Undanfarið hefur ríkisstjórnin lagt fram hvert frumvarpið á fætur öðru um einkavæðingu ríkisfyrirtækja.Hefur Framsókn verið ötul við að leggja slík frumvörp fram og virðist svo sem sá flokkur sé orðinn kaþólskari en páfinn að því er varðar einkavæðingu. Samvinnuhugsjónin er gleymd og grafin.Nú síðast var lagt fram frumvarp um stofnun hlutafélags um rekstur ríkisútvarpsins.Framsókn hefur samþykkt það..Meira að segja Þorsteini Pálssyni,fyrrverandi formanni Sjálfstæðisflokksins, of bauð,þegar það mál var lagt fram.Hann sagði, að góð sátt hefði verið í þjóðfélaginu um útvarpið sem ríkisfyrirtæki og ekki ætti að rjúfa þá sátt með frumvarpi um að breyta útvarpinu í hlutafélag.En það er einmitt það,sem, ríkisstjórnin er að gera. Hún er að rjúfa sáttina um ríkisútvarpið.
Rafmagn og vatn einkavætt!
Fyrir skömmu lagði ríkisstjórnin (ráðherra Framsóknar) fram frumvarp um að stofna hlutafélag um rafmagnsveitur ríkisins.Ekki verður séð hver tilgangurinn er með framlagningu þess frumvarps nema ætlunin sé að selja fyrirtækið síðar.Og ríkisstjórninni væri trúandi til þess. Sporin hræða ( sbr. Síminn).
Náskylt þessum málum er frumvarp til nýrra vatnalaga sem nú er orðið að lögum. Með því frumvarpi var í raun verið að einkavæða vatnið,sem hefur verið sameign allar þjóðarinnar.Frumvarpið kvað á um,að vatn væri séreign þeirra landeigenda, sem ættu land það, sem vatn væri að finna á og að þeir mættu selja vatnið. Samkvæmt eldri lögum höfðu landeigendur aðeins afnotarétt af vatninu. Hér er því um gerbreytingu að ræða. Og auðvitað var Framsókn att á foraðið eins og svo oft áður. Stjórnarandstaðan barðist hatrammlega gegn “einkavæðingu” vatnsins og ætlaði ekki að afgreiða málið á yfirstandandi þingi.En málamiðlun náðist að lokum milli stjórnar og stjórnarandstöðu um að málið yrði afgreitt nú en tæki ekki gildi fyrr en haustið 2007.
Byggðastofnun lömuð
Nefna má enn eitt átakamálið á yfirstandandi þingi en það er frumvarp um byggðastofnun og sameiningu hennar við Rannsóknarstofnun byggingariðnaðarins og Iðntæknistofnun.( Lagt fram af ráðherra Framsóknar).Margir þingmenn Sjálfstæðisflokksins eru andvígir þessu frumvarpi en af mismunandi ástæðum. Sumir vilja halda í byggðastofnun, þar eð þeir eru hlynntir stuðningi við landsbyggðina en aðrir vilja leggja niður allan slíkan stuðning og helst leggja niður byggðastofnun.Í hópi þeirra fyrrnefndu er Einar Oddur,varaformaður fjárlaganefndar en í síðarnefnda hópnum er Sigurður Kristjánsson,formaður menntamálanefndar.
Á að braska með flugbrautirnar?
Í munnlegri skýrslu utanríkisráðherra,Geirs H.Haarde,á alþingi gerðust þau tíðindi, að ráðherrann lýsti því yfir, að hann vildi stofna hlutafélag um rekstur Keflavíkurflugvallar og einkavæða reksturinn.Menn héldu,að þeim hefði misheyrst. Og meira að segja Framsóknarmönnum ofbauð. En þeir verða nú sennilega ekki lengi að renna þessu niður miðað við fyrri reynslu. Þetta eru forkastanlegar ráðagerðir. Það kemur að sjálfsögðu ekki til greina,að láta einkaaðila braska með okkar aðal millilandaflugvöll. Áður hefur Sjálfstæðisflokkurinn gælt við það, að landhelgisgæslan yrði einkavædd. Það er stórhættulegt, að þau fyrirtæki sem eiga að annast öryggi landsmanna séu í höndum einkaaðila. Slík fyrirtæki eiga að sjálsögðu að vera í höndum ríkisins.
Það virðast engin takmörk fyrir því hvað Sjálfstæðisflokkurinn vill einkavæða.Og Framsókn er alltaf tilbúin.Hún vill öllu fórna fyrir ráðherrastólana.Nú er heilbrigðiskerfið og menntakerfið í hættu.Ef núverandi ríkisstjórn verður ekki komið frá völdum í næstu kosningum verður heilbrigðiskerfið og menntakerfið brotið niður. Það verður að afstýra því.
Björgvin Guðmundsson
Birt í Morgunblaðinu 18.mai 2006 |