|
Utanstefnur:Sjónarspil í New Yorkfimmtudagur, 2. mars 2006
|
Steingrímur J.Sigfússon formaður Vinstri grænna gagnrýnir harðlega það, sem hann kallar utanstefnur hinar nýju.Þar á hann við það,að erlendur auðhringur skuli kalla á íslenskan ráðherra til New York til þess að tilkynna honum og öðrum fulltrúum Íslands hvað auðhringurinn hafi ákveðið varðandi byggingu nýs álvers á Íslandi.Undir þessa gagnrýni Steingríms skal tekið hér. Þetta er mjög ósmekklegt og hefur ekki tíðkast áður.Eðlilegra hefði verið,að fjallað væri um þessi mál á Íslandi. Og Íslendingar eiga sjálfir að ákveða þau skilyrði,sem þeir vilja setja fyrir byggingu álverksmiðja á Ísland. Þeir eiga ekki að taka við boðskap erlendra aðila þar um.
Algert sjónarspil
Svo virðist sem íslensk stjórnvöld hafi ákveðið að setja á svið sjónarspil varðandi næstu álverksmiðju á Íslandi.Margir aðilar á Íslandi vilja nú fá til sín nýja álverksmiðju. En það er ekki rúm í íslenska hagkerfinu fyrir allar þessar verksmiðjur og það er heldur ekki til orka fyrir þær allar.En ríkisstjórnin lætur eins og allir geti fengið álverksmiðju.Og til þess að halda blekkingaleiknum áfram bregður ríkisstjórnin á það ráð að setja á svið mikið sjónarspil í New York. Fulltrúar Skagafjarðar,Akureyrar og Húsavíkur eru boðaðir þangað ásamt iðnaðarráðherra og fulltrúum ráðuneytisins!Til hvers var verið að boða fulltrúa þriggja héraða á Norðurlandi til New York. Jú,til þess að láta þá halda að þeir væru allir inni í myndinni enda þótt Alcoa væri fyrir löngu búið að ákveða að hafa nýja álverksmiðju við Húsavík.Og þessir fulltrúar allir voru boðaðir til New York til þess að ríkisstjórnin gæti þvegið hendur sínar og sagt: Það er Alcoa,sem ákveður staðsetninguna. Við ráðum engu þar um!Og til hvers er verið að sviðsetja leiksýningu um byggingu álverksmiðju einhvern tímann í framtíðinni? Það er blásið í lúðra í New York og skrifað undir eitthvert plagg um að “athuga eigi” með byggingu álverksmiðju við Húsavík.Þetta er fáránlegt.Hvers vegna þarf að skrifa undir plagg um athugun? Að sjálfsögðu geta allar erlendar álverksmiðjur athugað möguleika á byggingu álverksmiðja hér á landi.Það þarf ekki undirskrift í New York um það. Það hefur engin ákvörðun verið tekin um byggingu nýrrar álverksmiðju á Norðurlandi.Málið er enn á athugunarstigi. Ef til kemur verður ekki byrjað á þessari álverksmiðju fyrr en eftir 4 ár. Þetta er því algert sjónarspil.
Björgvin Guðmundsson | Deila � Facebook |
N�justu pistlarnir: Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018 Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018 Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018 Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017 Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017 Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017 Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017 Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017 Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017 Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017 Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016 Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016 Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016 Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016 Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016 Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016 Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016 Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016 Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016 Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016 Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016 Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016 Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016 Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016 Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016 76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016 Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016 Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016 Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016 Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016
|
|