Ríkisstjórnin lofaði því fyrir kosningar,að hún mundi standa vörð um velferðarkerfið.Þetta loforð hefur verið margítrekað.Samfylkingin hefur margsinnis lýst því yfir, að hún muni standa vörð um um almannatryggingar og kjör þeirra lægst launuðu. En nú er verið að svíkja þessi loforð. Nú ræðst ríkisstjórnin á kjör aldraðra og öryrkja og lækkar laun (lífeyrir) þeirra verulega.Er engu að treysta lengur.Var ekki verið að tala um nýja tíma.Átti það ekki að vera liðin tíð, að unnt væri að svíkja kosningaloforð. Átti það ekki að tilheyra fortiðinni, að unnt væri að segja eitt við kjosendur og gera annað eftir kosningar.Ég helt það.Eitt veit ég: Stjórnvöld komast ekki upp með það lengur að svíkja kjósendur.Sú ríkisstjórn, sem gerir það verður sett til hliðar.
Tekjutrygging skert-aukin skerðing vegna atvinnutekna
Samkvæmt frumvarpi ríkisstjórnarinnar um ráðstafanir í ríkisfjármálum á að skerða tekjutryggingu aldraðra og öryrkja,það á einnig að auka skerðingu lífeyris eldri borgara á ný vegna atvinnutekna og það á að taka upp skerðingu á grunnlífeyri eldri borgara vegna tekna úr lífeyrissjóði.Á valdatímabili Sjálfstæðisflokksins 1995 til 2007 varð engin skerðing á grunnlífeyri vegna tekna úr lífeyrissjóði.Það skýtur´því skökku við,að félagshyggjustjórn skuli taka upp slíka skerðingu. Það er stefna Landssambands eldri borgara,að afnema með öllu skerðingu lífeyris aldraðra vegna tekna úr lífeyrissjóði.Samtökin líta svo á,að lífeyrisþegar eigi lífeyrinn, sem safnast hefur upp í lífeyrissjóðum og því megi ekki skerða tryggingabætur,þegar þessi lífeyrir er greiddur út. En hér stefnir ríkisstjórnin í öfuga átt.
Almenningur vil réttlátan niðurskurð
Mönnum er ljóst,að ríkisstjórnin verður að spara í ríkisrekstrinum og það verður að eyða fjárlagahallanum á ákveðnu árabili.En almenningur vill, að staðið sé að sparnaði og skattahækkunum á réttlátan hátt.Fólk vill ekki að byrjað sé á því að skera niður almannatryggingar og kjör aldraðra og öryrkja.En það er einmitt það,sem ríkisstjórnin er að gera. Hún ætlar að skera niður almannatryggingar um 3,1 milljarð á þessu ári og vegaframkvæmir um 3,5 milljarða í ár en það er lítiið um annan niðurskurð að ræða á þessu ári.Niðurskurður annarra ráðuneyta á fyrst og fremst að byrja á næsta ári. Þetta er ekki að hlífa velferðarkerfinu.Þetta heitir að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur. Það á að skera niður kjör aldraðra og öryrkja um 1,8 milljarða á þessu ári. Það hefði mátt sleppa því með öllu og halda kjörum aldraðra og öryrkja óbreyttum.
Launþegar fá kauphækkun eða halda óbreyttum launum--eldri borgarar lækka!
Alþýðusamband Ísland hefur lagt á það þunga áherslu, að umsamin launahækkun launþega á almennum vinnumarkaði kæmi til framkvæmda nú en henni var frestað í upphafi árs. Ekki veit ég hvernig það mál stendur þegar þessi grein birtist. En ég tel víst, að annað hvort haldist laun á almennum vinnumarkaði óbreytt eða þá að þau hækki í áföngum.Ég spyr því: Eiga laun aldraðra og öryrkja að lækka á sama tíma og kaup launþega almennt hækkar eða verður óbreytt? Hvernig dettur ríkisstjórninni í hug,að aldraðir og öryrkjar sætti sig við það, hvernig dettur ríkisstjórninni í hug,að almenningur sætti við við það, að níðst sé á kjörum aldraðra og öryrkja? Almenningur sættir sig ekki við það.Og ef þetta gengur fram er verið að bjóða heim nýrri búsáhaldabyltingu. Almenningur sættir sig ekki við áframhaldandi ranglæti í þjóðfélagingu. Almenningur sættir sig ekki við,að ríkið skerði kjör aldraðra og örykja í landinu á sama tíma og launþegar almennt halda óbreyttum kjörum eða fá launahækkun.Ef ráðherrarnir ætla að skerða kjör aldraðra og öryrkja skulu þeir fyrst leggja ráðherrabílunum,lækka eigin laun og skera hraustlega niður öll laun í ríkiskerfinu ( og bönkuinum) ekki aðeins niður í laun forsætirráðherra heldur niður í 400-500 þúsund á mánuði.Og ríkisstjórnin verður þá fyrst að skera niður í öllum öðrum ráðuneytum ,ekki á blaði heldur í framkvæmd.. Fjármálaráðherra hefur sagt,að ekki verði hreyft við taxtalaunum opinberra starfsmanna. En lífeyrir aldraðra og öryrkja er sambærilegur taxtalaunum.Ef ekki má hreyfa við taxtalaunum hjá opinberum starfsmönnum má heldur ekki hreyfa við lífeyri aldraðra og öryrkja.Hann er í lágmarki.Það verður því að draga til baka kjaraskerðingu lífeyrisþega.
Björgvin Guðmundsson
Birt í Morgunblaðinu 2.júlí 2009
|