|
Lífeyrir aldraðra hækki í samræmi við neyslukönnun Hagstofunnarlaugardagur, 10. desember 2011
| Þrír stjórnmálaflokkar halda landsþing í haust,Samfylkingin,Sjálfstæðisflokkurinn og Vinstri græn.Fróðlegt verður að sjá hvernig þessir flokkar taka á málefnum aldraðra og raunar á velferðarmálum yfirleitt.Stjórnarflokkarnir segjast vilja koma hér á norrænu velferðarsamfélagi en ekkert hefur þokast í þá átt enn.Fremur hefur miðað aftur á bak en áfram í þeim efnum. Eldri borgarar hafa til þessa treyst fremur á “vinstri flokkana” en hægri flokkana í lífeyrismálum. En þeir munu áreiðanlega fylgjast vel með landsfundi Sjálfstæðisflokksins að þessu sinni ekki síður en hinum landsfundunum, og einkum þeim málum, er varða eldri borgara.
Klipið af kjarabótum eldri borgara
Fyrir frumkvæði Landssambands eldri borgara og Félags eldri borgara í Reykjavík tryggði ASÍ í viðræðum við ríkisstjórnina, að eldri borgarar fengu nokkurn veginn sömu kjarabætur í júní á þessu ári og launþegar fengu samkvæmt nýjum kjarasamningum.Velferðarráðherra tókst þó að klípa lítillega af kjarabótum þeirra verst stöddu meðal eldri borgara, þar eð lægstu bætur þeirra ( lágmarksframfærslutrygging) hækkuðu um 6,5% á sama tíma og lægstu laun hækkuðu um 10,3%. En í stórum dráttum má segja, að leiðrétting bóta hafi verið hliðstæð leiðréttingum launa. Eldri borgarar fengu hins vegar enga leiðréttingu til samræmis við verðlagshækkanir og launahækkanir láglaunafólks undanfarandi sl. 2 ár en þær launahækkanir námu 16%.
Áætlun um hækkun lífeyris aldraðra
Mikið vantar upp á það, að lífeyrir aldraðra dugi til þess að eldri borgarar geti lifað sómasamlegu lífi og með reisn síðasta hluta ævi sinnar.Nauðsynlegt er að gera áætlun um myndarlega hækkun á þessum lífeyri.Slík áætlun gæti falist i því að lyfta lífeyri aldraðra myndarlega á 3 árum þannig að lífeyririnn hækkaði í áföngum upp í meðaltalsútgjöld einstaklinga til neyslu samkvæmt neyslukönnun Hagstofunnar. Þessi upphæð var samkvæmt síðustu könnun 290 þús.á mánuði án skatta. Ég tel, að þessi neyslukönnun eigi eins við eldri borgara og aðra landsmenn. Raunar eru sumir liðir könnunarinnar of lágir að því er eldri borgara varðar.Eldri borgarar nota t.d. mun meiri lyf og læknishjálp en gert er ráð fyrir í neyslurannsókn Hagstofunnar. Neyslukönnun Hagstofunnar er eina könnunin, sem unnt er að miða við, þegar lífeyrir aldraðra er ákveðinn. Nýlega var birt neysluviðmið, sem var samhljóða neyslukönnun Hagstofunnar.Það þarf því ekki að búa til nýtt viðmið til þess að sýna neyslu eða framfærslukostnað.Við þurfum ekki á neinu fátæktarviðmiði að halda.
Afturkalla á kjaraskerðinguna frá 2009
Ísland er nú að komast út úr kreppunni og hagvöxtur er byrjaður.Seðlabankinn spáir 2,5% hagvexti á þessu ári en hagvöxtur í Danmörku er aðeins 1 %.Það er því tímabært að afturkalla kjaraskerðingu eldri borgara frá 1.júlí 2009 og hætta að refsa þeim eldri borgurum sem vilja fara út á vinnumarkaðinn. Og þeir eldri borgarar, sem sviptir voru öllum bótum hjá TR 2009 eiga að fá þær aftur.Almannatryggingarnar eiga að vera fyrir alla en ekki fyrir ákveðinn hóp manna.Það var skýrt tekið fram, þegar tryggingarnar voru stofnaðar.
Björgvin Guðmundsson
| Deila � Facebook |
N�justu pistlarnir: Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018 Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018 Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018 Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017 Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017 Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017 Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017 Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017 Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017 Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017 Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016 Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016 Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016 Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016 Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016 Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016 Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016 Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016 Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016 Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016 Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016 Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016 Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016 Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016 Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016 76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016 Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016 Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016 Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016 Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016
|
|