|
Staða aldraðra og öryrkja óásættanlegmiðvikudagur, 18. maí 2016
| Hver er staða aldraðra og öryrkja í dag? Staða þeirra, sem eingöngu hafa tekjur frá almannatryggingum ert óásættanleg, þar eð þeir geta ekki framfleytt sér á lífeyri almannatrygginga.Þessi hópur aldraðra og öryrkja verður því að treysta á ættingja eða hjálparstofnanir eða neita sér um einhverja mikilvæga útgjaldaliði eins og læknishjálp,lyf eða mat. Þetta láta stjórnvöld viðgangast, þetta sættir alþingi sig við. Enginn í þjóðfélaginu hreyfir legg né lið til þess að laga þetta ástand. Ráðamenn segja einungis, að það megi ekki hafa lífeyri of háan, þar eð þá verði enginn hvati fyrir lífeyrisfólk að leita sér vinnu.Fjármálaráðherrann vill reka sjötuga og áttræða eldri borgara út á vinnumarkaðinn!
Einhleypur ellilífeyrisþegi, sem hefur eingöngu tekjur frá almannnatryggingum, hefur 207 þúsund krónur á mánuði eftir skatt. Húsnæðiskostnaður er 130-160 þúsund krónur á mánuði. Þegar búið er að greiða þann lið er lítið eftir fyrir mat,hreinlætisvörum,fatnaði,samgöngukostnaði,síma,sjónvarpi,tölvukostnaði og gjöfum fyrir barnabörnin. Það er ekki unnt að lifa mannsæmandi lífi af þessari hungrurlús og raunar ekki unnt að framfleyta sér af henni. Ellilífeyrisþegi, sem er í hjúskap eða sambúð, fær aðeins 185 þúsund krónur á mánuði eftir skatt.
Ef eldri borgari hefur 100 þúsund krónur á mánuði úr lífeyrissjóði er staða hans lítið betri en þeirra, sem engan lífeyrissjóð hafa. Skattar og skerðingar eru miklar. Sá sem hefur 100 þúsund krónur á mánuði úr lífeyrissjóði sætir 50 þúsund króna skerðingu lífeyris TR eftir skatt. Samkvæmt tillögum endurskoðunarnefndar almannatrygginga mun skerðingin minnka um 5400 krónur á mánuði eftir skatt verði tilllögurnar samþykktar. Það breytir litlu.Ef viðkomandi hefur 200 þúsund krónur úr lifeyrissjóði á mánuði verður skerðing óbreytt. Skerðingin er 90 þúsund krónur á mánuði í dag eftir skatt og hún verður áfram 90 þúsund krónur á mánuði eftir skatt verði tillögurnar samþykktar. Ef eldri borgarinn hefur 100 þúsund króna atvinnutekjur sætir hann engri skerðingu í dag, þar eð frítekjumark er 109 þúsund krónur á mánuði en samkvæmt nýju tilllögunum verður skerðing 45 þúsund á mánuði við þessar atvinnutekjur.Með öðrum orðum: Staðan versnar um 45 þúsund krónur á mánuði. 3ja ára starf við endurskoðun almannatrygginga skilar engu í þessum tilvikum. Og það sem allra verst er: Lífeyrir aldraðra og öryrkja hjá þeim, sem eingöngu hafa tekjur frá TR hækkar ekkert, ekki um eina krónu.Til hvers var leikurinn gerður?
Björgvin Guðmundsson
viðskiptafræðingur
Fréttablaðið 18.mai 2016
| Deila � Facebook |
N�justu pistlarnir: Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018 Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018 Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018 Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017 Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017 Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017 Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017 Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017 Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017 Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017 Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016 Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016 Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016 Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016 Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016 Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016 Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016 Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016 Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016 Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016 Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016 Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016 Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016 Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016 Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016 76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016 Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016 Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016 Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016 Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016
|
|