|
Verið að níðast á öldruðum og öryrkjummiðvikudagur, 16. desember 2015
|
Svo virðist sem ríkisstjórn og alþingi ætli að bregðast öldruðum algerlega á þessu ári.Við afgreiðslu fjáraukalaga fyrir 2015 var tillaga um kjarabætur lífeyrisþega felld. Sýnt hefur verið fram á með mörgum dæmum, að ekki er unnt að lifa af lægsta lífeyri aldraðra frá TR. Þessi lífeyrir dugar ekki fyrir framfærslukostnaði út mánuðinn.Lyf eða læknishjálp mætir því afgangi. Og stundum eru matarkaup látin sitja á hakanum. Þetta er mjög gróft mannréttindabrot og stríðir gegn 76. grein stjórnarskrárinnar.En þetta virðist ekki skipta meirihluta Alþingis neinu máli. Ríkisstjórnin hreyfir sig ekki í þessu máli og ekki meirihluti alþingis heldur.Til þess að kóróna ranglætið og misréttið í þjóðfélaginu gerist það nú fyrir skömmu, að hálaunamenn, ráðherrar, alþingismenn og embættismenn ríkisins fá mjög miklar kjarabætur, ekki frá 1.janúar n.k eins og eldri borgarar og ekki frá 1.mai sl eins og verkafólk, nei frá 1.mars s!. Ráðherrar og alþingismenn hafa verið taldir svo illa haldnir, að þeir yrðu að fá góða summu í vasann strax! Ráðherrarnir fengu rúmar 900 þúsund greiddar nú þegar! En um leið og þeir taka við þessum upphæðum segja þeir nei við aldraða og öryrkja!
Aldraðir fái sömu hækkun og verkafólk og frá sama tíma
Þegar fjárlagafrumvarpið var lagt fyrir alþingi til annarrar umræðu, var ekki að sjá í því neinar lagfæringar á kjörum aldraðra og öryrkja umfram þá hungurlús, sem var boðuð í upphafi og á ekki að taka gildi fyrr en á næsta ári.
Það er ófrávíkjanleg krafa kjaranefndar eldri borgara (og LEB) að eldri borgarar fái nákvæmlega jafn mikla hækkun á sínum lífeyri og verkafólk fékk á sínum launum (14,5%).Og það hefur verið ófrávikjanleg krafa eldri borgara, að aldraðir fengju þessa hækkun frá sama tíma og verkafólk, þ.e. frá 1.mai sl .Nú væri réttlættismál, að aldraðir fengju þessa hækkun frá 1.mars eins og ráðherrar, alþingismenn og embættismenn.Það er meiri þörf á, að hækkun á lífeyri aldraðra og öryrkja frá TR gildi frá 1.mars heldur en hækkun á launum þessara hátekjumanna.
Hækkun lífeyris ekki í samræmi við launaþróun
Ríkisstjórnin boðaði 9,4% hækkun á lífeyri aldraðra, sem tæki gildi næsta ár.Þetta eru rúmar 10 þús. kr á mánuði eftir skatt.Þessi hungurlús er það,sem forsætisráðherra kallar mestu hækkun á lífeyri aldraðra og öryrkja í sögunni! Á sama tíma hækka laun ráðherranna um meira en 100 þúsund krónur á mánuð og afturvirkt frá 1.mars eða um meira en 900 þúsund kr strax.Ríkisstjórninni er gjarnt að tala um met. Þetta er áreiðanlega met í ranglæti og misrétti. Á þessu ári hafa laun margra stétta hækkað óvenju mikið. Meðaltalshækkun á þessu ári hefur verið í kringum 14% en einstaka stéttir hafa hækkað um 18%, aðrar um 25% og fiskvinnslufólk, sem er að byrja störf, hækkar um 30%. Samkvæmt lögum á lífeyrir að taka mið af launaþróun. Það er alveg ljóst,að það er verið að brjóta lögin með því að ákvarða hækkun lífeyris langt fyrir neðan hækkun launa flestra stétta.Það er verið að níðast á öldruðum og öryrkjum.
Björgvin Guðmundsson
Formaður kjaranefndar Félags
eldri borgara í Reykjavík
og nágrenni
Birt í Fréttablaðinu 16.des. 2015
| Deila � Facebook |
N�justu pistlarnir: Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018 Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018 Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018 Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017 Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017 Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017 Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017 Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017 Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017 Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017 Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016 Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016 Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016 Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016 Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016 Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016 Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016 Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016 Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016 Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016 Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016 Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016 Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016 Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016 Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016 76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016 Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016 Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016 Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016 Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016
|
|