Mikil umræða hefur undanfarid átt sér stað um málefni aldraðra.Sennilega er það m.a. vegna thess,að kosningar nálgast.Stjórnmálamenn fá aukinn áhuga á hagsmunamálum aldraðra í aðdraganda kosninga. En einnig hafa mikil blaðaskrif aldraðra og umfjöllun í sjónvarpi um þessi mál vakið mikla athygli á málefnum eldri borgara.Margir stjórnmálaflokkar hafa á yfirstandandi alþingi flutt tillögur um aðgerdir íþágu aldraðra.
Samfylkingin vill afkomutryggingu aldraðra
Samfylkingin flutti tillögu um afkomutryggingu aldraðra strax og þing kom saman sl. haust. Samkvæmt tillögu Samfylkingarinnar á að tryggja öldruðum lífeyri fyrir eðlilegum framfærslukostnadi. Og það á samkvæmt tillögunni að hækka lífeyri aldraðra í samræmi við hækkun kaupgjalds launþega.Í greinargerð med tillögunni er skýrt frá því, að árið 1995 hafi tengsl verið rofin milli lífeyris aldraðra og kaupgjalds lágmarkslauna á almennum vinnumarkaði.En fram að theim tíma hafi lífeyrir aldraðra hækkað sjálfvirkt, þegar lágmarkslaun hækkuðu. Í greinargerðinni segir,að lífeyrir aldraðra frá almannatryggingum þurfi að hækka um 12000 kr. á mánuði til þess að jafna þá gliðnun sem orðið hafi.Landssamband eldri borgara segir,að lífeyrir aldraðra frá almannatryggingum þurfi ad hækka um 17000 kr. á mánuði til þess að ná þessu marki.-
Samtök vinstri grænna og Frjálslyndi flokkurinn hafa einnig flutt tillögur á alþingi um að bæta hag aldraðra.
Óheillaspor stigid 1995
Það var mikid óheillaspor,sem var stigið 1995, þegar rofin voru tengslin milli lífeyris aldraðra og lágmarkslauna.Þáverandi forsætisráherra lýsti því þá yfir,að kjör aldraðra mundu ekki versna við þessa breytingu.Trygging aldraðra í því efni yrði tvöföld:Það yrði bæði miðað við launabreytingar og verðlagsbreytingar.Ekki hefur verið staðið við þessa yfirlýsingu,þetta fyrirheit.Það var svikið.Þegar litið er á þróun lífeyris aldraðra og breytingar lágmarkslauna sl. 11 ár sést,að lífeyrir aldraðra hefur dregist mikið aftur úr launum láglaunafólks.Lífeyrir aldraðra hefur adeins hækkað um brot thess sem laun láglaunafólks hafa hækkað um.Það hafa verid hafðar af öldruðum stórar fjárhæðir á þessu tímabili.Samkæmt útreikningum hefur ríkið haft af öldruðum á þessu tímabili um 40 milljarða króna! Það eru miklir fjármunir.Þetta þýðir,að aldraðir áttu megnið af Símapeningunum.Þegar ríkið var að ráðstafa peningunum sem fengust fyrir sölu Símans var í rauninni verið að rástafa að verulegu leyti peningum sem aldraðir áttu.En þrátt fyrir thessar staðreyndir fengu aldraðir ekki eina krónu af símapeningunum!
Bæta þarf öldruðum skaðann
Hvernig ætlar ríkið ad bæta öldruðum það, sem af þeim hefur verð haft?Ríkisstjórnin hefur sagt,að enda þótt búið sé að ráðstafa megninu af Símapeningunum muni sú ráðstöfun rýmka til fyrir öðrum fjárveitingum.Það verður því væntanlega af þeim sökum auðveldara að standa við endurgreiðslur til aldraðra.Það er krafa aldraðra að staðið verði við fyrirheitið,sem þeim var gefið 1995.Aldraðir eiga rétt á tví. Að mínu mati þarf að gera eftirfarandi nú:Hækka lífeyri aldraðra frá almannatryggingum um 17000 kr. á mánuði strax.Bæta öldruðum skaðann af því, að þeir fengu ekki þá hækkun á lífeyri undanfarin ár,sem þeim var gefið fyrirheit um 1995.
Björgvin Gudmundsson