Umræðan um aðbúnað og kjör aldraðra heldur áfram. Nú síðast var vakin athygli á því,að mörg dæmi eru um það,að öldruð hjón séu skilin að, þegar þau þurfa að fara á hjúkrunarheimili.Ófremdarástandið í hjúkrunarmálum aldraðra er svo mikið,að ekki er í öllum tilvikum unnt að vista hjón saman,þegar þau þurfa að fara á hjúkrunarheimili.Þetta hefur verið gagnrýnt harðlega í fjölmiðlum og fjölmargir hlustendur hafa hringt í útvarpsstöðvarnar til þess að mótmæla þessu ranglæti.Meðal þeirra,sem mótmælt hafa, er forseti Íslands,Ólafur Ragnar Grímsson.
Ríkisstjórnin hefur seilst í framkvæmdasjóð aldraðra
Ein af ástæðunum fyrir skorti á hjúkrunarrými fyrir aldraða er sú staðreynd,að framkvæmdasjóður aldraðra hefur ekki verið notaður að fullu til þess að byggja rými fyrir aldraða eins og tilskilið var í lögum í upphafi.Mikill hluti sjóðsins hefur af ríkisstjórn verið tekinn til annarra þarfa en byggingaframkvæmda.Ríkisvaldið hefur seilst í þá fjármuni sem ætlaðir voru til þess að byggja yfir aldraða.Það er forkastanlegt og nú ætti ríkið að skila þeim fjármunum,sem mörg undanfarin ár, hafa verið teknir úr framkvæmdasjóði aldraða til annarra þarfa en framkvæmda.Alls hafa rúmir 6 milljarðar króna runnið í framkvæmdasjóð aldraðra undanfarin 10 ár en af þeirri fjárhæð hafa innan við 60% eða aðeins 3,6 milljarðar farið í framkvæmdir samkvæmt upphaflegum tilgangi laga um sjóðinn en ríkisstjórnin hefur tekið 2,5 milljarða til annarra þarfa.
Lífeyrir aldraðra skertur um 40 milljarða
Það er sama hvar er borið niður í málefnum aldraðra.Alls staðar blasa við vanefndir ríkisvaldsins.Ríkisstjórnin skuldar öldruðum 2,5 milljarða til uppbyggingar hjúkrunarheimila og annarra stofnana í þágu aldraðra. Og ríkisstjórnin skuldar öldruðum tugi milljarða vegna vanefnda á lífeyrisgreiðslum til aldraðra.Alls hafa stjórnarflokkar Sjálfstæðisflokks og Framsóknar haft 40 milljarða af ellilífeyrisþegum á liðnum 11 árum vegna þess,að ekki var staðið við fyrirheit um að lífeyrisgreiðslur mundu ekki skerðast við rof á sjálfvirkum tengslum milli lífeyris og lágmarkslauna verkafólks.
450 bíða eftir hjúkrunarrými
450 aldraðir bíða nú eftir rými á hjúkrunarheimilum.Er þá ekki tekið tillit til þess að margir eru víða saman í herbergi en það er óásættanlegt.Ekki munu bætast við nema 200 ný hjúkrunarrými á næstu 3-4 árum. 89 aldraðir eru vistaðir á Landsspítalanum,hátæknisjúkrahúsi, en ættu að vera á hjúkrunarheimili.Þetta er algert ófremdarástand hjá einni ríkustu þjóð í heimi. Og ekkert er gert.
Það er níðst á öldruðum
Landsamband eldri borgara segir að það vanti 17 þúsund krónur á mánuði nú upp á að lífeyrisgreiðslur aldraðra frá almannatryggingum nái því sem þær ættu að vera miðað við að þær hefðu hækkað í samræmi við hækkun lágmarkslauna.En þó lífeyririnn mundi hækka um þá fjárhæð dugar það hvergi nærri til framfærslu aldraðra. Lífeyrir einstaklings,sem ekkert fær úr lífeyrissjóði, er í dag 105 þúsund krónur fyrir skatta.Hann mundi því hækka í 122 þúsund krónur á mánuði ef tillaga Landsambands eldri borgara yrði samþykkt. En samkvæmt neyslukönnun Hagstofu Íslands þarf einstaklingur 167 þúsund krónur á mánuði til framfærslu.Skattar ekki meðtaldir.Hér vantar mikið upp á.Þessar tölur sýna svart á hvítu,að það er verið að níðast á eldri borgurum. Krafa eldri borgara er þessi: Ríkisvaldið skili aftur þeim tugum milljarða,sem hafðir hafa verið af öldruðum í lífeyri á liðnum 11 árum og ríkið skili þeim 2,5 milljörðum sem teknir hafa verið úr Framkvæmdasjóði aldraðra og látnir hafa verið í rekstur í stað framkvæmda.
Björgvin Guðmundsso |