|
Samfylkingin vill bæta kjör eldri borgara myndarlegalaugardagur, 5. maí 2007
|
|
Málefni eldri borgara hafa verið í brennidepli fyrir alþingiskosningarnar 12.mai. Allir flokkar hafa látið þau mál til sín taka og vilja nú gera eitthvað fyrir aldraða. Á alþingi hefur Samfylkingin látið þessi mál mest til sín taka og flutt tillögur um úrbætur í málefnum eldri borgara mörg undanfarin ár. Jóhanna Sigurðardóttir alþingismaður hefur á mörgum þingum flutt tillögu um afkomutryggingu aldraðra en markmið þeirrar tillögu var að tryggja öldruðum sómasamleg lífskjör. Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir hefur einnig látið málefni aldraðra sig miklu varða. Á alþingi síðasta haust flutti stjórnarandstaðan sameiginlega tillögu um endurbætur í málefnum eldri borgara.Stjórnarandstaðan hyggst framkvæma þá tillögu, ef ríkisstjórnin fellur og flokkar stjórnarandstöðunnar mynda ríkisstjórn.
Lífeyrir almannatrygginga allt of lágur
Hvað er helst að í málefnum eldri borgara? Það má segja, að það sé þrennt: 1) Lífeyrir aldraðra er allt of lágur og dugar ekki fyrir framfærslukostnaði.2) Miklar tekjutengingar og skerðingar gera eldri borgurum ókleift að fara út á vinnumarkaðinn og þær valda því, að þeir eldri borgarar sem hafa tekjur úr lífeyrissjóði fá lítið sem ekkert í lífeyri frá almannatryggingum vegna skerðinga og skatta. 3) Svo mikill skortur er á hjúkrunarrými fyrir aldraða, að 400 eru á biðlista og mikill fjöldi eldri borgara er á tvíbýli eða margbýli á hjúkrunarheimilum, sem er óásættanlegt.
Frítekjumark verði 100 þúsund á mánuði frá 67 ára aldri
Ríkisstjórnin hefur lítið tekið á lífeyrismálum aldraðra. Hún hækkaði lífeyrinn um einhverja hungurlús í fyrra þannig, að hann er nú 126 þúsund krónur á mánuði hjá einstaklingi sem ekki hefur neitt úr lífeyrissjóði. Eftir skattlagningu eru 113 þúsund krónur eftir af þeirri smánarupphæð. Það lifir enginn sómasamlega af því. Samkvæmt neyslukönnun Hagstofu Íslands nema neysluútgjöld einstaklinga nú 210 þúsund krónum á mánuði fyrir skatta. Það vantar því um 100 þúsund krónur á mánuði upp á, að smánarupphæð ríkisstjórnarinnar dugi til framfærslu. Stefna Samfylkingarinnar er sú, að lífeyrir aldraðra verði ákveðinn í samræmi við framfærslukostnað eins og hann er metinn í neyslukönnun Hagstofunnar og að lífeyrir aldraðra hækki síðan reglulega samkvæmt könnun Hagstofunnar. Samfylkingin vill, að frítekjumark vegna atvinnutekna og tekna úr lífeyrissjóði verði hækkað í 100 þúsund krónur á mánuði fyrir alla ellilífeyrisþega frá 67 ára aldri og að skerðing vegna tekna maka verði felld niður að fullu.
Samfylkingin mun leysa hjúkrunarvandann
Samfylkingin ætlar að leysa hjúkrunarvandann, þannig,að allir eldri borgarar,sem þurfa rými á hjúkrunarheimili geti fengið þar inni.Þetta vill Samfylkingin gera á 18 mánuðum.. Eldri borgar eiga að vera á einbýli á hjúkrunarheimilum, ef þeir vilja ekki vera með öðrum í herbergi.Hjón eiga að sjálfsögðu að fá að vera saman á stofu á hjúkrunarheimilum og dvalarheimilum eldri borgara.Allar tekjur Framkvæmdasjóðs aldraðra eiga að ganga til byggingar hjúkrunarheimila og stofnana fyrir aldraða. Sjóðurinn á að skila aftur þeim þremur milljörðum,sem teknar hafa verið úr sjóðnum til annarra þarfa undanfarin ár. Skattur á tekjur úr lífeyrissjóði á að vera að hámarki 10% en ekki tæp 36% eins og nú er. Skattleysismörkin þarf að hækka stórlega. Ef þau hefðu fylgt launavísitölu frá 1988 væru þau í dag 140 þúsund á mánuði en þau eru aðeins 90 þúsund.Það hefur haft mikla kjaraskerðingu í för með sér.Samfylkingin vill hækka skattleysimörkin til samræmis við launabreytingar.
Sérstakur umboðsmaður eldri borgara
Samfylkingin vill, að eldri borgarar fái sérstakan málsvara innan stjórnsýslunnar. Sérstakur umboðsmaður aldraðra á að sinna réttindamálum þeirra. Hér á landi hafa stjórnvöld verið fjandsamleg eldri borgurum til þessa. Á hinum Norðurlöndunum eru stjórnvöld jákvæð í garð eldri borgara. Það er kominn tími til,að hér verði breyting á.
Björgvin Guðmundsson
Birt í Morgunblaðinu 4.mai. 2007 |
| Deila � Facebook |
N�justu pistlarnir: Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018 Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018 Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018 Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017 Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017 Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017 Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017 Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017 Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017 Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017 Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016 Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016 Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016 Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016 Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016 Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016 Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016 Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016 Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016 Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016 Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016 Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016 Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016 Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016 Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016 76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016 Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016 Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016 Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016 Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016
|
|