|
Hver eru rökin fyrir aðild að ESB?þriðjudagur, 11. mars 2008
| Samkvæmt nýrri skoðanakönnun Fréttablaðsins vilja 55 %, að Ísland gangi í Evrópusambandið. Þetta er mesta fylgi við aðild að ESB í skoðanakönnun.Geir Haarde, forsætisráðherra Ísland, hefur undanfarna daga verið í heimsókn í höfuðstöðvum ESB í Brussel. Hefur hann m.a. rætt við formann framkvæmdastjórnar ESB, Barroso.Niðurstaðan af viðræðum Geirs við Evrópusambandið er sú, að einhliða upptaka evru gangi ekki. Ef Ísland ætli að taka upp evru verði það að ganga í Evrópusambandið og Myntbandalag Evrópu.Þessi niðurstaða kemur ekki á óvart .Norðmenn voru búnir að kanna þetta mál fyrir 8-10 árum. Þá fór Bondevik, forsætisráðherra Noregs til Brussel í sömu erindagerðum og Geir Haarde og fékk nákvæmlega sömu svör. Noregur gat ekki fengið að taka upp evru einhliða.Við hefðum því getað sparað okkur allar umræðurnar undanfarið um einhliða upptöku evru. Það gengur ekki. Við verðum að ganga í Evrópusambandið,ef við ætlum að taka upp evru.
Hver eru rökin fyrir því að ganga í ESB? Og hver eru rökin á móti aðild? Ísland er aðili að Evrópska efnahagssvæðinu, EES. Aðild að EES tryggir okkur frelsin fjögur, frjálsa vöruflutninga, frjálsa fjármagnsflutninga, frjálsa flutninga vinnuafls og frjálsa þjónustuflutninga. Margir segja, að þetta dugi Íslendingum. Frjálsir vöuflutningar tryggja okkur aðild að markaði ESB fyrir nær allar okkar sjávarafurðir.Það var eitt mikilvægasta atriði EES samningsins .Frjálsir fjármagnsflutningar skipta einnig miklu máli fyrir okkur.Vegna aðildar okkar að EES tökum við sjálfskrafa upp mikið af tilskipunum ESB og hafa mörg umbótamál verið lögleidd hér af þeim sökum, svo sem á sviði vinnumála og umhverfismála. En hvað vantar þá upp á? Það,sem vantar er að vera með við stjórnarborð ESB. Ísland tekur ekki þátt í þingi og stjórn ESB og kemur lítið að undirbúningi tilskipana. Og Ísland fær ekki að taka upp evru, þar eð við erum ekki í ESB. Helstu rökin fyrir aðild eru því þau að fá aðild að stjórn ESB og Myntbandalagi svo við getum tekið upp evru.
Helstu rökin gegn aðild eru þau, að þá yrðum við að taka upp sjávarútvegsstefnu ESB og hleypa fiskiskipum ESB inn í fiskveiðilögsögu okkar.Menn nota það einnig sem röksemd gegn aðild að við séum komnir með nær allan ávinning aðildar gegnum aðildina að EES.Og að við myndum ekki ráða miklu í ESB þó við værum aðilar.Stuðningsmenn aðildar að ESB segja,að þó Ísland gengi í ESB mundi Ísland sitja nær eitt að fiskimiðunum við Ísland. Tekið yrði tillit til fiskveiðireynslu Íslendinga við Íslandsstrendur og Íslendingum úthlutað nær öllum kvótum við Ísland. Þetta kann að vera rétt en úr þessu fæst ekki skorið fyrr en Ísland hefur gerst aðili að ESB.Vægi sjávarútvegs í íslenskum þjóðarbúskap fer minnkandi. Sú staðreynd vinnur með aðild að ESB.Nýjar greinar eins og fjármálageirinn,ferðaiðnaður og áliðnaður sækja á. Það mælir með aðild að ESB. Margir eru að smásnúast til aðildar að ESB af þessum sökum.
