Í forustugrein Morgunblaðsins 18.mai segir svo:”Öldruðum hefur þótt erfitt að ná eyrum ráðamanna.Þeir eru reiðir vegna þess, að þeim finnst að þeir séu ekki virtir viðlits.Í forustusveit þeirra eru menn, sem hafa mikla reynslu af opinberum málum sem stjórnmálamenn,verkalýðsleiðtogar og háttsettir embættismenn."
Þetta er hárrétt hjá Mbl..Framkoma stjórnvalda við forustumenn eldri borgara hefur verið slík undanfarin ár, að þeir eru búnir að fá nóg. Þeir eru einnig búnir að fá nóg af skýrslugerð og nefndarskipunum.Það liggur alveg ljóst fyrir hver vandinn er.Það er komið að athöfnum eins og Afa,hin nýju samtök aðstandenda aldraðra hafa bent á.
Lífeyrir hefur lækkað um 17,7 prósentustig
Samkvæmt staðtölum Tryggingastofnunar ríkisins 2004 nam lífeyrir aldraðra,grunnlífeyrir,tekjutrygging og eingreiðsla 61,6% af lágmarkslaunum verkafólks það ár en árið 1988 nam sami lífeyrir 79,3% af lágmarkslaunum.Á þessu tímabili hefur lífeyrir aldraðra sem hlutfall af lágmarkslaunum lækkað um 17,7 prósentustig.Árið 1995 nam ellilífeyrir 74,8% af lágmarkslaunum.Það er því alveg sama hvort miðað er við 1988 eða 1995: Það hefur orðið gífurleg skerðing á lífeyri aldraðra miðað við lágmarkslaun verkafólks.Þessar tölur tala sínu máli. Þær segja allt sem segja þarf. Deilur fjármálaráðherra við prófessora háskólans um það hve skattar hafi hækkað mikið breyta þar engu um.Áður greiddu tekjurlágir ellilífeyrisþegar engan skatt en nú verða þeir að greiða verulega skatta.Á sama tíma hafa lyf hækkað mikið en það bitnar þungt á öldruðum.
Allir vilja bæta ráð sitt
Allir flokkar,sem bjóða fram við borgarstjórnarkosningar, segjast nú vilja bæta kjör aldraðra.Þeir vilja auka heimaþjónustu og heimahjúkrun aldraðra og þeir vilja fá lögbundin framlög ríkisins til þess að geta byggt hjúkrunarheimili.Ég benti á það hér í Morgunblaðinu,að ríkið hefur tekið til reksturs 2,5 milljarða úr framkvæmdasjóði aldraðra en sá sjóður var stofnaður til þess að kosta byggingu hjúkrunarheimila.Einn frambjóðandi orðaði það svo, að ríkið hefði stolið þessum peningum!Eitt er víst: Ríkið verður að skila þessum peningum strax.
..
Það er eðlilegt að eldri borgarar séu tortryggnir út í stjórnmálaflokkana þegar þeir lofa nú aðgerðum í málefnum þeirra.Þess vegna er það mjög athyglisvert stefnumál hjá Samfylkingunni í Reykjavík,að ef aldraðrir fái ekki þá þjónustu, sem þeir eiga lögum samkvæmt að fá, þá skuli þeir fá greiðslu í staðinn. Þetta er algert nýmæli og mjög gott stefnumál hjá Samfylkingunni.
Lækka verður fasteignagjöld aldraðra
Mikil áhersla er nú lögð á það, að aldraðir geti verið sem lengst í heimahúsum .Til þess að auðvelda það þarfa að lækka fasteignagjöld aldraðra verulega.Ég tel,að auka eigi afslátt á fasteignagjöldum ellilífeyrisþega og þeir sem eru 70 ára og eldri eigi að greiða mjög lág fasteignagjöld.
Björgvin Guðmundsson
Birt í Morgunblaðinu 20.mai 2006