Svo virðist sem Sjálfstæðisflokkkurinn sé nú að fá áhuga á málefnum aldraðra, korteri fyrir kosningar. Vilhjálmur Þ.Vilhjálmsson borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins gagnrýndi flokksforustu Sjálfstæðisaflokksins harðlega á fundi á Akureyri rétt fyrir síðustu helgi,m.a. gagnrýndi hann flokkinn fyrir að standa ekki við ályktanir síðasta landfundar um hækkun lífeyris fyrir aldraða. Mbl. tekur undir gagnrýni Vilhjálms á Sjálfstæðisflokkinn.
Fyrir nokkru skrifaði undirritaður eftirfarandi grein á heimasíðu Félags eldri borgara ( www.feb.is)Greinin birtist einnig í Fréttablaðinu 24.mars sl.
Kosningar nálgast nú. Sveitarstjórnarkosningar verða í vor og alþingiskosningar vorið 2007.Stjórnmálamenn verða þá að standa fyrir máli sínu frammi fyrir kjósendum.Það er því gott tækifæri nú að láta stjórnmálamenn standa við loforð sín við aldraðra og öryrkja.Það er einnig tímabært nú að knýja á um svör stjórnmálamanna um það hvernig og hvenær þeir ætla að bæta kjör þessara hópa.
Fylgja þarf tillögum eftir
Stjórnarandstaðan hefur flutt margar tillögur um að bæta kjör aldraðra. Samfylkingin flutti tillögu á síðasta hausti um afkomutryggingu aldraðra en samkvæmt henni átti að tryggja öldruðum lágmarkslífeyri, sem væri sem næst því sem þeir þyrftu sér til framfærslu. Frjálslyndir og Vinstri grænir hafa einnig flutt tillögur um að bæta kjör aldraðra. En gallinn er sá, að þessum tillögum er ekki fylgt nægilega vel á eftir. Þær eru lagðar fram á alþingi og vísað til nefnda en síðan ekki söguna meir. Ríkisstjórnin svæfir þessar tillögur í nefnd og það heyrist ekkert meira um þær.Stjórnarandstaðan fylgir þessum tillögum ekki nærri nógu vel eftir. Það á stanslaust að knýja á um þessi mál,flytja stöðugar fyrirspurnir og ekki linna látum fyrr en það liggur skýrt fyrir hvort ríkisstjórnin vill samþykkja .þessar tillögur eða synja þeim.
Efna verður loforð og fyrirheit
Talsmenn ríkisstjórnarinnar tala eins og þeir vilji bæta kjör eldri borgara. Og Sjálfstæðisflokkurinn samþykkti tillögur á síðasta landsfundi flokksins um úrbætur í málefnum eftirlaunafólks.En nú er komið að skuldadögum. Nú er komið að því að efna verður loforð og fyrirheit um bætt kjör eldri borgara.
Eiga eldri borgarar að bjóða fram?
Ólafur Ólafsson núverandi formaður Landssambands eldri borgara og fyrrverandi formaður Félags eldri borgara (FEB) í Reykjavík varpaði fram þeirri hugsmynd þegar hann var formaður FEB,að eldri borgarar ættu að að bjóða fram við kosningar, ef málefnum þeirra yrði ekki komið í lag. Það var róttæk og góð tillaga. Og hún á fullan rétt á sér enn í dag.Hún á rétt á sér á meðan stjórnvöld nánast hundsa samtök eldri borgara. En það gera þau.
Það verður að breyta um vinnubrögð
Samráðsnefndir stjórnvalda og eldri borgara hafa ekki starfað eins og ákveðið var í upphafi. Og nú er sagt,að eldri borgarar fái eitthvað að heyra næsta haust! Það er of seint. Þetta er að hundsa eldri borgara. Og sumir ráðherrar hafa nánast rekið eldri borgara út af skrifstofum sínum, þegar þeir hafa viljað ræða málin.Það er að hundsa eldi borgara. Eldri borgarar geta ekki látið bjóða sér þetta lengur. Þeir þurfa að breyta um vinnubrögð. Þeir verða að leggja fram skýrar kröfur um aðgerðir strax, t.d. hækkun um 17000 kr. á mánuði strax á lífeyri aldraðra. Ekki hækkun í haust eða um áramót.Nei,hækkun strax. Það eru nógir peningar til í þjóðfélaginu. Og ef stjórnvöld verða ekki við kröfum eldri borgara strax á að grípa til róttækra aðgerða.
Björgvin Guðmundsson
Birt í Fréttablaðinu 24..mars 2006