Samfylkingin er eini stjórnmálaflokkurinn, sem hefur aðild að ESB á stefnuskrá sinni.Samfylkingin vill,að Ísland ákveði samningsmarkmið sín fyrir samningaviðræður við ESB.. Síðan verði látið reyna á þau í samningaviðræðum. Niðurstaðan verði lögð fyrir þjóðina í þjóðaratkvæðagreiðslu.Norðmenn hafa tvívegis fellt i þjóðaratkvæði að ganga í ESB. Norski Verkamannaflokkurinn vill ganga í ESB en norska stjórnin hefur ekki aðild á stefnuskrá sinni.Eftir næstu kosningar í Noregi gæti aðild komist á dagskrá. Ef Noregur gengur í ESB verður Ísland að fylgja í kjölfarið. Ef Noregur fer úr EFTA og gengur í ESB líður EFTA sennilega undir lok.
Hér mun ekkert gerast í þessu máli á yfirstandani kjörtimabili en málið gæti orðið kosningamál í næstu kosningum.
Björgvin Guðmundsson
| Deila � Facebook |
N�justu pistlarnir: Ríkið vanræknir hjúkrunarheimilin, 21.8.2018 Hvers vegna er stjórnarskráin brotin á öldruðum og öryrkjum?, 2.8.2018 Bæta þarf kjör aldraðra strax ekki síðar, 19.7.2018 Eldri borgarar mega hvorki vinna né spara, 21.9.2017 Almannatryggingar fyrsta stoð lífeyriskerfisins, 12.7.2017 Ríkið tók alla "kjarabótina" til baka!, 25.5.2017 Almannatryggingar reka lestina meðal slíkra trygginga á Norðurlöndum, 30.3.2017 Kjör verst settu eldri borgara og öryrkja eru við hungurmörk!, 2.3.2017 Góðærið hefur ekki komið til eldri borgara, 16.2.2017 Eldri borgarar og öryrkjar hafi 400 þúsund á mánuði fyrir skatt!, 2.2.2017 Ríkisstjórnin níðist á kjörum lífeyrisþega!, 1.12.2016 Er búið að mynda stjórn á bak við tjöldin?, 26.11.2016 Fjöldi eldri borgara býr við bág kjör, 16.11.2016 Samfylkingin berjist fyrir launþega og lífeyrisfólk, 15.11.2016 Bæta þarf kjör lífeyrisþega miklu meira en um þessa hungurlús,sem taka á gildi næsta ár, 11.11.2016 Aldraðir og öryrkjar eiga rétt á lífeyri (ekki bótum), 3.11.2016 Margir eiga erfitt með að draga fram lífið!!, 11.8.2016 Hvaða flokkar styðja kjarakröfur aldraðra og öryrkja?, 5.8.2016 Engar kjarabætur í nýjum tillögum um almannatryggingar, 3.8.2016 Bætir Sigurður Ingi kjör aldraðra?, 8.7.2016 Afnema verður endurkröfur á aldraða og öryrkja vegna ofgreiðslu, 3.7.2016 Aldraðir og öryrkjar kjósa kjarabætur!, 14.6.2016 Skerðing vegna atvinnutekna aldraðra eykst!, 4.6.2016 Staða aldraðra og öryrkja óásættanleg, 18.5.2016 Lífeyrir aldraðra á að hækka um 30%, 2.5.2016 76.greinin gildir einnig fyrir verst stæðu eldri borgara og öryrkja!, 21.4.2016 Sigurður Ingi efni kosningaloforðin við aldraða og öryrkja!, 20.4.2016 Mannréttindi stöðugt brotin á öldruðum og öryrkjum, 3.4.2016 Grunnlífeyrir skertur á ný samkvæmt nýjum tillögum ríkisnefndar, 31.3.2016 Lífeyrir aldraðra hjá TR tekinn af þeim við innlögn á hjúkrunarheimili!, 25.2.2016
|
|