Skerðing ekki afnumin fyrr en 1.janúar 2010
Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar og Landssambands eldri borgara er mikið talað um alls konar umbætur einhvern tímann í framtíðinni.Þetta á við afnám ýmissa skerðinga og umbætur í vistunarmálum aldraðra.
Er verið að blekkja eldri borgara?
Það glaðnaði yfir mörgum, þegar þeir heyrðu að afnema ætti skerðingu á lífeyri almannatrygginga vegna tekna úr lífeyrissjóði..En sú gleði stóð ekki lengi.Við athugun kom í ljós,að þessi breyting átti ekki að taka gildi fyrr en 1.janúar 2010.En þetta var birt í yfirlýsingunni eins og þetta væri á næsta leyti.Hvers vegna var það gert? Var vísvitandi verið að blekkja lífeyrisþega? Það er engu líkara en svo hafi verið. Og hið sama er að segja um afnám ýmissa annarra skerðinga og aðgerðir í vistunarmálum aldraðra. Þetta á fyrst og fremst að gerast í framtíðinni og því er alger óvissa um framkvæmdina. Hún er háð fjárveitingum alþingis og þeirra sem stjórna í framtíðinni
.
Engin skerðing á hinum Norðurlöndunum
Á hinum Norðurlöndunum er ellilífeyrir ekki skertur vegna tekna úr lífeyrissjóði. Eldri borgarar halda óskertum lífeyri frá almannatryggingum þó þeir hafi góðan lífeyrir frá lífeyrissjóði. Enda er það eðlilegt. Lífeyrissjóðirnir eru eign þeirra,sem greitt hafa í lífeyrissjóðina á starfsævi sinni.Lífeyririnn er nokkurns konar sparnaður, sem menn taka síðan út þegar þeir eldast. Það er fráleitt að hegna mönnum fyrir þann sparnað með því að skerða bætur Tryggingastofnunar vegna hans. Og það er einnig fráleitt að skattleggja lífeyri úr lífeyrissjóði jafnhátt og atvinnutekjur þ.e. með 37% skatti.Það ætti í mesta lagi að leggja 10% skatt á lífeyrinn en helst ætti hann að vera skattfrjáls.
Björgvin Guðmundsson
Birt í Fréttablaðinu 19.ágúst 2006