Samkeppnisráð hefur kveðið upp úrskurð í máli olíufélaganna,þ.e. varðandi meint ólögmætt samráð félaganna.Komst samkeppnisráð að þeirri niðurstöðu,að félögin hefðu gerst sek um ólögmætt samráð um verð,skiptingu markaðar o.fl. Voru félögin af þessum sökuð sektuð um háar fjárhæðir eða um 1,1 milljarð hvert. Olíufélagið (Esso )og Olís fengu síðan mikla afslætti vegna samstarfs við samkeppnisyfirvöld. Skeljungur fékk engan afslátt.
Skýrsla samkeppnisstofnunar um rannsókn á starfsemi olíufélaganna er mikil að vöxtum og leiðir í ljós mjög gróf brot félaganna á samkeppnislögum. Eru brotin framin á 10 ára tímabili. Forstjóri Samkeppnisstofnunar,Georg Ólafsson,lét svo ummmælt í viðtali við Sjónvarpið að hér væri um samsæri gegn íslenskum atvinnuvegum að ræða.Talið er að olíufélögin hafi með hinu ólögmæta samráði skaðað íslenskt þjóðfélag um 40-50 milljarða kr. Hagnaður olíufélaganna er talinn um 6,5 milljarðar.
Lögreglurannsókn stendur enn yfir á þætti forstjóra olíufélaganna í máli þessu.Það er sjálfstætt mál að rannsaka hvort forstjórarnir hafa gerst sekir um refsiverða háttsemi.Af skýrslu samkeppnisstofnunar er ljóst,að forstjórarnir tóku allar ákvarðanir um hið ólögmæta samráð olíufélaganna.Ábyrgð þeirra er því mikil.
Fjölmiðlar hafa gert mikið úr þætti Þórólfs Árnasonar,borgarstjóra í máli þessu en hann var markaðsstjóri hjá Esso þegar hið ólögmæta samráð olíufélaganna átti sér stað. Er engu líkara en fjölmiðlar telji,að Þórólfur sé aðalsökudólgurinn í máli þessu en forstjórarnir “ stikk frí”! Hér er málum að sjálfsögðu snúið algerlega á haus. Þórólfur var aðeins undirmaður eða millistjórnandi hjá Esso. Hann vann undir stjórn forstjórans og bar enga ábyrgð á ákvörðunum forstjóra enda þótt Þórólfur hafi undirbúið fundi forstjóra um verðsamráð olíufélaganna tók hann engar ákvarðanir um það og bar enga ábyrgð á því.Geir Magnússon,fyrrverandi forstjóri Esso, segir,að Þórólfur hafi ekki haft ákvörðunarvald um verðsamráð.Þegar Þórólfur var ráðinn borgarstjóri gerði hann R-listanum grein fyrir þætti sínum í umræddi máli,sem var þá til rannsóknar hjá samkeppnisyfirvöldum. R-listinn hafði þá tækifæri til þess að hætta við að ráða Þórólf. En R-listinn tók skýringar Þórólfs gildar.Hið sama gerðist þegar frumrannsókn lauk sl. ár. Ekkert hefur breytst síðan. Hið eina,sem hefur breytst er það,að olíufélögin hafa verið sektuð og olíufélögin nýttu andmælarétt sinn.En samráð olíufélaganna lá fyrir þegar Þórólfur var ráðinn og Þórólfur gerði þá grein fyrir sínum þætti í því.Það er því ekki við Þórólf að sakast. Ef eitthvað er að í máli þessu er það sök R-listans,sem réði Þórólf enda þótt hann hefði verið starfsmaður Esso,þegar ólögmætt samráð átti sér stað.
Fjölmiðlum hættir við því að blása viss mál mikið upp og þeir vilja gjarnan hengja einhverja persónu,einkum ef hún er viðriðin stjórnmál.Það er athyglisvert,að í þessu máli hafa fjölmiðlar hundelt Þórólf Árnason en gefið forstjórum olíufélaganna frið. Það er vegna þess,að Þórólfur er borgarstjóri og það er vegna þess að hann er borgastjóri R-listans. En fjölmiðlar gleyma því,að Þórólfur er ekki stjórnmálamaður. Hann er embættismaður og ber ekki neina pólitíska ábyrgð. Þess vegna á ekki að meðhöndla hann eins og stjórnnmálamann.Það væri nær að athuga hvaða stjórnmálamenn bera ábyrgð á einokun og verðsamráði olíufélaganna.
Björgvin Guðmundsson
Birt í Fréttablaðinu 9.nóv. 2004
"Fjölmiðlum hættir við því að blása viss mál mikið upp og þeir vilja gjarnan hengja einhverja persónu,einkum ef hún er viðriðin stjórnmál. Það er athyglisvert,að í þessu máli hafa fjölmiðlar hundelt Þórólf Árnason en gefið forstjórum olíufélaganna frið. Það er vegna þess að Þórólfur er borgarstjóri og það er vegna þess að hann er borgarstjóri R-listans.En fjölmiðlar gleyma því,að Þórólfur er ekki stjórnmálamaður. Hann er embættismaður og ber ekki neina pólitíska ábyrgð. Þess vegna á ekki að meðhöndla hann eins og stjórnmálamann. Það væri nær að athuga hvaða stjórnmálamenn bera ábyrgð á einokun og verðsamráði olíufélaganna. "
|