Árni Magnússon félagsmálaráðherra flutti ræðu á Iðnþingi Samtaka iðnaðarins og gagnrýndi harðlega þátt viðskiptabankanna í atvinnulífinu að undanförnu. Sagði hann,að viðskiptabankarnir hefðu brytjað niður íslensk fyrirtæki til þess eins að skapa sér sem mestan eigin gróða.Áður hefði það verið hlutverk bankanna að þjóna almenningi.Nú virtist hlutverkið vera það að græða sem mest.
Vantar félagslegt réttlæti
Árni Magnússon sagði m.a. í ræðu sinni:”Er það raunverulega svo,að eðlilegt sé að einstakir viðskiptabankar verji mestum kröftum sínum og fjármunum, jafnvel með stórkostlegum erlendum lántökum, í að brytja niður fyrirtæki í íslensku viðskiptalífi til hagnaðar fyrir sjálfa sig? Aldrei verður sátt um aukið frelsi fjármagns nema því fylgi félagslegt réttlæti. Þar bera fyrirtækin ábyrgð og verða að axla hana.”
Samþjöppun í verslun
Félagsmálaráðherra ræddi einnig samþjöppun í verslun og sagði: "Verslunar-og þjónustufyrirtæki hafa á sama tíma stækkað gífurlega,völd þeirra gagnvart smærri fyrirtækjum,ekki síst smærri framleiðslufyrirtækjum eru mikil.Þræðirnir liggja svo víða,að helst minnir á vef risavaxinnar köngulóar.Þessi stórfyrirtæki geta í mörgum tilvikum ráðið því hverjir fái lifað of hverjir skuli deyja.”
Gagnrýni á Valgerði Sverrisdóttur
Margir undrast það hvers vegna Árni Magnússon flutti umrædda ræðu.Málið er ekki á hans sviði. Það heyrir undir iðnaðar-og viðskiptaráðherra og því hefði verið eðlilegt að Valgerður Sverrisdóttir tæki málið upp ef talin var þörf á því. Talið er víst,að Árni Magnússon hafi flutt ræðuna með vitund og vilja formanns Framsóknarflokksins. Var talið nauðsynlegt að koma höggi á Valgerði? Hún hefur ekkert aðhafst enda þótt margir telji,að bankanir séu komnir út fyrir sitt svið með afskiptum af atvinnulífinu.
“Aumkunarvert hlutskipti Framsóknar”
Steingrímur J.Sigfússon formaður VG sagði í tilefni af ræðu Árna Magnússonar,að hlutskipti Framsóknar væri aumkunarvert. Framsókn hefði ásamt Sjálfstæðisflokki einkavætt bankana og komið hér á óheftu frelsi. Nú væri Árni Magnússon að gagnrýna eigin verk ríkisstjórnarinnar í þessu efni. En ummæli Árna hefðu enga þýðingu,þar eð þeim fylgdu ekki neinar athafnir. Nærtækast væri að hætta við einkavæðingu Símans ef menn vildu gera eitthvað í málunum.
Björgvin Guðmundsson
|