Samfylkingin verður að breyta þjóðfélaginu
Samfylkingin hefur kosið sér nýjan leiðtoga,Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur.Hún var kosinn formaður Samfylkingarinnar í beinni kosningu flokksmanna og úrslitin kunngjörð á landsfundi Samfylkingarinnar fyrir skömmu.Ingibjörg Sólrún er öflugur stjórnmálamaður,sem sýndi mikla leiðtogahæfileika,er hún leiddi Reykjavíkurlistann í Reykjavík og hún gegndi starfi borgarstjóra með prýði.. Miklar vonir eru bundnar við hana sem leiðtoga Samfylkingarinnar.Fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar,Össur Skarphéðinsson, stóð sig mjög vel sem formaður.Hann tók við flokknum á erfiðum tíma,þegar hann var í mótun og flokkurinn átti á brattann að sækja.En Össur er mikill baráttumaður og elfdist við hverja raun. Honum tókst að koma Samylkingunni í yfir 30% fylgi.Undir hans stjórn sannaðist, að sameining jafnaðarmanna á Íslandi hafði tekist.
Mörg mikilvæg verkefni
Mörg mikilvæg verkefni bíða nú Samfylkingarinnar.Mikilvægasta verkefnið er að breyta íslensku þjóðfélagi í anda jafnaðarstefnunnar.Það þarf að binda endi á misréttið í íslensku þjóðfélagi,stöðva misskiptinguna og leiðrétta hana og koma á lýðræðislegum stjórnarháttum,þar sem valdníðsla og misbeyting valds á ekki heima. Í stjórnartíð íhalds og Framsóknar hefur misskipting í þjóðfélaginu stóraukist. Þeir ríku hafa orðið ríkari og þeir fátæku fátækari.Stórfelldir fjármunir hafa verið færðir til örfárra aðila gegnum hið rangláta kvótakerfi og með framkvæmd græðgisstefnunnar í viðskiptalífinu.Nokkrum aðilum var úthlutað ókeypis fiskveiðiréttindum í sameiginlegri auðlind landsmanna,sem samkvæmt lögum er sameign þjóðarinnar.Þeir hafa síðan geta braskað með þessi réttindi og selt fyrir óhemju mikla fjármuni.Á sama tíma er greinin lokuð nýjum aðilum.Það er brýnasta málið í dag að leiðrétta þetta mesta ranglæti Íslandssögunnar.Það verður Samfylkingin að gera.Stórauka þarf einnig eftirlit með fjármálabraski og stöðva það að bankarnir fari út í rekstur,sem samrýmist ekki hlutverki þeirra lögum samkvæmt. Afmá verður þann blett á íslensku samfélagi sem fátæktin er. Og leiðrétta verður óviðunandi kjör aldraðra og öryrkja. Hér er eitt brýnasta verkefni Samfylkingarinnar.Það verður að hækka lífeyri aldraðra og öryrkja og bætur atvinnulausra þannig,að þessir aðilar geti lifað mannsæmandi lífi af tryggingabótum.Núverandi ríkisstjórn skellir skollaeyrum við öllum kröfum samtaka aldraðra um hækkun lífeyris og dæmi eru um það,að ráðherrar hafi kvartað yfir skrifum aldraðra um úrbætur og að þeir hafi varla viljað ræða við fulltrúa aldraðra. Málefnin aðalatriðið Verkefni Samfylkingarinnar eru vissulega næg.Forustumenn Samfylkingarinnar tala mikið um að þeir vilji komast í ríkisstjórn eftir næstu kosningar og það er vissulega eðlilegt markmið hjá næst stærsta stjórnmálaflokki þjóðarinnar.En aðalatriðið er þó að koma fram stefnumálum Samfylkingarinnar,stefnu jafnaðarmanna.Það er ekkert gagn í því að fara í ríkisstjórn,ef stefnumál jafnaðarmanna nást ekki fram.Ég tel að forgangsmálin eigi að vera leiðrétting á hinu rangláta kvótakerfi og stórfelld lagfæring á kjörum aldraðra og öryrkja.
Sameiningin hefur tekist vel
Samfylkingin var mynduð af Alþýðuflokknum,Alþýðubandalaginu,Kvennalistanum og Þjóðvaka. Þessi sameining hefur tekist mjög vel og skapað þann sterka flokk sem Samfylkingin er í dag.Flokksmenn líta í dag á sig sem Samfylkingarmenn,sem jafnaðarmenn en kenna sig ekki við hina gömlu flokka,sem stóðu að sameiningunni. Það ef því út í hött,þegar sjálfstæðismenn eru að tala um að áhrif Alþýðuflokksmanna séu lítil í Samfylkingunni.Í nýjum flokki snúast málin ekki um áhrif eða áhrifaleysi fyrrverandi flokka. Sem fyrrverandi Alþýðuflokksmaður get ég sagt,að ég er mjög ánægður með sameininguna og hinn nýja flokk.Ég tel stefnu Samfylkingarinnar vera í anda jafnaðarstefnunnar og forustumenn flokksins hafa tryggt að svo yrði.Ég er ánægður með þróun mála í Samfylkingunni. Björgvin Guðmundsson |