Þingmenn Samfylkingarinnar hafa verið ötulir við að flytja mál aldraðra á alþingi.Og fyrir frumkvæði Samfylkingarinnar hafa verið stofnuð þrjú hagsmunafélög aldraðra ,þ.e. 60+, þar á meðal á Akureyri.Við bindum miklar vonir við þessi félög.Þau hafa farið vel af stað.
Kjör aldraðra í dag eru til skammar fyrir íslenskt samfélag. Kjör aldraðra eru óviðunandi.Lítum á nokkrar tölur:
Einhleypur ellilífeyrisþegi,sem hefur hámarks lífeyri frá Tryggingastofnun ríkisins en engar aðrar tekjur, hefur í dag í ráðstöfunartekjur 91.515 kr., þ.e. eftir skatta. Af þessum tekjum verður hann að greiða öll sín útgjöld,þar á meðal húsnæðiskostnað.Margir einhleypingar greiða 50 þús. kr. á mánuði fyrir húsnæði.Allir sjá því,að það lifir enginn mannsæmandi lífi af þessari fjárhæð. Þó erum við hér að tala um ellilífeyrisþega,sem nýtur bæði tekjutryggingarauka og heimilisuppbótar. Ef þeirra bóta nýtur ekki við hrapa ráðstöfunartekjur hans verulega eða um 20-37 þús kr. á mánuði..
En hafa ekki flestir aldraðir einhvern lífeyri úr lífeyrissjóði? Jú, sem betur fer.En hvernig lítur dæmið þá út?
Einhleypur ellilífeyrisþegi,sem hefur 45.888 kr. úr lífeyrissjóði til viðbótar lífeyri Tryggingastofnunar hefur 106.559 kr. í ráðstöfunartekjur. Ég sagði 106.559 kr. Það eru öll ósköpin. Í þessu dæmi fellur tekjutryggingarauki að fjárhæð 20 þús kr.niður og skatturinn hækkar verulega. Ráðstöfunartekurnar aukast aðeins um 15 þús. kr. við það,að ellilífeyrisþeginn fær nær 46 þús. kr. úr lífeyrissjóði.Og þó lífeyrir úr lífeyrissjóði nemi tæpum 92.000 kr. fær ellilífeyrisþeginn ekki nema 116 þús kr. í ráðstöfunartekjur eða 10 þús kr. meira enda þótt hann fái 46 þús. kr. meira úr lífeyrissjóði en í fyrra dæminu.
Þannig er nú réttlætið. Því meira sem þú færð úr lífeyrissjóði því meiri verður skerðing Tryggingastofnunar og því meiri verður skattpíningin.Það skal algerlega tryggt,að aldraðir hafi ekki of mikið til ráðstöfunar.
Hagstofa Ísland birti fyrr á þessu ári niðurstöðu neyslurannsóknar,sem fram fór árin 2000-2002. Könnuð voru útgjöld fjölskyldna og einstaklinga í landinu. Slíkar kannanir fara reglulega fram. Niðurstaða neyslukönnunar Hagstofunnar var sú,að einstaklingur, einhleypingur, þyrfti 161 þús.kr á mánuði sér til framfærslu fyrir utan skatta. Ég endurtek: Þetta var fyrir utan skatta og öll opinber gjöld.Hins vegar var húsnæðiskostnaður inni í þessari tölu en mjög lágt reiknaður eða aðeins 38 þús. kr á mánuði. Kjaranefnd Félags eldri borgara í Reykjavík hefur haft þessa neyslukönnun Hagstofunnar til athugunar.Kjaranefndin telur,að með hliðsjón af henni þurfi hver aldraður einstaklingur a.m.k. 160 þús kr. á mánuði sér til framfærslu. Lífeyrir aldraðra einstaklinga frá Tryggingastofnun þurfi því að hækka upp í þá fjárhæð,þ.e.í 160 þús kr. á mánuði miðað við að ekki sé um neinar aðrar tekjur að ræða.Þetta er 56 þús kr. hækkun á mánuði. Sumum finnst þetta ef til vill mikil hækkun.En mér finnst það ekki.Þetta er alger lágmarkshækkun.Og í rauninni er þetta ekki nærri nóg hækkun,þar eð skv. neyslukönnun Hagstofu Íslands dugar þetta ekki fyrir sköttum einnig,heldur aðeins fyrir öðrum útgjöldum.
