|
Hagvöxtur meiri áður.Kaupmáttur jókst mikið meira áðurmánudagur, 29. nóvember 2004
| Það eru einkum tveir þættir,sem eru mikilvægir,þegar meta skal árangur í efnahagsmálum: Hagvöxtur og þróun kaupmáttar. Hér verður athuguð þróun þessara þátta sl. 40 ár og litið á hvern áratug fyrir sig. Á þessu tímabili er meðaltals hagvöxtur á ári á mann langmestur á tímabilinu 1971-1980 eða rúmlega 5%. Á þessum tíma voru við völd vinstri stjórnir undir forustu Ólafs Jóhannessonar ( 1971-1974 og 1978-1979), stjórn Geirs Hallgrímssonar (1974-1978) og minnihlutastjórn Alþýðuflokksins undir forustu Benedikts Gröndal (1979-1980).Hagvöxtur er næstmestur á áratugnum á undan,þ.e. 1961-1970. Þetta er viðreisnaráratugurinn,þegar ríkisstjórn Alþýðuflokksins og Sjálfstæðisflokksins fór með völd. Á þessu tímabili var meðaltals hagvöxtur á ári rúm 3%. Ef litið er á áratuginn 1991 –2002, þ.e. stjórnartíð ríkisstjórna undir forustu Davíðs Oddssonar, kemur í ljós,að meðaltals hagvöxtur á ári er aðeins tæp 2% sem er lítið miðað við hagvöxt viðreisnaráratugsins og hagvöxt tímabilsins 1971-1980. ( Byggt á tölum Hagstofunnar).
Lítum á þróun kaupmáttar ráðstöfunartekna á mann sl. 40 ár, þ.e. meðalbreytingu á ári.Kaupmátturinn segir ef til vill mest um breytingu lífskjara almennings. Eftirfarandi kemur í ljós: Kaupmátturinn eykst langmest á tímabilinu 1971-1980 eða um 5,7% þ.e. í stjórnartíð Ólafs Jóhannessonar,Geirs Hallgrímssonar og Benedikts Gröndal. Næst mest eykst kaupmátturinn á viðreisnaráratugnum 1961-1970 eða um 5,2%.Síðan kemur tímabilið 1981-1990 með 2,2% aukningu kaupmáttar en tímabil ríkisstjórna Davíðs Oddssonar,1991-2002, rekur lestina með 1,8% kaupmáttaraukningu ( Hér er byggt á hagtölum Þjóðhagsstofnunar og fjármálaráðuneytis ).
Björgvin Guðmundsson
| Deila � Facebook |
N�justu pistlarnir: Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018 Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018 Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018 Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017 Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017 Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017 Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017 Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017 Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017 Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017 Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016 Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016 Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016 Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016 Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016 Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016 Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016 Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016 Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016 Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016 Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016 Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016 Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016 Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016 Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016 76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016 Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016 Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016 Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016 Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016
|
|