Félag eldri borgara í Reykjavík og nágrenni lýsir stuðningi sínum við alla viðleitni ríkisstjórnar Íslands til að leysa á réttlátan hátt úr fjárhagsþrengingum íslensku þjóðarinnar. Treystir félagið því, að hlutur eldri borgara verði ekki fyrir borð borinn með skertum ævisparnaði þeirra og lífeyrisréttindum“.
Rætt um að skerða greiðslur lífeyrissjóða!
Það er ekki að ástæðulausu að eldri borgarar i Reykjavík gerðu framangreinda samþykkt.Lífeyrissjóðirnir áttu hlutabréf í bönkunum og nú er það fé tapað.Þeir hafa því orðið fyrir skaða vegna hruns bankanna.Á undanförnum árum hafa lífeyrissjóðirnir ávaxtað fé sitt í hlutabréfum og öðrum verðbréfum hér heima og erlendis. Stundum hafa þeir náð mjög góðri ávöxtun og sum árin hafa þeir grætt mjög mikið. En sjóðfélagar hafa ekki notið þess í hærri lífeyrisgreiðslum.Gróðinn af verðbréfunum hefur hlaðist upp í lífeyrissjóðunum. Þeir hafa gildnað. En um leið og lífeyrissjóðirnir verða fyrir skaða af fjárfestingum sínum er strax farið að tala um að skerða þurfi lífeyrisgreiðslur til sjóðfélaga.Að mínu mati kemur ekki til greina að skerða lífeyrisgreiðslur til lífeyrisþega.Það hefði mátt ræða það, ef lífeyrisgreiðslur til félagsmanna hefðu verið hækkaðar í góðærinu.En það var ekki gert og þvi eiga lífeyrisgreiðslur að haldast óbreyttar þó harðni í ári.
Dreifa verður byrðunum réttlátlega
Þau áföll,sem þjóðarbúið hefur nú orðið fyrir vegna hruns bankanna og fjármálakreppunnar munu óhjákvæmilega koma við þegna landsins. En þá ríður á að skipta byrðunum réttlátlega.Þeir,sem hafa breiðustu bökin eiga að bera þyngstu byrðarnar.Láglaunfólk,eldri borgarar og öryrkjar geta ekki tekið á sig byrðar.Kjör þessara hópa eru í lágnarki. Gengishrun krónunnar á þessu ári hefur stórskert kjör launafólks, eldri borgara og öryrkja.Nú hefnir sín, að góðærið var ekki notað til þess að bæta kjör aldraðra og öryrkja myndarlega.Lengst af í góðærinu var lífeyrir aldraðra sem hlutfall af lágmarkslaunum að rýrna.Meira af segja jókst gliðnun milli lífeyris og lágmarkslauna fyrri hluta þessa árs.Sú gliðnun var ekki leiðrétt fyrr en 1.ágúst og 1.oktober. Núverandi ríkisstjórn hefur bætt kjör þeirra eldri borgara,sem eru á vinnumarkaði með því að draga myndarlega úr tekjutengingum.Einnig hefur skerðing tryggingabóta vegna tekna maka verið afnumin og kemur það þeim öldruðum og öryrkjum til góða sem eiga maka.Þetta er gott svo langt sem það nær.En þeir,sem hættir eru að vinna af heilsufarsástæðum eða öðrum orsökum, nutu þess ekki þegar dregið var úr tekjutengingum.Kjör þeirra bötnuðu ekki við það. En ég tel,að ráðstafanir, sem gerðar eru í þágu aldraðra og öryrkja eigi að koma öllum öldruðum og öryrkjum til góða.Þess hefur ekki verið gætt í tíð núverandi stjórnar. Úr því verður að bæta þó erfitt ástand sé nú í efnahagsmálum.
Það má ekki mismuna eldri borgurum og öryrkjum.
Vildi miklar kjarabætur fyrir aldraða strax 2007
Ég byrjaði að skrifa um það strax eftir kosningar 2007, að það ætti strax að efna kosningaloforð stjórnarflokkanna um verulegar kjarabætur til handa öldruðum. Ég vildi,að Samfylkingin flytti tillögu um slíkar kjarabætur strax á sumarþinginu 2007. En það var ekki gert. Ég hélt málinu stöðugt vakandi í blaðagreinum, í stjórn Félags eldri borgara í Reykjavík og í 60+, stjórn eldri borgara í Samfylkingunni. Viðhorfið innan stjórnarflokkanna var það, að ekkert lægi á. Kjörtímabilið væri rétt að byrja. Það væri ekki venjan að framkvæma miklar kjarabætur í byrjun kjörtímabils.Én ég lét ekki segjast og hélt baráttunni áfram. Nú er komið í ljós, að það hefði verið nær að efna kosningasloforðin við aldraða strax eftir kosningar á meðan peningar voru til.Ef það hefði verið gert stæðu eldri borgarar betur að vígi í dag en þeir gera. En þetta var ekki gert. Málunum var ítt á undan sér.Og eins og ég sagði hér að framan var aðeins hugsað um þá eldri borgara sem eru á vinnumarkaði en ekkkert sinnt um að leiðrétta kjör þeirra eldri borgara,sem hættir eru að vinna. Það verður einnig að leiðrétta kjör þeirra.
Sláum skjaldborg um velferðarkerfið
Brýnast af öllu í dag er þó að verja velferðarkerfið.Það verður sótt að því.En félagshyggjumenn,jafnaðarmenn og ríkisstjórnin öll verða að slá skjaldborg um velferðarkerfið.Það má ekki skerða lífeyristryggingar aldraðra og öryrkja,það má ekki skerða heilbrigðiskerfið. Allir eiga áfram að fá ókeypis sjúkrahúsþjónustu án tillits til efnahags
Björgvin Guðmundsson
Birt í Morgunblaðinu 19.nóv. 2008