Meðal bóka, sem komu út fyrir jolin, er bókin “Guðni í Sunnu”. Ég fékk strax áhuga á þessari bók og gafst tækifæri til þess að lesa hana yfir jólin.Ég varð ekki fyrir vonbrigðum með bókina. Hún er skemmtileg aflestrar enda hefur Guðni Þórðarson frá mörgu að segja frá litríkum blaðamannsferli, ferðaskrifstofurekstri og flugrekstri. Guðni telst merkur brautryðjandi á sviði íslenskra ferðamála..
Heimur flokksblaðanna
Guðni var kornungur ráðinn blaðamaður á Tímann. Kynntist ég honum, er ég hóf störf sem blaðamaður á Alþýðublaðinu árið 1953. Á þessum tíma voru Tíminn og Alþýðublaðið flokksblöð,Tíminn gefinn út af Framsóknaflokknum og Alþýðublaðið gefið út af Alþýðuflokknum. Guðni gefur lesendum innsýn í þennan heim flokksblaða og flokksforingja. Hann skýrir frá því, að Hermann Jónasson, formaður Framsóknarflokksins, hafi ráðið sig sem blaðamann á Tímann og síðar hafi Hermann ráðið hann sem framkvæmdastjóra Tímans en þá var Hermann forsætisráðherra. Sama kerfi ríkti við útgáfu Alþýðublaðsins.Guðmundur Í. Guðmundsson var formaður blaðstjórnar Alþýðublaðsins þó hann væri utanríkisráðherra. Þannig gáfu æðstu embættismenn landsins, forsætis-og utanríkisráðherra, sér tíma til þess að vasast í dagblaðaútgáfu fyrir flokka sína. Slíkt væri óhugsandi í dag.
Frumkvöðull í myndablaðamennsku
Guðni Þórðarson vakti strax athygli sem blaðamaður.Voru það einkum myndskreyttar stórar greinar hans um menn og málefni, sem vöktu eftirtekt en hann tók ljósmyndirnar sjálfur.Var þetta nýjung í íslenskri blaðamennsku, sem Guðni varð fyrstur til þess að kynna hér. Kynntist hann þessari ljósmyndablaðamennsku í Bandaríkjunum.
Guðni ferðaðist mikið til útlanda sem blaðamaður og hafði mörg járn í eldinum sem ungur maður. Er ég fór í mína fyrstu utanlandsferð 1954 til Danmerkur, var ég samferða Guðna í flugvélinni til Kaupmannahafnar en hann hélt þá áfram til Hamborgar í viðskiptaerindum, var þá að huga að innflutningi. Hann var þegar þá orðið vel sigldur þó kornungur væri.
Brautryðjandi í hópferðum til sólarlanda
Ferðalög Guðna til útlanda vöktu áhuga hans á ferðamálum. Hann var fljótlega beðinn að vera fararstjóri í utanlandsferðum og í framhaldi af því ákvað hann 1959 að stofna ferðaskrifstofu. Valdi hann nafnið Sunna á skrifstofuna en það nafn er úr Hávamálum. Guðni varð fyrstur Íslendinga til þess að skipuleggja hópferðir til sólarlanda og lagði strax áherslu á að hafa ferðirnar ódýrar þannig, að þær yrðu viðráðanlegar almenningi. Hann miðaði verðið við mánaðarlaun Sóknarkvenna, þ.e. verð á orlofsferð til sólarlanda, t.d. til Mallorka, sem var uppáhaldsstaðurinn lengi vel. En Guðni varð fyrstur til þess að skipuleggja hópferðir til Mallorka. Guðni Þórðarson vann mjög merkilegt brauðryðjendastarf við að skipuleggja ódýrar sólarlandaferðir og orlofsferðir til annarra landa. Það má segja, að hann hafi gert slíkar ferðir að almenningseign. En að sjálfsögðu lögðu aðrir ferðamálafrömuðir hönd á plóginn á þessu sviði eins og t.d.Ingólfur Guðbrandsson og Ásbjörn Magnússon.
Stofnaði flufélagið Air Viking
Umsvif Guðna Þórðarsonar í ferðaskrifstofurekstri urðu fljótlega mjög mikil og leiddu til þess að hann stofnaði sitt eigið flugfélag, Air Viking. Keypti Guðni 3 þotur fyrir þann flugrekstur.Guðni lýsir rekstri Sunnu og Air Viking vel í bók sinni.Á þeim tíma, sem Guðni starfaði við þennan rekstur voru strong gjaldeyrishöft í gildi og allar lántöku erlendis háðar leyfum.Á þessum tíma sat viðreisnarstjórn Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks við völd í landinu. Það var ekki vel séð af öllum, að Guðni Þórðarson skyldi hefja millilandaflug og rjúfa þá einokun, sem verið hafði í flugrekstrinum. Með því var vegið að Kolkrabbanum.Guðni tók ekki aðeins viðskipti frá Flugleiðum heldur einnig frá dótturfyrirtæki þess, Ferðaskrifstofunni Úrval. Guðni lýsir því vel í bók sinni hvernig samgönguráðherra reyndi að torvelda og stöðva rekstur hans. Og hvað eftir annað var honum neitað um gjaldeyrisyfirfærslur vegna leigu á flugvélum og skemmtiferðaskipum. Þurfti Guðni iðulega að ganga á fund Gylfa Þ.Gíslasonar viðskiptaráðherra til þess að fá leiðréttingu mála sinna .Guðni ber Gylfa vel söguna. Guðni skýrir frá því í bók sinni, að Seðlabankinn (og Alþýðubankinn) í samráði við samgönguráðuneytið hafi að lokum stöðvað flugrekstur hans.Birtir Guðni minnisblað ráðuneytisstjóra samngönguráðuneytis því til staðfestingar. Var ákveðið af þessum aðilum að loka öllum reikningum Air Viking í Alþýðubankanum vegna skulda að því,er sagt var.Skuldir Air Viking voru þó ekki meiri í bankanum en margra annarra fyrirtækja,sem voru í viðskiptum við bankann.Vegna þessara aðgerða stöðvaðist flugreksturinn fljótlega. Samgönguráðuneytið hafi einnig ætlað að taka ferðaskrifstofuleyfið af Sunnu en fallið hafi verið frá því. .Guðni segir í bók sinni, að hér hafi verið um hreinar ofsóknir að ræða gegn honum og fyrirtækjum hans til verndar Kolkrabbanum.
Ævintýri líkast
Í bókinni er skýrt frá ýmsum öðrum atvinnurekstri, sem Guðni stundaði eða átti aðild að. Það má sjá í bókinni, að ævi Guðna hefur verið ævintýri líkust. Hann er kominn af alþýðufólki og hóf sig upp fyrir eigin verðleika og iðjusemi.Hvað eftir annað var reynt að stöðva hann en hann lét aldrei bugast. Hann er enn að þrátt fyrir háan aldur. Bókin,Guðni í Sunnu,svíkur engan.
Björgvin Guðmundsson
Birt í Morgunblaðinu 6.janúar 2007
|