Allir stjórnmálaflokkar lofuðu eldri borgurum verulegum kjarabótum fyrir síðustu alþingiskosningar.Alþingi hefur komið saman eftir kosningar en engin hækkun á lífeyri aldraðra hefur átt sér stað.Miðað við yfirlýsingar stjórnmálaflokkanna fyrir síðustu kosningar um kjarabætur til handa öldruðum hefði lífeyrir eldri borgara frá almannatryggingum átt að hækka strax eftir sumarþingið.
Lífeyrir aldraðra einhleypinga frá almannatryggingum er nú 126 þúsund á mánuði fyrir skatta eða 113 þúsund eftir skatta.Hér er miðað við þá sem ekki fá lífeyri úr lífeyrissjóði.Það lifir enginn sómasamlegu lífi af 113 þúsund krónum á mánuði. Húsnæð'iskostnaður getur verið allt að 80 þúsund krónur á mánuði og lyfjakostnaður er mjög hár hjá eldri borgurum og hefur hækkað mikið. Lyfjakostnaður er mikið hærri hér á landi en í grannlöndum okkar,Hagstofan kannar reglulega neysluútgjöld heimilanna í landinu og einstaklinga einnig. Samkvæmt neyslukönnun Hagstofunnar,sem birt var í lok sl. árs, nema meðaltalsneysluútgjöld einstaklinga
210 þúsung krónum á mánuði. Skattar ekki meðtaldir.Miðað við lífeyri almannatrygginga til aldraðra einstaklinga vantar því hátt í 100 þúsund á mánuði upp á að lífeyrir almannatrygginga dugi til framfærslu samkvæmt neyslukönnun Hagstofunnar.Jafnvel þó aldraðir hafi einhvern lítilsháttar lífeyri úr lífeyrissjóði hækkar ráðstöfunarupphæðin lítið þar eð svo mikið fer í skatta og skerðingar.Allar tekjur ellilífeyrisþega úr lífeyrissjóði valda skerðingu á lífeyri almannatrygginga. Það er hróplegt ranglæti. Lífeyriír úr lífeyrissjóði á að vera hrein viðbót við lífeyri almannatrygginga. Við eigum þessa peninga og þeir eiga ekki að valda neinum skerðingum á tryggingabótum. Lífeyrir ætti einnig að vera skattfrjáls. Í Svíþjóð fá ellilifeyrisþegar óskertan lífeyrir úr almannatryggingum þó þeir hafi lífeyri úr lífeyrissjóði. Þar eru engar skerðingar hvorki vegna atvinnutekna né tekna úr lífeyrissjóði.Ef Svíar hafa efni á að gera það ættu Íslendingar einnig að hafa efni á því.
Þegja þunnu hljóði
Ekkert hefur heyrst frá stjórnmálamönnum um hækkun á lífeyri aldraðra frá því að kosið var til alþingis.Það er eins og kjaramál aldraðra séu gleymd um leið og búið er að kjósa.Í stjórnarsáttmálanum segir að styrkja eigi stöðu aldraðra.Það eina sem ríkisstjórnin hefur gert í málefnum aldraðra frá kosningum er að segja við þá sem orðnir eru 70 ára: Farið þið út að vinna.Ef þið gerið það skulum við ekki skerða tryggingabætur almannatrygginga.En þetta hrekkur skammt. Í fyrsta lagi þurfa menn að vera heilsugóðir til þess að fara á ný út á vinnumarkaðinn og því miður er heilsan farin að gefa sig hjá mörgum,sem, komnir eru yfir sjötugt. Og í öðru lagi fá þeir sem eru 67-70 ára ekki sömu meðferð og 70 ára og eldri að þessu leyti. Þeir sem eru 67-70 ára sæta áfram skerðingutryggingabóta ef þeir eru á vinnumarkaðnum.
Eldri borgarar munu ekki sætta sig við þessa meðferð. Þeir vilja jafnrétti fyrir alla ellilífeyrisþega. Þeir eiga allir að njóta sömu kjara og sömu meðferðar. Eldri borgarar krefjast hærri lífeyrisstrax í samræmi við loforð stjórnmálaflokkanna fyrir kosningar.
Málefni almannatrygginga heyra enn undir heilbrigðisráðuneytið. Þau munu færast undir félagsmálaráðuneytið um næstu áramót.Það á ekkiað skipta máli í þessu sambandi. Ríkisstjórnin segist vilja bæta stöðu aldraðra og bæta kjör þeirra sem minna mega sín. Á grundvelli stjórnarsáttmálans er því strax unnnt að hækka lífeyri eldri borgara svo þeir geti lifað mannsæmandi lífi.Heilbrigðisráðherra og félagsmálaráðherra ættu að geta komið sér saman um hækkunlífeyris aldraðra strax í haust.
Það kemur ekki til greina að mínu mati að draga kjarabætur eldri borgara á þeim grundvelli að ætlunin sé að færa málefni almannatrygginga milli ráðuneyta. Að vísu er það mjög undarlegt,að málefni almannatrygginga skyldu ekki strax viðmyndun ríkisstjórnarinnar flutt í félagsmálaráðuneytið.A.m.k. hefðu tryggingamálin strax átt að heyra undir félagsmálaráðherra enda þótt eitthvað hefði dregist að flytja málin milli ráðuneyta.
Við eldri borgarar viljum að staðið verði strax ið kosningaloforðin og lífeyrir aldraðra hækkaður myndarlega strax i haust. Sú hækkun þolir enga bið.
Björgvin Guðmundsson |