Ríkisstjórnin hefur svikið samkomulagið við öryrkja,sem koma átti að fullu til framkvæmda um áramótin.Segir stjórnin nú,að samkomulagið muni koma til framkvæmda í tveimur áföngum,nú um áramót og eftir eitt ár.Öryrkjabandalag Íslands segir þetta svik við samkomulagið,sem var handsalað milli heilbrigðisráðherra og formanns Öryrkjabandalags Íslands en samkvæmt því átti að framkvæma samkomulagið að fullu 1.janúar n.k. Heilbrigðisráðherra sagði á alþingi,að samkomulagið yrði efnt að fullu þó efna yrði það í áföngum! Helgi Hjörvar þingmaður Samfylkingarinnar sagði,að ekki væri unnt að skipta ærunni í áfanga!
BÆTA ÁTTI MEST KJÖR UNGRA ÖRYRKJA
Það var í mars sl.,að heilbrigðisráðherra,Jón Kristjánsson,náði samkomulagi við Öryrkjabandalag Íslands um kjarabætur til handa öryrkjum. Samkvæmt samkomulaginu átti að bæta mest kjör þeirra,sem yrðu ungir öryrkjar eða tvöfalda grunnlífeyri þeirra en einnig átti að bæta kjör annarra öryrkja en þó minna. Áætlað var þegar samkomulagið var gert,að það mundi kosta rúmlega einn milljarð að framkvæma það. Nú hefur komið í ljós,að samkomulagið kostar meira. Það kostar um hálfan annan milljarð að framkvæma það.
EFNDIR AÐEINS AÐ 2/3 HLUTUM
Heilbrigðisráðherra segir,að aðeins sé unnt að efna samkomulagið að 2/3 hlutum nú þar eð í fjárlagafrumvarpinu sé aðeins áætlað að veita 1 milljarði til framkvæmdar á samkomulaginu. 1/3 hluti samkomulagsins verði efndur eftir 1 ár. Sjálfstæðismenn segja,að ríkisstjórnin hafi aldrei samþykkt að verja meira en 1 milljarði til framkvæmdar á samkomulaginu. Öryrkjabandalag Íslands segir,að þetta séu hrein svik. Samkomulagið hafi verið um ákveðnar breytingar á kjörum öryrkja svo sem tvöföldun á grunnlífeyri ungra öryrkja.Og skýrt hafi verið tekið fram,að samkomulagið ætti að taka gildi 1.janúar að fullu.Ekki hafi verið nein heildarupphæð í sjálfu samkomulaginu. Af því leiði,að framkvæma hafi átt efni samkomulagsins án tillits til þess hvað það hafi kostað. Helgi Hjörvar þingmaður Samfylkingarinnar líkir samkomulagi þessu við venjulega kjarasamninga. Hann segir,að þegar fjármálaráðherra geri kjarasamninga við opinbera starfsmenn þá séu samningarnir efndir að fullu enda þótt þeir kosti meira en áætlað hafi verið. Hið sama eigi að gilda um kjarasamkomulagið við öryrkja.
HVAÐ VELDUR?
Erfitt er að sjá hvað ríkisstjórninni gengur til með því að svíkja samkomulagið við öryrkja. Er verið að niðurlægja heilbrigðisráðherra Framsóknar með því að gera hann að ómerkingi? Er ríkisstjórnin að sýna vald sitt? Öryrkjar hafa verið harðir í baráttunni við ríkisstjórnina.Er ríkisstjórnin að segja: Hingað og ekki lengra? Sú upphæð sem deilt er um er ekki svo há að það geti verið skynsamlegt fyrir ríkisstjórnina að stofna til nýrrar deilu við öryrkja. Hér er um 500 millj. að ræða. Stjórnarflokkarnir voru að samþykkja á alþingi margra milljarða aukafjárveitingar vegna þess,að farið var fram úr fjárlögum! Það er einmitt mjög algengt,að kostnaður við kjarasamninga sé mun meiri en áætlað hefur verið. Gildir annað um öryrkja?
Björgvin Guðmundsson,viðskiptafræðingur
|