Landssamband eldri borgara settist að samningum við ríkisstjórnina í nóvember 2002 og gerði samkomulag um lítilsháttar lagfæringar á kjörum aldraðra . Þetta samkomulag færði öldruðum sáralitlar hækkanir á lífeyri eða eftirfarandi: Tekjutrygging aldraðra hækkaði um 3028 kr. 1.jan. 2003 og um 2000 kr. 1. jan. 2004.Tekjutryggingarauki hækkaði um 2255 kr. 1.jan. 2003 og um 2000 kr. 1.jan 2004.Grunnlífeyrir hækkaði um 640 kr.-640 kr. Þetta voru öll ósköpin. En ríkisstjórnin flaggaði þessu samkomulagi óspart í kosningunum 2003,rétt eins og hún hefði leiðrétt kjör aldraðra mjög mikið. Hið eina,sem verulegt gagn var í úr þessu samkomulagi var að samið var um nokkra aukningu hjúkrunarrýma fyrir aldraða.
Fram til ársins 1995 hækkaði lífeyrir aldraðra frá Tryggingastofnun í samræmi við hækkun lágmarkslauna á almennum vinnumarkaði. En þá var skorið á þessi tengsl. Síðan hefur lífeyrir aldraðra dregist verulega aftur úr og hækkað mun minna en almenn laun. Kaupmáttur lágmarkslauna hefur hækkað um 56 % frá árinu 1990 en kaupmáttur lífeyris aldraðra hefur aðeins hækkað um 24,7% á sama tíma. Það vantar 16.248 kr. á mánuði upp á að lífeyrir aldraðra sé eins og hann ætti að vera miðað við,að hann hefði fylgt almennri launaþróun. Þetta eiga ellilífeyrisþegar inni hjá ríkinu.Við gerum kröfu til þess að fá þetta endurgreitt.
Þetta hefur verið af okkur tekið.En auk þess vilja aldraðir fá almenna leiðréttingu til þess að þeir geti lifað mannsæmandi lífi.
Ríkisstjórnin hefur verið treg til þess að hækka lífeyri aldraðra. En hún getur einnig farið þá leið að stórhækka skattleysismörkin.Á þann hátt má auka kaupmátt aldraðra og annars láglaunafólks í þjóðfélaginu. Skattleysismörkin hafa ekki fylgt launa-og verðlagsþróun undanfarin ár. Þau hafa dregist verulega aftur úr í samanburði við kaupgjald og verðlag. Skattleysismörkin eru í dag rúmar 71.000 kr. á mánuði. En ef þau hefðu fylgt verðlagsþróun frá árinu 1988 ættu þau að vera 99.557 kr. í dag. Sú óverulega hækkun skattleysismarka,sem ríkisstjórnin boðaði fyrir viku nær ekki einu sinni þessari tölu.Ef skattleysismörkin
hefðu fylgt launaþróun ættu þau nú að vera 114.956 kr. Það er til skammar að 104 þús kr. sem einhleypur ellilífeyrisþegi hefur í lífeyri frá Tryggingastofnun í dag, skuli skattlagðar með 12.700 kr. skatti. Auðvitað ætti þessi fjárhæð að vera skattfrjáls.115 þús kr. ættu að vera skattfrjálsar.Það er algert lágmark. Sumir segja,að 150-160 þús kr. ættu að vera skattfrjálsar.Það sé sú upphæð sem hver einstaklingur þurfi sér til framfærslu.
Það virðast vera nógir peningar til í íslensku þjóðfélagi,a.m.k benda fréttir af fjármálum fyrirtækja til þess.Og ríkisstjórnin segist nú geta varið 22 milljörðum kr. í skattalækkanir næstu 3 árin. Ísland er ríkt þjóðfélag.Er þá ekki unnt að gera betur við aldraða og öryrkja og þá sem búa við fátækt? Vissulega er það hægt.Aldraðir hafa skilað þjóðfélaginu fram á þann veg,sem það er á í dag.Þjóðfélagið skuldar öldruðum góð lífskjör.
Björgvin Guðmundsson
Flutt á ráðstefnu Samfylkingarinnar um kjör aldraðra á Akureyri 27.nóv. 2004
|