|
Stöðva verður "eignaupptöku" lífeyris straxsunnudagur, 15. desember 2013
| Þegar lífeyrissjóðirnir voru stofnaðir, var gert ráð fyrir því, að þeir yrðu viðbót við almannatryggingar.Launþegar samþykktu að greiða ákveðið hlutfall launa sinna í lífeyrissjóð gegn ákveðnu mótframlagi atvinnurekenda.Síðan áttu launþegar að fá lífeyrinn úr lífeyrissjóðnum greiddan að fullu, þegar þeir færu á eftirlaun.Þá áttu þeir að fá greiddan þennan viðbótarlífeyri ásamt lífeyri almannatrygginga. Gerist þetta ekki svona? Nei ekki aldeilis. Launþegi, sem hefur 70 þús. kr. á mánuði í lífeyri úr lífeyrissjóði, fær engan lífeyri úr almannatryggingum.Ríkisvaldið dregur af þessum eftirlaunamanni nákvæmlega jafnháa upphæð hjá Tryggingastofnun ríkisins eins og nemur lífeyri hans frá lífeyrissjóði. Launþeginn, sem samviskusamlega hefur greitt í lífeyrirsjóð alla sína starfsævi, fær því ekkert hærri lífeyri alls frá almannatryggingum og lífeyrissjóði en sá, sem aldrei hefur greitt eina krónu í lífeyrissjóð. Það er líkast því sem lífeyrir þessa manns í lífeyrissjóðnum hafi verið gerður upptækur! Menn spyrja: Er þetta löglegt.Er þetta ekki eignaupptaka? Ég hallast að því, að svo sé
Lífeyrissjóðskerfið gæti sprungið!
Það verður að stöðva þessa “ eignaupptöku” þegar í stað.Ríkisvaldið verður strax að stöðva það, að Tryggingastofnun ríkisins geti skert lífeyri þeirra eldri borgara, sem fá lífeyri úr lífeyrissjóði .Gerist það ekki, verður uppreisn gegn lífeyrissjóðakerfinu. Það er svo mikil óánægja í dag með þessar skerðingar, að það er rétt með naumindum að launþegar fást til þess að greiða iðgjöldin í lífeyrissjóðina .Launþegum finnst eins og það sé verið að blekkja þá, það sé verið að plata þá. Inn í þessa óánægju blandast óánægjan með stjórnarfyrirkomulag lífeyrissjóðanna. Sjóðfélagarnir sjálfir kjósa ekki stjórnarmenn lífeyrissjóða beinni kosningu heldur eru það ASÍ og SA, sem kjósa stjórnarmenn lífeyrissjóðanna. Þessu verður að breyta. Sjóðfélagar eiga sjálfir að kjósa stjórnarmennina, alla eða flesta. Ég er ekki viss um, að forusta aðila vinnumarkaðarins geri sér ljóst hvað mikil óánægja er í dag með lífeyrissjóðskerfið. Mitt mat er það, að ef ekki verður strax brugðist við og skerðingar tryggingabóta vegna greiðslna úr lífeyrissjóði stöðvaðar, geti lífeyrissjóðskerfið hæglega sprungið.
Kjaranefnd Félags eldri borgara í Reykjavík ályktaði um mál þetta 13.desember sl.Þar sagði svo:
Jafnframt fer kjaranefndin fram á það, að ríkisstjórnin stöðvi þegar í stað skerðingu lífeyris aldraðra frá almannatryggingum vegna greiðslna úr lífeyrissjóði. Þessi skerðing er svo mikil í dag, að hún eyðir með öllu ávinningi margra ellilífeyrisþega af því að hafa greitt í lífeyrissjóð. Í þessu sambandi vísar kjaranefndin í ályktun aðalfundar FEB í Reykjavík á þessu ári um þetta efni.
Það er einnig krafa eldri borgara, að hætt verði að skerða lífeyri vegna atvinnutekna aldraðra.Það á ekki að refsa eldri borgurum fyrir að vinna.
Björgvin Guðmundsson
Birt í DV 10.desember 2013
Loforðin við lífeyrisþega verði efnd
Í aðdraganda þingkosninganna sl. vor gáfu núverandi stjórnarflokkar öldruðum og öryrkjum mjög ákveðin kosningaloforð. Stærsta kosningaloforðið var, að kjaragliðnunin, sem varð sl. 4 ár, skyldi leiðrétt strax. Með kjaragliðnun er átt við það, að kaup láglaunafólks hækkar mun meira en lífeyrir aldraðra og öryrkja. Lögum samkvæmt á lífeyrir að hækka í samræmi við hækkun lægstu launa og í samræmi við hækkun neysluverðs.En skorið var á þessi tengsl í kreppunni og lífeyrir aldraðra og öryrkja frystur. Til þess að leiðrétta þessa kjaragliðnun þarf að hækka lífeyrinn um 20% strax. Framsóknarflokkurinn og Sjálfstæðisflokkurinn lofuðu fyrir kosningar að framkvæma þessa leiðréttingu. Það var ekki aðeins, að frambjóðendur flokkanna gæfu þessi loforð heldur var það einnig samþykkt á flokksþingum beggja flokkanna fyrir kosningar, að umrædd kjaragliðnun yrði leiðrétt strax, kæmust þessi flokkar til valda. Nú er komið að skuldadögum. Aldraðir og öryrkjar geta ekki beðið. Þeir krefjast þess, að staðið verði við þessi loforð strax.
Björgvin Guðmundsson
Birt í DV 10.des. 2013 | Deila � Facebook |
N�justu pistlarnir: Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018 Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018 Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018 Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017 Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017 Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017 Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017 Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017 Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017 Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017 Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016 Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016 Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016 Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016 Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016 Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016 Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016 Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016 Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016 Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016 Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016 Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016 Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016 Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016 Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016 76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016 Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016 Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016 Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016 Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016
|
|