Seðlabankinn hækkaði í byrjun desember stýrivexti um eitt prósentustig eða í 8,25%. Í kjölfarið hækkaði íslenska krónan um 2,8%. Gengi dollars fór við það í sögulegt lágmark eða í tæpar 62 kr.Það vill segja,að útflutningur í dollurum,sem fyrir fáum
árum lagði sig á 110 milljónir króna gaf eftir þessar ráðstafanir Seðlabankans innan við 62 milljónir kr.Samtök atvinnuveganna hafa reiknað út að þetta þýði 15 milljarða króna tekjulækkun hjá útflutningsatvinnuvegunum á ársgrundvelli.Þetta er hrap útflutningsverðmætis og setur útflutninginn í stórhættu.Enda eru mörg útflutningsfyrirtæki í miklum rekstrarerfiðleikum í dag. Útflutningstekjurnar hafa hrunið.Það sem bjargar mörgum fyrirtækjum er að þau eru með blandaðan rekstur,útgerð og fiskvinnslu og mörg þeirra skulda mikið erlendis í dollurum og þau njóta þess við lækkun dollars. En það á ekki við nema hluta fyrirtækjanna. Hér áður fyrr, þegar slíkir rekstrarerfiðleikar steðjuðu að útflutningnum eins og nú gerist, var venjan að fella gengið en það er liðin tíð. Nú mega fyrirtækin stöðvast og segja upp starfsfólki sínu.Fáir virðast hafa áhyggjur af því.
VERIÐ AÐ SLÁ Á ÞENSLU OG VERÐBÓLGU
Rök Seðlabankans fyrir mikilli hækkun stýrivaxta eru þau að slá þurfi á þenslu í efnahagslífinu og draga úr verðbólgu.Markmið Seðlabankans er að halda verðbólgu innan 2,5% á ársgrundvelli en verðbólgan er talsvert yfir því marki í dag.Seðlabankinn spáir 3,5% verðbólgu næstu 24 mánuði en aðrir spá allt að 3,9% verðbólgu.Útlit var fyrir,að þensla og verðbólga mundi aukast á næstunni.Miklar framkvæmdir við Kárahnjúka valda þar miklu en einnig aðrar framkvæmdir svo og mikil eftirspurn eftir húsnæði,sem hefur sprengt upp fasteignaverð.Hin nýju íbúðalán bankanna á lágum vöxtum,4,15%, og lánveitingum upp í 100% af verði fasteigna hafa ítt upp fasteignaverði.Þá á hátt olíuverð einnig þátt í aukinni verðbólgu.Það á eftir að koma í ljós hvort vaxtahækkun Seðlabankans slær verulega á verðbólguna.Líklegt er að svo verði en ef viðskiptabankarnir hækka sína útlánsvexti í takt við vaxtahækkun Seðlabankans er hætt við að vaxtahækkunin fari að hluta til út í verðlagið og valdi aukinni verðbólgu,sem verkar þá gegn vaxtahækkun bankans.
SEÐLABANKINN GAGNRÝNDUR Á ALÞINGI
Mjög eru skiptar skoðanir um vaxtahækkanir Seðlabankans.Hagfræðingar viðurkenna,að vaxtahækkun dragi yfirleitt úr þenslu en stjórnmálamenn eru ekki allir ánægðir með aðgerðir Seðlabankans.Þannig gagnrýndi Einar Oddur Kristjánsson alþingismaður vaxtahækkun Seðlabankans harðlega á alþingi og sagði,að hún stefndi hagsmunum útflutningsatvinnuveganna í hættu.Einnig fór mjög fyrir brjóstið á Einari,að Seðlabankinn taldi ríkisstjórnina ekki sýna nægilegt aðhald í ríkisfjármálum en Einar Oddur er varaformaður fjárlaganefndar.Var að skilja á Einar Oddi í ræðu á alþingi,að hann teldi Seðlabankann óþarfan og að leggja mætti hann niður.Einar Oddur sagði þó síðar,að þessi orð hefðu verið sögð í hálfkæringi.
ÞARF ENN AUKIÐ SJÁLFSTÆÐI
Enda þótt deila megi um aðgerðir Seðlabankans nú tel ég,að Seðlabankinn hafi mikilvægu hlutverki að gegna. Og síðan sjálfstæði Seðlabankans var aukið hefur bankinn sýnt,að hann getur veitt ríkisvaldinu aðhald í efnahagsmálum eins og hann á að gera.Birgir Ísleifur Gunnarsson formaður bankastjórnar Seðlabankans hefur staðið sig nokkuð vel í þessu efni.En betur má ef duga skal.Sjálfstæði Seðlabankans þarf enn að auka.
Björgvin Guðmundsson
Birt í Fréttablaðinu 14.desember 2004 |