|
Aldraðir eiga að fá 300 þúsund á mánuðiþriðjudagur, 6. október 2015
|
Aldraðir og öryrkjar eiga siðferðilegan rétt á því að fá sömu hækkun á lífeyri sínum frá TR eins og verkafólk fær á sínum launum samkvæmt nýgerðum kjarasamningum.Fjármálaráðherra svaraði því neitandi, þegar formaður Samfylkingarinnar spurði að því á alþingi, hvort lífeyrir yrði hækkaður til jafns við lægstu laun.Fjármálaráðherra sagði, að ríkið hefði ekki efni á því að hækka lífeyri aldraðra og öryrkja! Ráðherrann gaf jafnframt í skyn, að ríkinu bæri ekki skylda til þess að hækka lífeyri jafnmikið og laun!
Hækkun til lífeyrisþega lögbundin
Lengi vel var það svo, að tilgreint var ákveðið í lögum, að lífeyrir ætti að hækka jafnmikið og lágmarkslaun.Davíð Oddsson lét sem forsætisráðherra og formaður Sjàlfstæðisflokksins fella þetta ákvæði úr lögunum. En í staðinn var sett í lögin, að við hækkun lífeyris ætti að taka mið af launaþróun en lífeyrir aldrei að hækka minna en vísitala neysluverðs. Þegar Davíð sætti gagnrýni fyrir þessa breytingu sagði hann, að þetta yrði betra fyrir lïfeyrisþega. Nú væru þeir tryggðir bæði með belti og axlaböndum.Það skýtur því skökku við, að núverandi formaður Sjálfstæðisflokksins reyni að ómerkja orð Davíðs og neiti að láta lífeyri hækka til jafns við lægstu laun!
Aldraðir fái 300 þúsund fyrr
Lífeyrir aldraðra og öryrkja verður að hækka í 300 þús kr á mánuði eins og laun.Lögin og andi þeirra segja það.Og yfirlýsing Davíðs Oddssonar sem forsætisràðherra styður við þá túlkun.Spurningin er aðeins sú, hvort lífeyrir þurfi ekki að hækka fyrr í 300 þúsund en eftir 3 ár. Ef til vill væri eðlilegra að lífeyrir aldraðra og öryrkja hækkaði í 300 þúsund eftir 2 ár. Neyslukönnun Hagstofunnar segir, að meðaltalsneysla einhleypinga sé 321 þúsund krónur á mánuði.En lífeyrir aldraðra einhleypinga frá TR er aðeins 192 þúsund kr á mánuði eftir skatt. Þetta eru sambærilegar tölur.Það vantar því 129 þús kr á mánuði upp á, að lífeyrir aldraðra og öryrkja frá TR nái neyslukönnun Hagstofunnar.Lífeyrisþegar geta ekki beðið í 3 ár eftir því, að sá munur verði jafnaður. Það átti að vera búið að jafna hann fyrir löngu.Það er hámark að jafna þennan mun á 2 árum.Hækki lífeyrir um 25000 kr á mánuði frá 1.mai sl., um 39500 eftir eitt ár og 64500 eftir 2 ár hefur þessi munur verið jafnaður. Jöfnun næst fyrr, ef ríkisstjórnin stendur við loforð stjórnarflokkanna um að jafna kjaragliðnun ( kjaraskerðingu) krepputímans strax.Það þýðir 45 þúsund kr hækkun lífeyris á mánuði. Nýir kjarasamningar losa ríkisstjórnina ekki undan loforðinu.Það er komin tími til, að ríkisstjórnin standi við gefin fyrirheit við aldraða og öryrkja.
Björgvin Guðmundsson
Formaður kjaranefndar
Félags eldri borgara
Í Rvk.
| Deila � Facebook |
N�justu pistlarnir: Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018 Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018 Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018 Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017 Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017 Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017 Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017 Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017 Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017 Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017 Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016 Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016 Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016 Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016 Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016 Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016 Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016 Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016 Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016 Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016 Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016 Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016 Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016 Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016 Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016 76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016 Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016 Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016 Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016 Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016
|
|