherslu á að styrkja stöðu aldraðra og öryrkja. Á grundvelli þessa ákvæðis getur Jóhanna unnið og leyst lífeyrismál aldraðra. Hún hefur á alþingi flutt fjölmörg þingmál um afkomutryggingu aldraðra þar sem gert er ráð fyrir að lífeyrir aldraðra hækki í samræmi við hækkun framfærslukostnaðar.Í kosningabaráttunni lagði Samfylkingin fram róttæka stefnuskrá um málefni aldraðra en þar sagði að Samfylkingin vildi leiðrétta lífeyri aldraðra, þar eð hann hefði dregist aftur úr launum annarra hópa í þjóðfélaginu.Í stefnuskránni sagði: Samfylkingin vill leiðrétt þetta misrétti. Og ennfremur sagði, að Samfylkingin vildi, að lífeyrir aldraðra dygði fyrir framfærslukostnaði eins og hann væri metinn í neyslukönnun Hagstofu Íslands.Ég treysti Jóhönnu til þess að framkvæma þetta. Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar segir, að draga eigi úr tekjutengingum og skerðingum bóta í almannatryggingakerfinu.Þetta stefnumið er í samræmi við baráttumál samtaka eldri borgara og Samfylkingarinnar. Ríkisstjórnin vill afnema tekjutengingu launatekna 70 ára og eldri við lífeyri almannatrygginga og stefna að hækkun fritekjumarks vegna atvinnutekna fyrir aldurshópinn 67-70 ára. Það er ekki gott að ríkisstjórnin búi til ný aldursmörk fyrir ellilífeyrisþega.. Fólk fer á eftirlaun 67 ára og margir hætta þá í vinnu. M.a. hafa þeir hætt vegna þess að svo mikið hefur farið í skatt af tekjum þeirra og vegna mikillar skerðingar á tryggingabótum þeirra. Eftir að ellilíeyrisþegar hætta að vinna getur verið erfitt að byrja á ný síðar.Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar segir, að afnema eigi skerðingar tryggingabóta vegna launatekna maka ,70 ára og eldri.Hér eru einnig búin til ný aldursmörk. Ellilífeyrisaldur er 67 ára og því á að afnema skerðingu tryggingabóta vegna launatekna maka frá 67 ára aldri en ekki síðar.Einnig segir í stefnuyfirlýsingunni, að skoða eigi hvort undansskilja megi hluta af lífeyrissjóðstekjum eldri borgara skerðingum í almannatryggingakerfinu.Það var í kosningastefnuskrá Samfylkingarinnar, að lífeyrisþegar ættu að geta fengið 100 þúsund króna lífeyrisjóðstekjur án skerðingar tryggingabóta.Verður að ætla að Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra muni reyna að tryggja framgang þess máls.
Hraðað byggingu hjúkrunarrýma
Samfylkingin lagði mikla áherslu á það fyrir kosningarnar að eyða biðlistum eldri borgara eftir hjúkrunarrými svo og að tryggja sem flestum einbýli á hjúkrunarheimilum.Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar segir,að hraða beri uppbyggingu 400 hjúkrunarrýma fyrir aldraða og að einbýlum verði fjölgað.Einnig á að efla sólarhringsþjónustu fyrir aldraða og auka einstaklingsmiðaða þjónustu.
Það eru mörg góð ákvæði í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um málefni aldraðra en önnur vantar. T.d. vantar ákvæði um að lækka skatt á lífeyrissjóðstekjum. Ekki ætti að vera hærri skattur en 10% á þann hluta lífeyrissjóðstekna,sem telst fjármagnstekjur Að þeirri breytingu ber að vinna.
Björgvin Guðmundsson
Birt í Morgunblaðinu 18.júní 2007 |
| Deila � Facebook |
N�justu pistlarnir: Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018 Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018 Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018 Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017 Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017 Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017 Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017 Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017 Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017 Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017 Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016 Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016 Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016 Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016 Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016 Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016 Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016 Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016 Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016 Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016 Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016 Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016 Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016 Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016 Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016 76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016 Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016 Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016 Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016 Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016
|
|