|
Valdníðsla Framsóknar er okkur dýrföstudagur, 15. desember 2006
|
Fjölmiðlar skýra frá því, að réttarsátt hafi náðst í máli Björns Friðfinnssionar, ráðuneytisstjóra,gegn ríkinu en ráðherrar Framsóknar höfðu af honum ráðuneytissjórastöðuna, sem hann var forsetaskipaður í . Verður iðnaðar-og viðskiptaráðuneytið að greiða Birni ráðuneytissjóralaun til sjötugs þó hann sé ekki við störf í ráðuneytinu og að auki verður ráðuneytið að greiða 2 milljónir króna í miskabætur.Munu þetta einna hæstu miskabætur,sem dæmdar hafa verið. 3 ráðherrar skrifuðu undir réttarsáttina og viðurkenndu þar með, að iðnaðar-og viðskiptaráðherra hefði brotið lög með því að hafa ráðuneytisstjórastöðuna af Birni.
Gróf valdníðsla
“Brottvikning” Björns úr embætti ráðuneytisstjóra er eitt nýjasta dæmið um grófa valdníðslu ráðherra Framsóknarflokksins. Björn Friðfinnsson var skipaður ráðuneytisstjóri 1989 ævilangt.Hann fékk leyfi frá störfum til þess að fara til starfa hjá ESA í Brussel en átti samkvæmt samkomulagi að taka við starfi sínu í ráðuneytinu aftur en það samkomulag var svikið.Var það dregið nokkrum sinnum,að hann fengi að taka við starfi sínu á ný. Hafði Björn sýnt mikinn samkomulagsvilja en samt var samkomulag við hann svikið. Björn er mjög hæfur embættismaður og hann hafði ekkert brotið af sér í starfi. Ekki var unnt að finna neitt að störfum hans.Hið eina sem ráðherrar Framsóknarflokksins gátu fundið að Birni var, að hann væri jafnaðarmaður! Þó eru mörg dæmi um það, að menn hafa gegnt háum embættum í Stjórnarráðinu þó þeir hafi ekki haft sömu stjórnmálaskoðanir og ráðherrarnir. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem fyrrverandi iðnaðar-og viðskiptaráðherra misbeitir valdi sínu við ákvarðanir um embætti og lætur stjórnmálaskoðanir ráða skipun og brottvikningu..Skammt er síðan sami ráðherra flæmdi Georg Ólafsson frábæran forstjóra Samkeppnisstofnunar úr starfi til þess að koma rétt ættuðum Framsóknarmanni að. Það virðist ekki skipta ráðherra ríkisstjórnarinnar neinu máli, þó þeir baki ríkissjóði mikið fjárhagstjón með embættisfærslum sínumi og embættisafglöpum.Þeir afgreiða starfslokasamninga á færibandi og senda ríkissjóði reikninginn.Miklar skaðabætur skipta þá ekki máli.Ríkið borgar.
Önnur misbeiting valds
Mörg önnur dæmi mætti nefna um valdníðslu og misbeitingu valds ráðherra Framsóknar og Sjálfstæðisflokksins.I utanríkisráðuneytingu hefur flokksgæðingum þessara flokka verið raðað í sendiherrastöður og önnur embætti.Báðir stjórnarflokkarnir hafa verið drjúgir í því efni en Framsókn hefur haft vinninginn og alltaf “passað “ vel upp á sína menn og sennilega á Framsókn metið í því að troða sínum mönnum í embætti.
Björgvin Guðmundsson
Birt í Fréttablaðinu 14.desember 2006
.
| Deila � Facebook |
N�justu pistlarnir: Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018 Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018 Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018 Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017 Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017 Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017 Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017 Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017 Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017 Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017 Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016 Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016 Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016 Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016 Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016 Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016 Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016 Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016 Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016 Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016 Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016 Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016 Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016 Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016 Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016 76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016 Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016 Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016 Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016 Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016
|
|