|
Lífeyrir aldraðra hækki í 300 þúsund kr. á mánuðiþriðjudagur, 4. ágúst 2015
|
Verkalýðshreyfingin býr sig nú undir hörð átök í kjaramálum. Fyrstu verkföllin hafa verið boðuð. Kjarasamningar eru lausir og flest verkalýðsfélög hafa sett fram kröfur sínar um kjarabætur. Starfsgreinasambandið fer fram á, að laun hækki á 3 árum í 300 þúsund krónur á mánuði. Þetta er sú lágmarksupphæð, sem launþegar og allur almenningur þurfa sér til framfærslu. Þetta er lægra en neyslukönnun Hagstofunnar segir, að séu meðaltalsútgjöld einstaklinga til neyslu í landinu en þau nema 321 þúsund krónum á mánuði án skatta. Félag eldri borgara í Reykjavík hefur sett fram þá kröfu, að lífeyrir aldraðra hækki í áföngum í samræmi við neyslukönnun Hagstofunnar og verði 321 þúsund krónur á mánuði.
ASÍ styðji kröfu lífeyrisþega
Nú þegar Starfsgreinasambandið hefur sett fram kröfu um 300 þúsund króna laun á mánuði er eðlilegt, að aldraðir og öryrkjar setji fram hliðstæða kröfu, þ.e. að laun ( lífeyrir ) lífeyrisþega hækki í sömu upphæð og kaup launþega. Landssamband eldri borgara hefur áður sett fram slíka kröfu og leitað stuðnings ASÍ við þá kröfugerð. Eldri borgarar vænta þess, að verkalýðshreyfingin taki kröfur lífeyrisþega upp í viðræðum við ríkisstjórnina í tengslum við væntanlega kjaradeilu. ASÍ þarf að setja fram þá kröfu, að lífeyrir aldraðra og öryrkja hækki i nákvæmlega sömu upphæð og laun verkafólks munu hækka í. Það er eðlileg og réttmæt krafa og það er eðlilegt, að verkalýðshreyfingin styðji aldraða og öryrkja í þessu efni.
Lífeyrir aldraðra á að hækka í takt við laun
Í lögum segir, að við ákvörðun lífeyris aldraðra og öryrkja skuli taka mið af launaþróun en að lífeyrir skuli aldrei hækka minna en vísitala neysluverðs. Þetta lagaákvæði hefur verið þverbrotið. Lífeyrir aldraðra hefur hvergi nærri hækkað eins mikið og lægstu laun. Aldraðir og öryrkjar hafa orðið eftir í launaþróuninni. Lífeyrir aldraðra og öryrkja hefur iðulega verið frystur á sama tíma og lægst laun hafa hækkað. Þetta er kallað kjaragliðnun og aldraðir krefjast þess, að hún verði strax leiðrétt vegna krepputímans og lífeyrir hækkaður um 20% áður en yfirstandandi kjaradeila leysist. Síðan þarf að gæta þess við lausn kjaradeilunnar og framvegis, að lífeyrir hækki ávallt jafnmikið og lægstu laun.
Enn kjaragliðnun
Nýlega birti Hagstofan tölur um þróun kaupmáttar launa sl. ár. Samkvæmt þeim jókst kaupmáttur launa verkafólks um 5,8% árið 2014. Lífeyrir aldraðra og öryrkja hækkaði hins vegar aðeins um 3,6% um síðustu áramót. Hér hefur því enn átt sér stað kjaragliðnun. Eldri borgarar krefjast þess, að þetta verði strax leiðrétt og lífeyrir aldraðra hækkaður vegna þessarar kjaragliðnunar. Nóg er ranglætið fyrir.
Björgvin Guðmundsson
formaður kjaranefndar Félags eldri borgara
í Reykjavík
Birt i Frettablaðinu 8.april 2015
| Deila � Facebook |
N�justu pistlarnir: Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018 Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018 Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018 Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017 Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017 Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017 Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017 Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017 Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017 Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017 Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016 Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016 Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016 Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016 Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016 Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016 Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016 Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016 Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016 Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016 Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016 Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016 Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016 Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016 Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016 76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016 Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016 Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016 Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016 Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016
|
|