|
Lög og mannréttindi brotin á öldruðum og öryrkjumþriðjudagur, 25. mars 2014
|
Aldraðir og öryrkjar hafa mikið knúið á stjórnvöld að leiðrétta kjaraskerðinguna ( og kjaragliðnunina),sem þessir hópar urðu fyrir á krepputímanum.Meðaltekjur öryrkja ( allar tekjur þeirra, þar á meðal fjármagnstekjur) hækkuðu aðeins um 4,7% á tímabilinu janúar 2009 til janúar 2013.Á sama tímabili hækkaði launavísitalan um 23,5% .Og vísitala neysluverðs hækkaði um 20,5% á sama tímabili. Af þessum tölum er ljóst, að kjaragliðnun sú, sem öryrkjar urðu fyrir á tímabilinu 2009-2013 er mikil.Aðalástæðan er sú, að í janúar 2009 var 69.grein almannatryggingalaganna tekin úr sambandi og lífeyrir öryrkja og aldraðra var
frystur.Samkvæmt þessari grein á lífeyrir aldraðra og öryrkja að hækka í samræmi við hækkanir launa og aldrei að hækka minna en vísitala neysluverðs hækkar.
Það var Talnakönnun,sem kannaði kaupmáttarskerðinguna fyrir Öryrkjabandalagið.Talnakönnun athugaði einnig breytingu bóta,verðlags og launa á tímabilinu 2008-2013. Þá kom eftirfarandi í ljós: Lágmarkslaun hækkuðu á þessu tímabili um 54,3% en lífeyrir einhleypra öryrkja hækkaði á sama tímabili aðeins um 29%. Lífeyrir sambúðarfólks hækkaði um 29,7%.
Kjaraskerðingin 2009 var óheimil
Kjör öryrkja og aldraðra voru einnig skert með ráðstöfnunum í ríkisfjármálum 1.júlí 2009.En þá voru kjörin ekki aðeins fryst heldur voru kjörin færð niður, færð til baka.En samkvæmt alþjóðasamningum, sem Ísland er aðili að, þá er óheimilt að færa kjör aldraðra og öryrkja til baka. Ef ætlunin er að gera slíkt vegna efnahagsáfalla, verða stjórnvöld fyrst að leita annarra leiða. Það var ekki gert 2009.Þess vegna var kjaraskerðingin þá óheimil.
Ef litið er á kjaraskerðingu aldraðra á krepputímanum, kemur hið sama í ljós og hjá öryrkjum. Lífeyrir einhleypra eldri borgara hækkaði miklu minna en kaup láglaunafólks.Umræddur lífeyrir hækkaði aðeins um 17% á tímabilinu 2009-2013 ( miðað við þá,sem eingöngu hafa tekjur frá TR) en á sama tímabili hækkaði kaup láglaunafólks um 40%. Kjaragliðnunin er því eins mikil hjá öldruðum eins og hjá öryrkjum, jafnvel aðeins meiri.Þrátt fyrir skýr og ákveðin kosningaloforð bendir enn ekkert til þess, að ríkisstjórnin ætli að leiðrétta kjaragliðnun aldraðra og öryrkja
Brotin mannréttindi á öldruðum og öryrkjum
Það eru margir mannréttindasáttmálar,sem Ísland hefur undirritað.Þessir sáttmálar kveða á um það að veita skuli öldruðum og öryrkjum félagslegt öryggi og þeir kveða á um ýmis önnur réttindi,sem tryggja á öryrkjum og öldruðum.Einna mikilvægastur þessara sáttmála er mannréttindayfirlýsing Sameinuðu þjóðanna.Þá skiptir samningur Sameinuðu þjóðanna um málefni fatlaðra miklu máli fyrir öryrkja.Ísland hefur undirritað þann sáttmála en hann hefur enn ekki tekið gildi hér á landi.Er nú unnið að gildistöku sáttmálans.En það er ekki nóg að undirrita samninga og setja þá í gildi.Það þarf að fara eftir þeim.Ég hefi áður skýrt frá því, að það er óheimilt samkvæmt alþjóðlegum mannréttindasamningum, sem Ísland hefur samþykkt, að færa réttindi aldraðra og öyrkja til baka, þ.e. skerða þau eins og gert var 1.júlí 2009 .Ég kvartaði yfir því við þáverandi mannréttindaráðherra, Rögnu Árnadóttur, en hún gerði ekkert með erindið.Hún stakk því undir stól.
Allir eiga rétt á lífskjörum, sem nauðsynleg eru til verndar vellíðan
Mannréttindayfirlýsing Sþ.kveður á um það,að allir eigi rétt á lífskjörum,sem nauðsynleg eru til verndar heilsu og vellíðan; þar á meðal rétt til fæðis,klæða og félagslegrar þjónustu.Ennfremur segir þar,að allir eigi rétt á öryggi vegna atvinnuleysis, veikinda,fötlunar,fyrirvinnumissis,elli og annars, sem skorti veldur.-Það er engin spurning, að mannréttindi hafa verið brotin á öldruðum og öryrkjum hér á landi.Lög hafa einnig verið brotin á öldruðum, þar eð í lögum um málefni aldraðra segir,að aldraðir eigi að njóta jafnréttis á við aðra þegna þjóðfélagsins.Svo hefur ekki verið.
Björgvin Guðmundsson
formaður kjaranefndar Félags eldri borgara
Birt í DV 25.mars 2014
| Deila � Facebook |
N�justu pistlarnir: Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018 Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018 Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018 Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017 Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017 Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017 Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017 Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017 Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017 Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017 Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016 Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016 Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016 Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016 Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016 Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016 Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016 Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016 Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016 Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016 Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016 Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016 Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016 Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016 Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016 76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016 Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016 Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016 Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016 Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016
|
|