|
Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?fimmtudagur, 2. ágúst 2018
| Hvers vegna er afstaða stjórnvalda á Íslandi neikvæð til eldri borgara? Hvers vegna eru stjórnvöld hér ekki að leggja sig fram um að bæta kjör aldraðra og gera þeim lífið sem léttast? Þannig er það í grannlöndum okkar.Þar leggja stjórnvöld sig fram um að gera lífið sem bærilegast, lífskjörin sem léttust síðasta hluta æviskeiðsins.Formaður í samtökum eldri borgara,sem fór að heimsækja systursamtök sín í Danmörku fyrir mörgum árum undraðist hvað stjórnvöld þar voru jákvæð í garð aldraðra; átti því ekki að venjast hér.Gott dæmi um neikvæða afstöðu til aldraðra er hjá núverandi ríkisstjórn.Stjórnin hefur verið við völd í 8 mánuði en hún hefur ekki lyft litla putta til þess a bæta kjör eða aðstöðu aldraðra.Þó á að heita svo, að „róttækur sósialistaflokkur“ veiti stjórninni forstöðu.Hvað veldur sinnuleysi stjórnarinnar? Það er rannsóknarefni.Vinstri grænir skertu kjör aldraðra og öryrkja 2009 ásamt Samfylkingunni í kjölfar bankahrunsins en þá voru skuldir ríkisins orðnar yfir 200 milljarðar kr.Það hefði því átt að vera kærkomið tækifæri fyrir VG nú að bæta kjör aldraðra og öryrkja,þegar staða það sé þjóðarbúsins er orðin betri.En VG telur greinilega ekki þörf á því; heldur hagar sér eins og enn kreppa í landinu gagnvart þeim sem verst standa í þjóðfélaginu!
Ég hef minnst á það áður, að ég tel,að það hve lífeyri aldraðra og öryrkja er haldið lágum hér sé brot á stjórnarskránni.Samkvæmt 76.gr stjórnarskrárinnar á ríkið að veita öldruðum og öryrkjum aðstoð, ef þarf.Það þarf frekari aðstoð til þeirra kvæntra aldraðra, sem eingöngu hafa 204 þúsund kr. á mánuði eftir skatt.Það lifir enginn af þeirri hungurlús.Aðeins húsaleiga er hátt í 200 þúsund kr á mánuði og þó húsnæðiskostnaður sé heldur lægri hjá þeim,sem eiga sitt húsnæði munar það ekki mjög miklu.Þá er einnig eftir að greiða allan annan kostnað,matvæli,fatnað,samgöngukostnað,rafmagn, hita, , síma sjónvarp, tölvu,læknishjálp,,afþreyingu,gjafir til barna og barnabarna, o.s.frv.,o.s.frv. Það er engin leið að lifa af þessum lága lífeyri,sem ríkið skammtar öldruðum og öryrkjum.Það er í rauninni verið að svelta aldraða og öryrkja með því að halda þeim svona niðri og neita að leiðrétta lífeyrinn.Réttlætinu verður ekki frestað sagði Katrín Jakobsdóttir, þegar hún var í stjórnarandstöðu 2017 og var að gagnrýna Bjarna Benediktsson.Þá vildi hún ekki fresta leiðréttingu á lífeyri; vildi ekki fresta réttlætinu. Nú er hún að fresta því!! Þó einhleypir aldraðir hafi nokkrum krónum hærri lífeyri munar það engum ósköpum. Einhleypir aldraðrir,sem eingöngu hafa lífeyri frá TR hafa 239 þús. á mánuði eftir skatt.Síðan er það furðulegt,að stjórnvöld skuli komast upp með það að mismuna einhleypum og giftum öldruðum og öryrkjum eftir því hvort þeir eru einhleypir eða í hjónabandi (eða sambúð).Það svona svipað og sagt væri við verkamenn, að þeir fengju lægra kaup fyrir vinnu sína,en þeir væru giftir! Það stenst ekki,hvorki hjá verkafólki né hjá öldruðum eða öryrkjum.Það er engin spurning,að stjórnvöld eru að brjóta stjórnarskrána á öldruðum og öryrkjum. Það er furðulegt,að stjórn undir forustu „róttæks sósialistaflokk“ skuli gera það.Það verður að stöðva brot á stjórnarskránni strax.
Ég hef undanfarið birt samanburð á kjörum aldraðra hér, á hinum Norðurlöndunum og innan OECD.Þessi samanburður leiðir í ljós,Ísland rekur lestina,að því er greiðslur ríkisins til eftirlauna varðar.Það hefur lengi verið vitað að Norðurlöndin standa okkur framar í þessu efni en það kemur á ávart, að ríkin innan OECD skuli einnig standa okkur framar í þessu efni,miðað við eftirlaun sem hlutfall af vergri þjóðarframleiðslu.Hvað þýðir þetta?Það þýðir það,að íslenskir stjórnmálamenn hafa svikið aldraðra að því er varðar greiðslu eftirlauna til þeirra.Íslenska ríkið hefur greitt þeim lægri eftirlaun en önnur OECD ríki til jafnaðar eða 2% af vergri landsframleiðslu miðað við 8% í ríkjum OECD. Samt hefur hagvöxtur verið meiri hér síðustu árin en í flestum löndum Evrópu.Hvað verður um hagvöxtinn? Aldraðir njóta hans ekki.
Björgvin Guðmundsson,viðskiptafræðingur
Fréttablaðið 2.ág. 2018
| Deila � Facebook |
N�justu pistlarnir: Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018 Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018 Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018 Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017 Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017 Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017 Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017 Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017 Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017 Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017 Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016 Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016 Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016 Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016 Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016 Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016 Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016 Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016 Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016 Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016 Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016 Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016 Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016 Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016 Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016 76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016 Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016 Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016 Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016 Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016
|
|