|
Verið að brjóta stjórnarskrána á öldruðum og öryrkjum!þriðjudagur, 28. júlí 2015
|
Hagstofan hefur birt rannsókn um það hverja skorti efnisleg gæði.Samkvæmt rannsókninni skortir hóp öryrkja og aldraðra efnisleg gæði og hefur þessi hópur stækkað frá árinu 2013 til 2014.Með skorti á efnislegum gæðum er m.a átt við eftirfarandi: Hefur ekki efni á að fara í vikulegt frí með fjölskyldunni, hefur ekki efni á kjöti,fiski eða sambærilegri grænmetismáltíð, a.m.k annan hvern dag, hefur ekki efni á heimasíma,farsíma eða sjónvarpi, hefur ekki efni á þvottavél, hefur ekki efni á bíl og ekki heldur á tövubúnaði, hefur ekki efni á að kynda íbúðina nógu vel og hefur lent í vanskilum með húsnæðislán eða önnur lán vegna fjárskorts.Ef um skort á a.mk þremur framangreindum atriðum er að ræða, telst vera skortur á efnislegum gæðum.
Ríkið skammtar nauman lífeyri
Þessi rannsókn er mjög athyglisverð. Hún staðfestir það, sem áður hefur verið vitað, að margir aldraðir og öryrkjar geta ekki lifað eðlilegu lífi vegna þess, að ríkið skammtar þeim svo nauman lífeyri, að þeir geta ekki framfleytt sér að fullu.Samkvæmt þessu er ljóst, að ríkið er að brjóta stjôrnarskrána með þessu framferði gegn lífeyrisþegum.Réttur aldraðra og öryrkja til þess að lifa eðlilegu lífi er stjórnarskrárvarinn.Þegar stjórnvöld eru að skera mikið niður greiðslur til aldraðra og öryrkja eins og nú, eru þau að brjóta stjórnarskrána.
Láta lífeyrisþega fá þriðjung af hækkun launþega
Ríkisstjórnin ætlar nú að láta lífeyrisþega fá þriðjung af þeirri hækkun, sem launþegar fá á nýju samningstímabili.Það er hoggið í sama knérunn og áður. Í stað þess að láta lífeyrisþega fá meira en launþegar fá til þess að leiðrétta lífeyrinn vel er skorið niður til lífeyrisþega eins
og áður.Lífeyrir einhleypra lífeyrisþega, sem einungis hafa tekjur fra TR, er í dag 225 þúsund krónur fyrir skatt,192 þúsund eftir skatt. Eins hár og húsnæðiskostnaður er í dag er engin leið að lifa eðlilegu,mannsæmandi lífi af þessari hungurlús.Algeng húsaleiga í dag er 150 þúsund krónur á mánuði.Og þó hún sé 10 þúsund krónum lægri í vissum tilvikum sjá allir, að engin leið er að lifa eðlilegu lífi af því,sem eftir er af lífeyrinum.Þeir, sem eiga sitt húsnæði, þurfa að greiða eitthvað minna í húsnæðiskostnað..En útgjöld eru samt mikil í afborganir og vexti lána,fasteignagjöld,rafmagn og hita,hússjóð o.fl. Flestir úr þessum hópi öryrkja og aldraða flokkast undir þá, sem skortir efnisleg gæði.
Lífeyrisþegar fái það sama og launþegar
Rïkisstjórnin hefur nú tækifæri til þess að laga ástandið hjá lífeyrisþegum og hætta að brjóta á þeim stjórnarskrárvarinn rétt. Hún getur látið lífeyrisþega fá sömu hækkun og láglaunafólk fèkk sl vor, þ.e. 31þúsund króna hækkun á mánuði frá 1.mai. Lágmarkstrygging hækkaði þá um 31 þúsund á mánuði. 28 % hækkun verður á 3 árum.Lífeyrir á að hækka í 300 þúsund á mánuði á þessum tíma eins og lágmarkslaun.
Björgvin Guðmundsson
Formaður kjaranefndar
Félags eldri borgara í
Reykjavík og nágrenni´
Birt í Fréttablaðinu 29.júlí 2015
| Deila � Facebook |
N�justu pistlarnir: Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018 Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018 Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018 Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017 Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017 Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017 Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017 Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017 Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017 Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017 Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016 Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016 Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016 Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016 Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016 Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016 Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016 Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016 Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016 Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016 Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016 Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016 Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016 Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016 Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016 76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016 Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016 Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016 Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016 Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016
|
|