|
Fyrna á aflaheimildir á 15-20 árumföstudagur, 2. desember 2011
|
Jóhanna Sigurðardóttir,forsætisráðherra,ræddi auðlindamálin í áramótaávarpi sínu um sl. áramót.Henni fórust m.a. svo orð: Auðlindir sjávar,orkan í iðrum jarðar og þau verðmæti, sem fólgin eru í vatninu,jafnt heitu sem köldu,eiga að vera sameign þjóðarinnar og þannig þarf að ganga frá málum að arðurinn renni með sanngjarnari hætti en verið hefur til allra Íslendinga.” Einar K.Guðfinnsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins túlkar þessi ummæli þannig í Mbl., að forsætisráðherra vilji,að nýtingarrétti orkuauðlinda og fiskveiðiauðlindarinnar sé skipað með sambærilegum hætti.Ekki er ég sammála þeirri túlkun. Forsætisráðherra vill, að arðurinn af sjávarauðlindinni renni með sanngjarnari hætti en áður til Íslendinga. Ég er sammmála því.Hins vegar kemur ekki fram í áramótaávarpi forsætisráðherra hvernig hún vilji haga fiskveiðistjórnuninni að öðru leyti.Það verður því að fara í kosningastefnuskrár stjórnarflokkanna til þess að athuga það. Þar kemur fram,að fyrna eigi aflaheimildir á allt að 20 árum.Þjóðin eigi að innkalla allar aflaheimildir.Þetta var stærsta kosningamál Samfylkingarinnar.Það má fyrna aflaheimildir á skemmrri tíma en ekki lengri.Ég hefi ekki trú á því að Samfylkingin hviki frá þessu stærsta kosningamáli flokksins.
Kvótanefndin gaf eftir fyrir LÍÚ
Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra skipaði nefnd eða starfshóp til þess að fjalla um framkvæmd á kosningamáli stjórnarflokkanna, fyrningarleiðinni.Mistök ráðherrans og ríkisstjórnarinnar voru þau að gefa kvótanefndinni það vegarnesti,að hún ætti að ná sáttum við hagsmunaaðila í sjávarútvegi. Það þýddi að nefndin átti m.a. að ræða við LÍÚ.En vitað var að LÍÚ var á móti fyrningarleiðinni.Ljóst var því,að engar sættir yrðu nema annar aðilinn gæfi eftir,ríkisstjórnin eða LÍÚ. Á meðan kvótanefndin hélt fram kosningastefnumáli stjórnarflokkanna var LÍÚ í fýlu og neitaði að mæta í nefndinni. En síðan fór meirihluti kvótanefndarinnar að bakka og gefa eftir og þá mættu fulltrúar LÍÚ á ný. Meirihluti kvótanefndarinnar hafði hins vegar ekkert leyfi til þess að víkja frá fyrningarleiðinni.Þetta var kosningaloforð og sennilega var það einmitt þetta mál sem tryggði stjórnarflokkunum meirihluta á alþingi.Skemmst er frá því að segja, að meirihluti kvótanefndarinnar samþykkti svonefnda samningaleið, sem byggist á því að úthluta útgerðarmönnum veiðiheimildunum til langs tíma( 15-30 ára). Greitt verði auðlindagjald fyrir kvótana.( fyrir nýtingarréttinn). Einnig er lagt til,að landsbyggin fái ákveðnar veiðiheimildir. Þetta er í rauninni verra skipulag en það sem gildir í dag.Þetta er afturför frá ríkjandi kerfi og festir í sessi um ókomna tíð yfirráð kvótagreifanna yfir veiðiheimildunum.Það var ekki það sem vakti fyrir stjórnarflokkunum, þegar þeir lofuðu fyrningarleiðinni.
Uppboð eða úthlutun
En hvernig á að úthluta veiðiheimildum á ný ,ef fyrningarleið er farin? Þar kemur einkum tvennt til greina: 1) Að bjóða upp aflaheimildirnar á frjálsum markaði. 2) að úthluta veiðiheimildum eftir ákveðnum reglum gegn auðlindagjaldi,sem væri ekki málamyndagjald eins og verið hefur heldur raunverulegt gjald.Einnig kemur til greina að fara báðar þessar leiðir. En hvaða leið sem farin verður við endurúthlutun aflaheimilda verður að gæta þess, að nýir aðilar eigi greiðan aðgang inn í greinina og það þarf að tryggja dreifðum sjávarbyggðum hlutdeild í aflaheimildum.Mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna úrskurðaði, að Ísland hefði brotið mannréttindi við úthlutun kvótanna og framkvæmd kvótakerfisins. Gæta verður þess, að framkvæmdin verði þannig í framtíðinni, að ekki verði um mannréttindabrot að ræða.Sanngirni og réttlæti þarf að gilda við úthlutun kvóta og allir að sitja við sama borð.Ekki kemur til greina að úthluta veiðiheimildum til langs tíma eins og meirihluti kvótanefndarinnar leggur til.1-2 ár í senn er hæfilegur tími.
Umbótaáætlun Samfylkingar: Kosningaloforð standa
Samfylkingin samþykkti nýlega umbótaáætlun. Samþykkt var að bæta siðferðið í öllu starfi flokksins.Heiðarleiki og orðheldni á að vera í fyrirrúmi.Það þýðir að flokkurinn ætlar að standa við það,sem hann lofar kjósendum.Það er liðin tíð, að unnt sé að lofa einu fyrir kosningar og framkvæma annað eftir kosningar. Með hliðsjón af nýrri umbótaáætlun Samfylkingarinnar getur flokkurinn ekki hvikað frá kosningaloforði sínu um að fara fyrningarleiðina í sjávarútvegsmálum.Því var lofað fyrir kosningar að fyrna ætti aflaheimildir á 20 árum.Við það verður að standa.Það eru hrein svik við það kosningaloforð, ef ríkisstjórnin ætlar að afhenda útgerðarmönnum aflaheimildirnar til langs tíma.Það kemur ekki til greina.Ef Samfylkingin getur ekki fengið VG til þess að standa við kosningaloforð flokkanna um fyrnningarleið verður stjórnin að fara frá.
Björgvin Guðmundsson
Birt í Morgunblaðinu 12.febrúar 2011
| Deila � Facebook |
N�justu pistlarnir: Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018 Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018 Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018 Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017 Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017 Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017 Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017 Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017 Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017 Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017 Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016 Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016 Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016 Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016 Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016 Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016 Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016 Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016 Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016 Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016 Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016 Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016 Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016 Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016 Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016 76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016 Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016 Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016 Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016 Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016
|
|